Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1960, Qupperneq 15

Heima er bezt - 01.03.1960, Qupperneq 15
■ekki annað af henni ráðið, en að hún boðaði það, sem orðið var um íslending og skipshöfn hans. Guðleifur Elísson var fæddur að Yztaskála undir Eyjafjöllum 24. ágúst 1880. Foreldrar hans voru hjónin Guðlaug Hieronímusdóttir og Elís Hjörleifsson. Guð- leifur fór snemma að Miðmörk undir Eyjafjöllum og ólst þar upp til fermingaraldurs. Þar bjó þá Arni Arna- son og Margrét Engilbertsdóttir. Um fermingu fór Guðleifur að Brúnum. Var hann ætíð síðan kenndur við þann bæ og nefndur Guðleifur á Brúnum. Hann var snemma bráðþroska og mikið hraustmenni. Sextán ára fór hann fótgangandi með frænda sínum, Guðjóni í Ormskoti, síðar að Heiði í Eyjum, suður á Suðurnes til sjóróðra. Voru þeir frændur á líkum aldri og líkir um margt, þótt ekki væru þeir líkir í sjón. Þeir reru nefnda vertíð á Suðurnesjum, en næstu ver- tíð fóru þeir til Eyja. Mun það hafa verið 1898 og reru þá á sitt hvoru skipinu. Guðleifur var mikið með Guðjóni Jónssyni for- manni á Sandfelli, sem lét svo um mælt, að Guðleifur væri afbragð annarra manna, aldrei hefði hann kynnzt öðrum eins, sannkölluðum manni á öllum sviðum. Kall- aði þó Guðjón á Sandfelli, sem sjálfur var enginn með- almaður í hvívetna, ekki allt ömmu sína í tali á mann- kostum. Arið 1909 tók Guðleifur við formennsku á mb. Lunda, sem hann átti með Gísla J. Johnsen. Var Guð- leifur snemma aflasæll formaður og sjósóknari með þeim fremstu í Eyjum. Jafnhliða var hann svo sumar- formaður á Austfjörðum, t. d. með mb. Herkules fyrir Sigfús Sveinsson á Norðfirði. Var Herkules einn af fyrstu vélbátum austanlands. Sömu ummæli hafði Sig- fús um Guðleif, sem Guðjón á Sandfelli, að hann væri afbragð annarra manna á flestum sviðum. Guðleifur Elísson frd Brúnum, formaður. Síðar var Guðleifur með mb. Víking á Seyðisfirði fyrir Brynjólf Sigurðsson og var hann þar ávallt afla- hæstur og mikils metinn formaður. Þótt Guðleifur færi snemma frá átthögum sínum, Eyjafjöllunum, var hann þar þó viðloðandi fram til æviloka. Þar átti hann t. d. sína ágætu hesta sem hann unni mjög. Hann var hesta- og vatnamaður ágætur, með hærri mönnum að vexti, þrekinn, dökkur yfirlit- um, svipmikill og virðulegur. Hann gat verið fastur fyrir, ef því var að skipta, og hið mesta hraustmenni Ólafur Jónsson, vélstjóri, Eyjólfur Sigurðsson, háseti, Símon Guðmundsson, háseti, frá Landamótum i Véstmannaeyjum. Görðum i Vestmannaeyjum. Kviabóli í Mýrdal. Heima er bezt 87

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.