Heima er bezt - 01.08.1960, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.08.1960, Blaðsíða 23
Innsiglingin til Rergen. með hengivögnum. Sterkur stálvír leikur á hjóli, og þegar annar vagninn brunar niður hlíðina, dregur hann hinn upp. Vagnar þessir eru svipaðir á stærð og stræt- isvagnar og rúma margt manna, en samt er oft biðröð að komast í þá. Um kvödið bauð Ivar Orgland okkur á veitingahús- ið uppi á Flöyen. Það lá við að ég væri hálfsmeykur að þjóta upp snarbratta hlíðina í þessu ógnar ferlíki, sem hékk í mjóum vír. Það virtist heldur glæfralegt að draga vagninn þannig upp, fullsetinn af fólki, og ekki bætti það úr skák, að hann nötraði ákaflega, svo það söng og hvein í stálvírnum. Það eykur líka á óhugnaðinn, að neðst í hlíðinni fara vagnarnir í gegnum alllöng jarð- göng. En hemlar og annar öryggisútbúnaður er víst mjög fullkominn. Vagnstjórinn sagði mér, að aldrei hefði hent neitt óhapp eða slys í Flöyenbrautinni. Uppi á Flöyen er mjög víðsýnt og einkar skemmti- legt að horfa yfir ljósum prýdda borgina. Hér eru ekki bjartar nætur eins og heima á gamla Fróni. Um daginn hafði verið hiti og glampandi sólskin. En er við stóðum þarna uppi á Flöyen í mesta sakleysi og dáðumst að ljósadýrðinni, steyptist yfir okkur, svo fljótt sem hendi væri veifað, mikil regndemba. Við hefðum orðið hold- vot, ef við hefðum ekki forðað okkur hið skjótasta inn í veitingahúsið. Það er sagt í gamni og alvöru, að aldrei líði sá dagur í Björgvin, að ekki rigni. Og einhvers staðar hef ég „Hengivagnar". Annar á uppleið en hinn á niðurleið. — Myndin er tekin þar sem þeir eru hlið við hlið í jarðgöngum. heyrt þá skrýtlu, að börnin í Björgvin fæðist með regn- hlíf. ; Margt manna var samankomið þarna á veitingahús- inu, og heyrðust töluð fjarskyld tungumál. Nokkra landa hittum við. Við snæddum ljúffenga máltíð þarna á fjallahótel- inu, dnas var stiginn og kvöldið leið fljótt í glaum og gleði. Undir miðnættið rúlluðum við svo aftur niður fjallshlíðina í hengivagninum. Þetta hafði verið óvið- jafnanlegur dagur, sem mér mun seint úr minni líða. Um nóttina gistum við á ágætu fjallahóteli, sem ber nafnið „Hordaheimen“. Morguninn eftir skoðuðum við okkur enn um í borg- inni. Meðal annars sáum við stórt fisksölutorg nálægt höfninni, þar sem fiskurinn er seldur undir berum himni. Þangað leggja húsmæðurnar leið sína á morgn- ana, til að kaupa glænýjan fisk í miðdegismatinn. Norðmenn eru bókelsk þjóð, eins og við íslendingar. í Björgvin sá ég rnargar og stórar bókabúðir, og í glugg- um þeirra gaf að líta bækur nokkurra íslenzkra höf- unda. Síðdegis þennan sama dag kvöddum við Björgvin og héldum suður á bóginn. Ferðinni var heitið til Kvam- stö í Vikebygd. Þar á Ivar Orgland sendikennari sum- arbústað eða réttara sagt ættaróðal, og eru byggingar þar stórar og reisulegar, þótt gamlar séu. Orgland er mikill íslandsvinur, og þekktur í Noregi og hér heima fyrir snilldarþýðingar sínar á ljóðum íslenzkra skálda. Hann er einnig sjálfur skáld gott, og hefur gefið út tvær Ijóðabækur. Orgland sýndi okkur það vinarbragð, að bjóða okkur heim til sín, og dvelja hjá sér sem okkur fýsti. Að sjálfsögðu þáðum við þetta höfðinglega boð. Við völdum okkur þann kostinn að taka okkur far með strandferðaskipi frá Björgvin til Vikebygd, og tekur ferðin með skipi nálægt 5 tíma. Mjög langt er að aka þessa leið í bíl, því þá þarf að krækja fyrir annan lengsta fjörð Noregs, Flarðangursfjörðinn. Hann er hvorki meira né minna en 170 krn á lengd, svo Hval- fjörðurinn okkar er smáspotti í samanburði við hann. Norsku firðirnir eru mjög djúpir, rniklu dýpri en land- grunnið úti fyrir stöndinni, enda þannig til orðnir, að í fyrndinni hefur vatnsrennsli og skriðjöklar sorfið þá niður. (Framhald). „Þýzka-bryggja“. Vörugeymsluhús frá timum Hansa-kaupm. Heima er bezt 275

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.