Heima er bezt - 01.08.1960, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.08.1960, Blaðsíða 24
Fjóla í Vopnafirði, 6 ára, Hrönn í Súgandafirði, Laufey í Hléskógum og Ingimundur Arngrímsson biðja öll um ljóðið Snjókarlinn. Höfundur er Númi, en lagið eftir A. í. — Soffía og Anna Sigga hafa sungið lagið í útvarp. Komdu með mér út, allt er hvítt af snjó, hér í stærðar hús höfum efni nóg, gröfum inn í skafl göng og reisum þak, þar við höfum skjól, það er fyrirtak. Húsið okkar verður háreist og hvítt. Húsið okkar verður hreinlegt og bjart, og hér við getum skrafað margt. Ef þú kemur út, allt er hvítt af snjó, hér í stærðar hús höfum efni nóg. Heimasæturnar á Hofi, sem ekki vilja segja til nafns síns, biðja um ljóðið: Er ekki heimurinn svona. Ljóðið er eftir Núma. — Lagið er eftir Lúllu Nóa- dóttur. Þú kvaddir og baðst mig að bregðast ei þér, þó burtu þú færir urn tíma frá mér, en stundin er löng þeim sem einmana er og alltaf má bíða og vona. Og síðan ég alls ekki um þig neitt veit, og ætla að nýju í hamingjuleit, ég læt ekki aftra mér eldgamalt heit, ó, er ekki heimurinn svona. Þó séu þeir margir, er syrgja og þjást og saltni þess vinar, sem eitt sinn þeim brást, þá leita að gleði og yndi og ást hvre einasti maður og kona. Og þrá ekki allir að elska svo heitt og unaðarins njóta, sem lífið fær veitt, þó úr þessu verði svo alls ekki neitt. Já, er ekki heimurinn svona. Eitthvert annað kvöld eflaust gætum við búið snjókarl til hérna út við hlið, sterklegur og stór stæði hann þar vörð, meðan hvítur snjór hylur græna jörð. Snjókarlinn er sætur svört augun með. Snjókarlinn um nætur margt getur séð. Snjókarlinn hann grætur ef sólin skín og þá hann missir augun sín. Sterklegur og stór, stendur hann þó vörð, meðan hvítur snjór hylur græna jörð. Hér kemur svo að lokum ljóðið: Lukta-Gvendur. Ljóðið er eftir Eirík Karl Eiríksson, en lagið er gamalt amerískt lag, sem heitir á ensku: „The old lamplighter“, en Sigrún Jónsdóttir hefur sungið lag og ljóð á hljóm- plötu fyrir nokkrum árum. Hann veitti birtu’ á báðar hendur um bæinn, sérhvert kvöld, hann Lukta-Gvendur, á liðinni öld. Grétar Geirsson og Guðný Hildigunnur biðja urn ljóðið: Kom heim, vinur, kom heim. Höfundur Ijóðs- ins er Jón Sigurðsson. Helena Eyjólfsdóttir hefur sung- ið lag og íjóð á hljómplötu. Kom heim, vinur, kom heim, Kom heim, vinur, kom heim, Ég hugsa um þig enn, því þú kemur senn. Kom heim, vinur, kom heim, Er fannimar leysti, hann fór út í lönd, að finna gæfuna’ á ókunnri strönd, loforð hann gaf mér, að leita mín senn lágt út í blæinn, hvísla ég enn. Kom heim, vinur, o. s. frv. Þó skipið hans sé á hafinu eitt, ég hræðist ekki, hann sakar ei neitt. Ást mín skal ná til hans út yfir sæ, ég til hans sendi kveðju með blæ: Kom heim, vinur, o. s. frv. Af gráum hærum glöggt var kenndur við glampa’ og ljósa fjöld, hann Lukta-Gvendur, á liðinni öld. Hann heyrðist ganga hægt og hljótt um hverja götu fram á nótt. Hans hjartasárin huldi bros á brá. Ef ungan svein og yngismey hann aleinn sá, hann kveikti ei, en eftirlét þeim rökkurskuggann blá. I endurminning, æskutíð hann aftur leit, er ástmey blíð hann örmum vafði fast, svo ung og smá. Enn er mörgum bréfum ósvarað, og erfiðlega gengur mér að hafa upp á sumum dægurlagatextunum, sem um er beðið. Þetta verður að nægja að sinni. Stefán Jónsson. 276 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.