Heima er bezt - 01.08.1962, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.08.1962, Qupperneq 19
Húsmœðraskólinn að Laugum. orðinn þurr. Næstu tvær til þrjár vikurnar bar lítið á fjölskyldunni, en er leið á sumarið, fór hún að koma heim að bænum og baða sig í moldarveginum bak við húsið. Stundum komu fleiri fjölskyldur með. Voru oft tald- ar þarna 15—20 rjúpur í einu á kvöldin, þegar veður var þurrt. Á nóttunni hélt fjölskyldan sig oftast í kringum bæinn, og stundum vöknuðum við, við skæl- urnar í ungunum, eftir að rjúpan var farin að venja þá undan sér. Sumarið 1954 endurtók sagan sig. Aftur komu rjúpu- hjón og settust þarna að. Við gizkuðum á að það væri sama rjúpan, því að hún hagaði sér eins og hún ætti þarna heima. Hún verpti nú aðeins enn þá nær bæn- um, um það bil 40—50 metra frá húsveggnum. Hún var enn þá gæfari en sumarið áður, og fór nú ekki af hreiðrinu, þó að henni væri strokið um bakið og ekki heldur, þótt 10—20 manns kæmu að hreiðrinu í einu. Myndir voru teknar af henni með ungahópinn á stétt- inni við bæjarvegginn. Það sumar var hún merkt, svo að nú var hægt að \ fylgjast betur með ferðum hennar. Síðasthðið vor kom hún heim að bænum strax í apríl, ásamt hópi af rjúp- um og settist að. Eftir því sem á vorið leið, tíndust hinar burtu og tóku sér bólfestu í nágrenninu. Síðast voru ekki aðrar eftir en Kata og karl hennar. Þau undu sér vel í garðinum við bæinn, og ef aðrir karrar létu sjá sig þar, varði karrinn Kötu sína með miklum hetju- skap, fyrir þessum áleitnu gestum. En einn góðan veð- urdag, kom ung og falleg rjúpa í garðinn, og þá var nú annað uppi á teningnum. Karrinn elti hana og reyndi að gera hosur sínar grænar fyrir henni, en þegar Kata nálgaðist, rauk hann að henni með hvæsi og vonzku, og rak hana í burtu, en gekk á eftir hinni með hneigingum og blíðlegu kurri. Er ekki að orðlengja það, að þau settust þarna að, en Kata þorði ekki að láta sjá sig þar heima við fyrst á eftir. En ekki löngu seinna var tekið eftir því, að Kata var farin að koma heim í varpann og láta eins og hún var vön, þegar hún lá á eggjunum. Eitt kvöldið var henni veitt eftirför, þegar hún sneri til hreiðurs síns. Og viti menn! Hún hafði þá gert sér hreiður í garðbroti í túninu og lá þar á 12 eggjum. Hin skötuhjúin voru nokkurn tíma heima í garðin- um, en um síðir gerði rjúpan sér hreiður skammt frá. Karrinn sat lengst af á reykháfnum á húsinu og þegar Kata kom heim til að bíta, vappaði hann í kringum hana. — Eins þegar hin rjúpan fór af eggjunum, flaug hann alltaf til hennar og þóttist auðsjáanlega vera kvæntur báðum. Nú var Kata ekki eins mikið heima við bæinn og áður, en þó kom það fyrir, þegar bílar komu, að þeir urðu að stanza á meðan hópnum var smalað út af veginum. í haust flaug Kata til fjalla með hópinn sinn. Hvort við sjáum hana aftur er óvíst, en hvort sem hún kemur oftar eða ekki, mun minningin um hana geymast. Á. J." Þá kemur hér að lokum smá gamanþáttur frá sama skólaári, er nefnist: / snjóflóði. Höfundurinn lætur ekki nafns síns getið, en merkir ritverkið upphafsstöfun- um Þ. P. „Ég er staddur í fjallshlíð. Ég geng hægt, því að hlíðin er mjög brött, og færðin vond. Allt er þakið af snjó, svo langt sem augað eygir og á klettunum fyrir ofan mig eru snjóhengjur. Ég held áfram, en færðin sækist seint, sökum ófærðar og einnig vegna þess, hve fjallið er bratt. Það er áliðið dags og byrjað að skyggja. Ég reyni að flýta mér, til að komast yfir erfiðasta kafla leiðarinnar, áður en myrkrið skellur á að fullu og öllu. Ég lít um öxl, til að sjá hvað mér verður ágengt. „Jú, víst hef ég þokazt áfram,“ tauta ég. — Það er tekið að rökkva. Draugalegum skugga slær á klettabeltið fyrir ofan mig, og gerir umhverfið drauglegt. Ég er venju- lega ekki myrkfælinn, en það liggur við að ég sé það núna. Köldum svita slær út um mig allan, en ég reyni að harka af mér, eins og ekkert hafi í skorizt. Ég geng áfram og nú er ég einmitt að komast í mesta brattann. Snjórinn er þungur fyrir fótum mér, og stundum skrikar mér fótur. Ég renn til, fell, og rís skjótt upp aftur. Tunglið veður í skýjum og stundum birtir, svo að glitrar á snjóinn allt í kringum mig. En það dimmir jafnharðan aftur, og verður þá enn skuggalegra en áð- ur. Ég er farinn að lýjast, svo að ég hugsa mér að hvíla mig um stund. Ég tek fram vasaklútinn, til að þurrka mesta svitann úr andlitinu á mér, síðan sezt ég niður og blæs mæðinni stundarkorn. Aftur kemur þessi bannsetta myrkfælni, sem smýgur inn í huga minn. Ég reyni að hugsa um annað, til að leiða hugann frá myrk- fælninni. Allt í einu heyri ég drunur miklar. Mér verð- ur hverft við, og köldum svita slær út um mig allan. En nú ranka ég við mér. Ég þýt á fætur og hrópa í örvæntingu: „Snjóflóð!“ Æsandi drunur berast mér að eyrum. Ég hef ekki farið, nema nokkur skref, þegar snjóflóðið nær mér og slengir mér flötum. Ég grefst undir snjóflóðinu. Ekki veit ég, hversu djúpt ég er Heima er bezt 275

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.