Heima er bezt - 01.08.1962, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.08.1962, Blaðsíða 7
vindstöðu af heimilinu, og þegar hún kemur nú ekki, gengur hann ef til vill rétt að opinu og gaggar þrjú til fjögur gögg, og sé þetta refur, sem ekki hefur búið fyrr, er erfitt að lýsa undrun hans, þegar út úr holunni koma sex eða sjö hnoðrar, ýmist mórauðir eða grá- botnóttir. Einatt situr rebbi í miðri þvögunni og virð- ist hafa stakasta yndi af ólátum þeirra, og fer oft að leika sér við þá, þegar máltíðinni er lokið. Undarlega er þeim manni farið, sem ekki finnur til, er hann þarf að raska þessari ósviknu heimilisgleði, þar sem hann bíður í launsátri, öruggur um sitt eigið líf og limi, hafandi þá beztu fáanlegu byssu, og valin skot. Og þegar maður hefur hleypt af, breytist sjónarsviðið jafn snemma í dauða og kvöl, faðirinn liggur í blóði sínu, og ef til vill eitthvað af yrðlingunum líka, en hinir, sem sloppið hafa, þjóta eins skelkaðir og lítil tófubörn geta orðið inn í holuna. Ég verð eltki reiðari en þegar menn eru að ala á öðrum til framgöngu í of- sóknum gegn refnum, og lýsa með mörgum orðum hversu hroðalegt sé að sjá hvernig tófan kvelji og mis- þyrmi saklausum sauðkindum, ræni fugla, drepi unga þeirra og þá sjálfa. Ég held því fram hér, eins og oft áður, að þessar ræður og skrif eru ekki eingöngu af mannkærleika sprottin, heldur af því að verið er að vernda sína eigin buddu og bakvasa. Maðurinn er þannig gerður, að hann þolir illa að keppt sé við hann um fæðuna, eða önnur gæði lífsins, og þá fyrst kastar tólfunum, ef ein- hver dýrategund ræðst á lífsbjörg hans, svo sem sauð- kindina, og vegna þess, og þess eins, hefur tófan verið hötuð af sauðfjáreigendum um aldaraðir. Þó að ég hafi fellt margar tófur, get ég aldrei hatað hana, frek- ar en annað af verkum skaparans. Aldrei hefur hún lesið biblíusögur eða lært neinn siðalærdóm, hún hefur því engin boðorð brotið, aðeins barizt með þeim vopn- um, sem henni voru gefin í upphafi vega til lífsbjarg- ar. Hitt er annað mál, að maðurinn reyni að hamla á móti því að henni fjölgi svo að hún gangi honum yfir höfuð. Ég vil aðeins að við könnumst við hvers vegna við gerum það, en séum ekki að skreyta okkur með ímvnduðum mannkærleika, því öll veiði á refum oar / 1 O minkum er gjörsamlega miskunnarlaus, ef árangur á að verða góður. Mér dettur í hug hið snjalla kvæði Arnar Arnarson- ar „Refur“ (Illgresi). Hann skildi til fulls þessa krókó- dílaviðkvæmni, og hæðist napurt að mannúðinni, sem fordæmt hefur refinn algjörlega, „.... og svo er hann ekki ætur, sem út yfir tekur þó“. Og enn fremur: svo langt gengur mannúð manna, sem matar- vonin nær“. Ég hef ávallt haldið því fram, að notkun eiturs fyrir refi, geti verið beggja handa járn. Við fellum mein- lausustu dýrin (hrææturnar), fyrst og fremst með því, en hinir tortryggnu og varfærnu (veiðidýrin), snerta það tæplega, nema einskis annars sé kostur, og það verður seint í sama tíðarfari og hér hefur verið nú um langt skeið. Að vísu get ég ekki fært fram neinar vott- festar sannanir, en skírskota aðeins til almennrar skyn- semi og dómgreindar. Nú vil ég segja ykkur örstutta sögu af reynslu minni, og hef ég dregið mínar ályktanir af því, og mörgu öðru svipuðu, á undanförnum árum. I vor sem leið vann ég greni hér í Hafnaheiði í svo- kallaðri Mönguselsgjá, á aðeins fjórum tímum frá því að ég fór að heiman og þar til ég kom heim aftur. Nokkrir yrðlingar voru úti með læðunni, er ég skaut hana, og í sömu andrá skaut ég einn yrðhng, en heppn- aðist að ná öðrum lifandi. Eftir að bæði dýrin voru fallin, sem gerðist á sama hálftíma, vildi félagi minn að ég freistaði að kalla út þá sem inni voru. Taldi ég mjög ólíklegt að slíkt tækist, þeir myndu vera smeykir eftir skotin, en vissi þó að þeir höfðu ekld haft vind- stöðu af mér, og ég hafði farið mjög varlega þegar ég fjarlægði tófuna og yrðlinginn. Greip ég því kjóa, sem ég hafði handbæran, settist við holuna, brá vinstri hendi ofan við efri brún holunnar, en hélt kjóanum framan við með hægri hönd. Félagi minn var fast hjá mér með poka, ef ske kynni að ég næði einhverjum. Gagga ég nú matargagg og bráðlega sé ég á eyru, bregð vinstri hendi eldsnöggt niður, og hremmi eigandann í hálstaki, og í því ég fæ félaga mínum hann, birtast önnur eyru, höndin niður og upp aftur með annan, og þá sé ég um leið á eyru þess þriðja, en þá fór í verra. Hef máske sleppt of snöggt þeim seinni, því nú var um að gera að vera handfljótur, en félagi minn náði ekki nógu góðu kverkataki svo að „djöfsi“ rak upp skaðræðisskræk, og í sömu andrá ætlaði ég að grípa þann þriðja, en greip í tómt, litli púkinn skauzt eldsnöggt aftur á bak, skynj- aði hættuna af hræðsluhljóði bróður síns. Hversu ást- úðlega sem ég gaggaði, tókst mér ekki að tæla hann út, og var nú ekki um annað að gera, en leggja tvo boga í grenið og byrgja giórulaust. Bogana lét ég handleggs- lengd inn, en fimm bita úr kjóanum framan við munna- brún. í sjö daga vitjaði ég um bogana og bætti við agnið, og lét allt það gómsætasta sem ég vissi að litlum rebb- um þykir gott, en aldrei var boga hleypt og aldrei agnið hreyft. Reyndi ég nú að breyta afstöðu boganna, og gat lagt þann þriðja til hægri, lengst út við klöpp- ina. Áttunda morguninn var vesalingurinn fastur og fót- brotinn. Steinþegjandi var hann meðan ég var að reyna að losa bogann úr sjálíheldu, sem hann hafði dregizt í, en reyndi eftir mætti að bíta mig, ég var fljótur að stytta þjáningar hans. Tvo bræður hans lét ég lifa, ef ske kynni að ég hefði not af þeim síðar, en svo varð þó ekki, og síðan tímdi ég ekki að lóga þeim þegar til kom, en lét þá í búr báða saman. Litlu refina mína skírði ég Símon og Bangsímon. Bráðlega kom í ljós, að þeir voru eins ólíkir í lund, og mest gat verið. Símon varð nærri strax elskur að mér, lék sér og gerði „hunda- kúnstir“ þegar hann sá mig koma, át strax úr hendi Heirna er bezt 963

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.