Heima er bezt - 01.08.1960, Qupperneq 22
Daginn eftir birtist myndin og viðtalið á forsíðu í
„Betgens Tidende".
Eitt það fyrsta sem vekur athygli, þegar stigið er á
land í Björgvin, er svonefnd Þýzkabryggja og Hákon-
arhöllin, sérkennilegar stórbyggingar frá gömlum tíma.
Þýzkabryggja er fimm til sex hæða raðhús, brúnmál-
uð í burstastíl, minna nokkuð á gamla héraðsskólann
á Laugarvatni, hvað byggingarstílinn snertir. Þetta
munu vera gömul vörugeymsluhús frá dögum Hansa-
kaupmanna. Mikill eldsvoði lagði Þvzkubryggju í rúst
árið 1958, en er nú endurbyggð í sínum upprunalega
stíl. Hákonarhöllin, fornfáleg en stórglæsileg bygging
frá því um 1400, varð fyrir miklum skemmdum í
sprengjukasti Þjóðverja í síðustu heimsstyrjöld. Nú var
að mestu lokið að gera við skemmdirnar.
Fyrri hluta dagsins notuðum við til þess að skoða
borgina. Kona mín og dóttir höfðu ekki heldur komið
fyrr til Noregs. Björgvin er afar falleg og snyrtileg
borg. í miðri borginni er allstór tjörn, eins og hjá okkur
hér í Reykjavík. Þótt borgin sé gömul, eru þar mörg
opin svæði og skemmtigarðar. Trjárunnar og blóma-
breiður eru þar á hverju strái, og gefa umhverfinu líf og
lit. Sums staðar gnæfa upp úr gömul, hávaxin tré, eins
og risar á verði.
Víða gefur að líta myndastyttur og minnismerki. Má
nefna myndastyttur af skáldunum Björnstjerne Björn-
son og Nordal Grieg, og undrasnillingunum á sviði tón-
listarinnar, Edvard Grieg og Ole Bull. Minnismerkið
af Ola Bull er jafnframt gosbrunnur. Ole Bull stendur
hnarrreistur með fiðluna sína, baðaður í úða vatnsins.
í tjörninni við fætur Ole Bull er líkan af ferlegum nykri,
kannski á það að tákna, að Ole Bull hafi seitt skrímslið
úr fossinum með töfrandi tónum fiðlunnar. Ole Bull
var stofnandi leikhússins í Björgvin, og stærsti hljóm-
leikasalur borgarinnar ber nafn hans.
Rétt utan við Björgvin var heimili skáldsins Nordal
Grieg, og nú er húsið varðveitt sem minjasafn, og hef-
ur við engu verið hróflað, síðan hann bjó þar. Grieg
var mikill íslandsvinur og dvaldi hér á stríðsárunum.
Eins og margir muna, var flugvél hans skotin niður yfir
Berlín árið 1943. Nordal Grieg var þá aðeins liðlega
fertugur að aldri. Mikið hefur verið þýtt af Ijóðum
hans á íslenzku, og einnig skáldsagan „Enn er jörðin
ung“.
Allir þekkja höfuðskáld Norðmanna, Björnstjerne
Björnson. Talsvert hefur verið þýtt eftir hann á ís-
lenzku. Unglingasaga hans „Sigrún á Sunnuhvoli“ er
íslenzkum lesendum, ungum sem gömlurn, einkar kær.
Mörg fleiri minnismerki eru ótalin á ýmsum torgum
og opnum svæðum í borginni, t. d. minnismerki um sjó-
menn í Björgvin, sem týndu lífinu í síðustu heimsstyrj-
öld.
Og síðast en ekki sízt vil ég nefna myndastyttu snill-
ingsins Gustav Vigeland af Snorra Sturlusyni. Það mun
vera afsteypa þessarar styttu, sem Norðmenn gáfu Is-
lendingum, og sett var upp í Reykholti.
Eitt fjallanna sjö, sem umlykja Björgvin, heitir Flöy-
en. Uppi á fjallinu er stórt veitingahús, sem mikið er
sótt af ferðamönnum.
Engin farartæki eru tiltæk upp fjallið nema sporbraut
Myndin sern birtist í fíergens-Tidende af höfundi meö konu og dóttur.
274 Heima er bezt