Heima er bezt - 01.08.1962, Síða 16

Heima er bezt - 01.08.1962, Síða 16
hann róið þann dag, en látið Þórarin stýra. Þórarinn hafði á yngri árum verið vel kunnugur sjólagi við hina hafnlausu sanda Öræfanna, kom það sér vel nú, og tókst þeim lendingin vel. Ekki voru þau verr á sig kom- in en svo þegar þau komu að landi, að þau björguðu skipinu undan sjó. Að vísu var Bergur þá látinn, og er hætt við að hann hafi ekki verið eins vel búinn að hlífðarfötum og hin voru, því vafasamt er að svo ungur maður hafi átt almennileg skinnklæði, og Konráð, sem hafði hrotið útbyrðis um nóttina og aðeins bjargazt fyrir snör hand- tök Rafnkels, virtist einnig dauður. Þeir voru því born- ir upp í fjöruna og lágu þar meðan skipið var sett. Þegar því var lokið, og þeir ætluðu að fara að ganga frá líkunum áður en haldið væri til byggða, tók Árni eftir því, að hann var svo illa skóaður að hann myndi ganga á (r= ganga á berum sér) áður en þangað kæmi. Konráð var í rnjög góðum skinnklæðum, stakk, skinn- haldi og skinnsokkum, og kom síðar í ljós að hann hafði ekki orðið alvotur þó hann lenti í sjóinn. Árna varð það nú fyrir, að hann fór að færa Konráð úr öðr- um skinnsokknum og hefur sennilega hreyft hann eitt- hvað til meðan á því stóð, því þegar hann var langt kominn með að ná skinnsokknum af Konráði, lifnaði karl allt í einu vel við, og segir: „Það er ekki lítil þjófsnáttúra í honum Árna núna. Fallega hefði hann farið með mig, hefði ég verið dauður.“ (Aðrir segja: „Sama hefði hann gjört, þó ég hefði verið dauður.“) Ekki var Konráð þó svo hress að hann gæti gengið, og ætluðu félagar hans því að bera hann, og má því nærri geta að þeir hafa verið fegnir þegar þeir sáu til fjörumannanna. Þess má þó geta að Konráð náði sér það vel eftir þetta að hann er talinn vinnumaður í manntalinu 1850, og er þá á Skálafelli hjá Árna Arngrímssyni, en hann var þá orðinn bóndi þar. . Gísli sagðist mundi hafa dugað eitt dægur til, ef þurft hefði. Þó höfðu þeir Rafnkell og Gísli báðir legið nokk- urn tínia um veturinn vegna veikinda, en vel má vera, að einmitt þess vegna hafi þeir farið betur búnir í þennan róður en ella hefði verið, því óhugsandi er að þeir hefðu þolað hrakninginn svo vel sem raun varð á, ef þeir hefðu ekki verið vel búnir og skinnklæddir. En sagt er að surnar skipshafnir, sem reru frá Höfða- sandi þennan örlagaríka dag, hafi skilið eftir skinn- klæði sín í landi. Menn höfðu ótrú á að hafa með sér mat á sjóinn, töldu að þá fiskaðist síður, en sumir höfðu þó með sér blöndukút, og er líklegt að Rafnkell hafi gjört það. Á Hofsnesi var á þessum tíma tvíbýli, og stóðu bæ- irnir saman, þar sem nú eru fjárhúsin, og var fremur lítið tún í kring, varið með torfgarði. Rafnkell stökk yfir hann, — hefur þó sennilega stutt höndunum á hann um leið, — og var það lengi í minn- um haft sem mikið afrek, eins og það var, ef miðað er við aðstæður. Rétt í sama mund og þau komu að bænum, bar þar að aðra gesti; var þar kominn Magnús Stephensen sýslumaður (faðir Magnúsar landshöfðingja). Hann var sonur Stefáns Ólafssonar Stephensen amtmanns, en alinn upp hjá Magnúsi konferenzráði, föðurbróður sínum. Hann gaf þeim Margréti Þorvarðardóttur konu Þor- láks og Þorbjörgu Sigmundsdóttur konu Eiríks (hún var frá Hofi) það ráð, að elda graut handa komumönn- um, kvað þeirn síður mundi verða illt af honum en kjöti, eftir svo langa föstu. Ekki höfðu Rafnkell og Gísli lengi hvílt sig, þegar þeir töldu sig nægilega hressa til að halda af stað heim til sín, og er líklegt að þeir hafi verið reiddir áleiðis, en þó ekki lengra en yfir Jökulsá (það er um 38 km vegalengd og er litlu styttra þaðan að Uppsölum); eftir það fóru þeir gangandi. Rafnkell gisti á Reynivöllum, enda komið fram á nótt þegar þangað var komið, en Gísli, sem átti nokkru skemmra heim, hélt áfram og kom með morgunsárinu að Uppsölum. Var hann þá orðinn svangur, og varð það fyrst fyrir að fara í eldhúsið og skera sér vænan bita af sjálfætu hangikjöti; stýfði hann það úr hnefa á leiðinni í bæinn. En þegar hann var nærri kominn að bæjardyrum, opnaði Guðrún kona hans bæinn, og varð þar heldur fagnaðarfundur. Guðrún var dóttir Bjarna Jónssonar bónda í Skaftafelli og konu hans Guðnýjar Þorsteins- dóttur, en hún (Guðný) og Gísli voru systkinaböm. Löngu síðar, eftir að Gísli hafði farið sína hinztu för, var haldin veizla í Suðursveit. Bar þar margt á góma, og var meðal annars talað um hvort það gæti verið satt að menn grétu stundum af gleði. Þá sagði Guðrún: „Jú, það er satt. Það varð mér, þegar ég mætti honum Gísla mínum á hlaðinu, um morguninn, þegar hann kom úr hrakningnum forðum.“ Spurði þá einhver hvort hún hefði ekki fyrst haldið að hann væri svipur. „Nei,“ svaraði Guðrún. „Ég vissi að svipir eta ekki hangikjöt.“ (Að mestu eftir frásögn Stefáns Benediktssonar bónda í Skaftafelli, en nokkur atriði þó tekin eftir annarra sögn, og sumt eftir rituðum heimildum, og eru þær, auk þeirra sem getið er í upphafi: Manntal á ís- landi 1816, Annáll nítjándu aldar og tíundaskrár úr Öræfum.) 272 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.