Heima er bezt - 01.08.1960, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.08.1960, Blaðsíða 34
441. Innan stundar er ég kominn ofan 442. Hvað er um að vera þarna fyrir á fljótsbakka. Mikki stendur þar og handan? Ég get ekki staðið aðgerðalaus. sperrir eyrun. Ég heyri grófa karlmanns- Ég svipast um með fljótinu og rekst á rödd hinum megin fljótsins og rétt á bátkænu. Ég ýti henni á flot og sezt við eftir stráksrödd, sem hrópar á hjálp. árar, en Mikki er frammi í stafni. 443. Þegar ég er kominn yfir um, verð ég einskis var. Allt er kyrrt og hljótt. Ég læðist milli trjáa og runna og sé allt í einu ljós. Ég kem að litlu íbúðarhúsi, og þar eru dyrnar galopnar. 444. Ég læðist nú að dyrunum og gæg- ist inn um þær. Inni á stofugólfinu hægra megin liggur gamall maður og kveinkar sér. Það er auðsýnilegt, að hann hefur átt við eitthvert ofurefli að etja. 445. Ég flýti mér samstundis inn og ætla að reyna að hjálpa gamla mann- inum. En hann bandar þá hendinni á móti mér og kallar upp: „Hirtu ekkert um mig! Ég spjara mig. En hlauptu og sjáðu, hvert þorparinn fer með Láka!“ 446. Ég hika andartak, en karlinn verð- ur mjög aumur. Hann segir hálfgrát- andi: „Ég skal segja þér allt seinna. En það er einhver, sem dró Láka systurson minn burt með sér. Flýttu þér á eftir honum!“ 447. Mér skilst óðara, að ég verði að reyna að hjálpa karlinum. Ég bið hann um einhver plögg af drengnum, sem hann hafi notað nýlega. Og þegar ég hef fengið þau, læt ég Mikka þefa ræki- lega af þeim. 448. Síðan hvet ég Mikka til að þefa upp spor drengsins. Hann rekur upp hvellt gert og rýkur óðara út um dyrn- ar og þeytist þefandi fram og aftur og finnur óðara sporin. Ég hleyp á eftir honum. 449. Það er vandalaust fyrir Mikka að rekja nýgengin sporin. Og eftir hálfrar stundar hlaup erum við komnir ofan að sjónum. Og þarna spölkorn frá landi sé ég bát vera að leggja að skipi, sem liggur fyrir akkerum.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.