Heima er bezt - 01.08.1962, Síða 6

Heima er bezt - 01.08.1962, Síða 6
HINRIK ÍVARSSON, MERKINESI: Símon oö Banssímon M'argir halda því fram, að allir refir séu eins, tortryggnir,-slægir og grimmir, og drepi af einskærri illsku og morðfýsn. Sagðar eru hroðalegar sögur af aðförum þeirra við fugla og fé. Ekki skal því neita, að oft virðist refurinn vera harðlyndur, en við hverju er að búast af villtu rándýri gegnum aldaraðir. En það er nú síður en svo, að allar tófur séu eins, þær eru eins ólíkar í lundarfari eins og mennirnir. Sum- ar eru ótortryggnar, glaðlyndar og nægjusmar, og éta gjarnan það sem þær finna, en fást lítið við veiðiskap. Þessi dýr eru aðallega þar sem þau geta gengið að sjó og eru í flestum tilfellum meinlaus að öðru en því, að undan þeim geta komið harðlynd og grimm dýr, vegna þess hve tegundirnar eru orðnar blandaðar. Elvítrefir og blárefir auka kyn sitt saman í belg og biðu og yrðl- ingar undan hvítum dýrum eru að jöfnu mórauðir og svo öfugt. Ég hef átt þess kost að sjá hin undarlegustu mat- föng, sem refir hafa komið með til barna sinna. F.itt sinn skaut ég hvíta læðu, sem var að koma heim, og virtist mér hún svo undarlega löng í lágnættisbirtunni, að með ólíkindum væri. En þegar ég kom þar sem hún hneig að velli, sá ég hvers kyns var, hún var með stærðar hveitibrauðssneið í kjaftinum, með smjöri og öllu tilheyrandi. Oðru sinni kom refur heim á gren á laugardagskvöldi, og dámaði mér ekki að því sem hann ætlaði að leggja til í sunnudagsmatinn, því þetta var talsverð þjós úr drafúldinni hnísukápu, vandlega saman rúllað eins og lundabaggi. Við sama greni fann ég góðan bita af söltuðu fleski, en ekki var að sjá að unglingunum hafi fallið það, því að það var ekkert nagað. Þessi dýr hefði verið mjög auðvelt að fella með eitri, því að það sem þau færðu yrðlingum sínum var aug- ljóst að þau töldu góðan og hollan mat. Öðru máli gegnir með þau dýr, sem helzt éta ekki nema það sem þau hafa sjálf veitt (veiðidýr). Þau eru mjög tortrygg- in og snerta tæplega það, sem maðurinn hefur handleik- ið, en fara heldur óravegu til veiða, en að leggja sér til munns auðfengin hræ. Sennilegt er, að sum hinna síðarnefndu dýra verði „bitdýr“, eða „bítir“, sem kallað er, og geta margar orsakir verið til þess, svo sem að dýrið finni kind, sem ekki getur varið sig, hungrið sverfur að, og komist tóf- an á að drepa kindur er hætt við að tilhneigingin vaxi. Líka mun það vera til þegar yrðlingar stálpast, að ref- urinn taki þá með sér í veiðiferðir, og hafi nú faðirinn ráðizt á lamb, og óvitinn horft á, og síðan gætt sér á því, er ekki von að vel fari. Sjaldnar mun það vera að læðurnar kenni yrðlingun- um að veiða, og kernur það af því, að þegar yrðling- arnir fara að stálpast, verða þeir svo aðgangsharðir, að móðirin sér ekki annað fært en venja þá af „brjóstinu“, og skeður það með þeim hætti, að þegar hún kemur með ætið í nánd við grenið, og hefur þá gjarnan farið vindmegin við það, en yrðlingarnir eru ótrúlega fljótir að venjast á að finna þefinn af henni, gaggar hún á sérstakan hátt þegar hún er komin þangað sem hún vill leggja ætið af sér, og koma þá krakkarnir hlaup- andi í einni bendu. Oft sundrar hún veiðinni fyrir þá og hendir tætlunum góðan spöl frá sér, til og frá, en þá ná flestir yrðlingarnir í eitthvað, þó að þeir harðleikn- stu og tápmestu nái oftast í mest, því venjulega éta þeir ekki strax, heldur reyna að safna sem mestu í gin- ið og slær þá oft í snarpa brýnu, en þegar ekki er von á meiru, stökkva þeir af stað, og reyna að vera út af fyrir sig meðan þeir éta, og komi þeir því ekki í sig í bili, eða fellur það illa, klóra þeir holu og grafa afgang- inn. Fer þá oft svo, að þeir sem minnst hafa fengið fara að leita á meðan eigandinn sefur vambfullur og ánægður. Oftast nær leggst læðan skammt frá og horf- ir á, en laumast síðan burtu, áður en yrðlingarnir eru búnir með naslið, til þess að þeir nái ekki í hana, en ef einhver ætlar að elta hana notar hún sérstakt hljóð, sem yfirleitt dugar til þess að öll hersingin flýtir sér að greninu, og þá sér í rass við rass inn úr dyrunum. Refurinn, faðirinn, veit lítið af börnum sínum með- an þau eru ung, eða ekki fyrr en þau eru farin að vappa út. Þetta kemur til af því, að það er líkt og með kött- inn, þó að högni og læða liggi saman í bóli og vel fari á með þeim, getur læðan orðið mjög grimm og snefsin við bóndann þegar hún á unga kettlinga. Refurinn má alls ekki koma inn í grenið þegar svo stendur á, heldur leggja veiðiföngin niður í hæfilegri fjarlægð. Stundum kemur hann þannig að greni, að vindinn leggi af honum heim, og kemur þá læðan oft til móts við hann og tekur við ætinu, en hann er hnarreistur og hreykinn, þótt þakkimar séu ekki sýnilega miklar. Sé nú læðan farin að slá slöku við, og farin að ferð- ast, heldur refurinn oftast áfram í hálfhring, eftir laut- um, sem liggja kringum bústaðinn, þar til hann hefur 262 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.