Heima er bezt - 01.08.1960, Blaðsíða 5
2. Helgi, oddviti Fellahrepps, kvæntur Gróu Björns-
dóttur, alþingismanns á Rangá, eiga 3 börn.
3. Páll, bóndi á Aðalbóli, kvæntur Ingunni Einarsdótt-
ur hreppstjóra frá Fjallsseli, eiga 9 börn.
4. Hulda, gift Sigurgeiri Jónssyni, bifreiðarstjóra, Ak-
ureyri, eiga 3 börn.
5. Björgheiður, dáin fyrir fáum árum, átti eitt barn.
6. Sigríður, gift Hermanni Hermannssyni, bryta,
Reykjavík, eiga 7 börn.
7. Guðlaug, gift Guðna Gunnarssyni, Moshvoli,
Rangárvallasýslu, eiga 4 börn.
8. Þórkatla, gift Marinó Kristinssyni, presti að Val-
þjófsstað, eiga 7 böm.
9. Bergþóra, ógift í Ameríku.
10. Sólveig, hjúkrunarkona, gift Þorvaldi Kristmunds-
syni, arkitekt, Reykjavík, eiga 2 börn.
11. Olöf, ógift í Reykjavík.
12. Indriði, íslenzkukennari, Reykjavík, kvæntur Ingi-
björgu Pálmadóttur, rektors, eiga 3 börn.
13. Víkingur, ógiftur, heima.
Barnabamabörn eru 7
ÖIl eru þessi systkini óvenju þróttmikið og glæsilegt
fólk. Hafa þau öll notið skólagöngu. Helgi lauk prófi
frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri, Indriði lauk stú-
dentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og kandi-
datsprófi frá Háskóla íslands. Hin hafa stundað nám í
öðrum skólum.
Það mun snemma hafa vaknað áhugi Gísla fyrir raf-
virkjun við Rangá, en hún rennur að miklu leyti um-
hverfis land hans. Voru virkjunarskilyrði allgóð en
nokkuð kostnaðarsöm. Varð því að fresta framkvæmd-
um í því efni meðan annað enn nauðsynlegra kallaði
að. En að lokinni síðari heimsstyrjöldinni var hafizt
Gisli Helgason við trjágarð heimilisins i Skógargerði.
handa um virkjun árinnar í sambandi við tvö önnur
heimili, á Rangá. Hafa þessi heimili nú öll nægilegt raf-
magn til allra heimilisnota. Það er í frásögur fært, að
Gísli gat greitt sinn hluta kostnaðarins út frá sjálfum
sér. En svo illa tókst til, að einhver mistök höfðu orð-
ið hjá verkfræðingi þeim, sem hafði gert áætlun um
verkið. Varð að rífa upp og breyta til. Orsakaði þetta
nokkurra tuga þúsunda hækkun. Varð Gísli að taka
lán til að greiða sinn hluta af því.
Það mun hafa verið nokkuð algengt, að Möðruvell-
ingar, sem svo voru nefndir, veldust til forustu í sveit-
ar- og héraðsmálum. Varð Gísli engin undantekning
í því efni. Var hann um langt skeið í fremstu víglínu
í málefnum sveitar sinnar, t. d. um langt skeið í hrepps-
Skógargerðishjónin, Dagný Pálsdóttir og Gisli Helgason.
Heima er bezt 257