Heima er bezt - 01.08.1960, Side 33
Sleppiá ekki tækifærinii til aá
eignast gónteppi frá A eíaicuium*
4.
Þá er komið að síðasta þætti getraunarinnar, sem
hófst í júní-heftinu. Það er ekki á hverjum degi sem
tækifæri gefst til að eignast alveg ókeypis tólf fer-
metra gólfteppi frá hinum listrænu iðnaðarmönnum
hjá ,,Vefaranum“ h.f. á Kljásteini í Mosfellssveit.
í júní- og júlí-blöðunum sáuð þið myndir af fjór-
urn kunnum þjóðskörungum úr hópi hinna svo-
nefndu „Aldamótamanna“. Hér sjáið þið svo loks
myndir tveggja manna í viðbót úr þessum glæsilega
hóp. Nú er vandinn ekki annar en sá, að rita niður
nöfn allra þessara sex „Aldamótamanna“ í þeirri
röð, sem myndirnar birtust af þeim hér í blaðinu.
Síðan sendið þið lausnina í umslagi, auðkenndu
með orðinu „ALDAMÓTAMENN“, til „Heima er
bezt“, pósthólf 45, Akureyri.
Eins og áður birtum við hér nöfn nokkurra
„Aldamótamanna", ykkur til hægðarauka:
Skúli Thoroddsen
Tryggvi Gunnarsson
Elín Briem
Magnús Stephensen
Hannes Hafstein
Þorsteinn Erlingsson
Stefán Stefánsson, skólameistari
Arnljótur Ólafsson
Þorbjörg Sveinsdóttir
Benedikt Sveinsson
Björn Jónsson
Valtýr Guðmundsson
Aðeins þeir, sem eru fastir áskrifendur að „Heima
er bezt“, geta tekið þátt í getrauninni. Ráðningar
þurfa að hafa borizt afgreiðslu blaðsins fyrir 20.
október næstk. Úrslitin í getrauninni verða birt í
nóvember-hef tinu.
Auk hinna glæsilegu fyrstu verðlauna, verða veitt
5 auka-verðlaun. Verða það eintök af hinni bráð-
skemmtilegu og fróðlegu bók Jónasar Jónssonar frá
Hriflu „Aldamótamenn".
Heima er bezt 285