Heima er bezt - 01.08.1962, Page 23

Heima er bezt - 01.08.1962, Page 23
I Karlsen reif blað úr vasabók sinni og hripaði á það nokkur orð. „Viltu ekki láta það í veskið hennar? Þá losna ég við allar skýringar,“ sagði bílstjórinn. „Geturðu staðizt freistinguna að lesa það, þó ég hafi ekkert umslag?“ spurði Karlsen og seildist í veski Sól- veigar. „Já, ef ég vil, en ég lofa engu,“ sagði bílstjórinn glottandi. „Eg lofa að minnsta kosti að láta það á sama stað aftur.“ — „Hvað var um að vera þarna?“ spurði Ingunn, þegar Karlsen kom aftur til þeirra. Hún sá að honum var brugðið. „Blindfull skötuhjú, sem bílstjórinn var að láta sofa úr sér,“ svaraði hann. „Þekktirðu þau?“ Karlsen brosti aðeins, en beit svo á vörina. Það var ekki fyrr en hann var kominn langt burt frá bílnum, að hann svaraði lágt: „Já, séð hef ég þau áður.“ — „Nú förum við út að aka,“ sagði Karlsen eftir mat- inn. „Veðrið er svo dásamlegt.“ „Því ekki að fá sér bað einhvers staðar?“ stakk Ásta upp á. Karlsen var því strax samþykkur, og Ingunni var alveg sama, hvert farið væri. Þau óku austur og niður að sjó, þar sem hvít sandfjaran lá og breiddi úr sér í sólskininu, eins og hún biði eftir þeim. Þau skildu bílinn eftir spölkorn fyrir ofan sandinn. Þar ætluðu þær nöfnurnar að liggja í sólinni, meðan þau hin færu og sulluðu í sjónum. Skammt undan landi var lítill grænn hólmi, og þang- að bauð Karlsen Ástu í kappsund. En hún var illa synd, og auk þess óvön sjó. Hún óð aðeins út í, en sneri þegar í land aftur. „Sjórinn er svo ægilega kaldur,“ sagði hún skjálfandi. Karlsen tók í hönd hennar og hljóp út í sjóinn, svo gusurnar gengu upp fyrir haus á þeim. Ásta æpti og hljóðaði, milli þess sem hún hló, en ekkert dugði. Fyrr en hún vissi af, var hún komin í kaf og greip nú til sundtakanna. Seinasta spölinn mátti Karlsen þó synda með hana björgunarsund, því hún gafst alveg upp, og hann bar hana í land. „Nú erum við tvö á eyðiey,“ sagði Karlsen hlæjandi og setti hana niður. „Wiztu nokkuð, nema hér séu mannætur,“ sagði Ásta og hljóp af stað upp á eyna. „Sko, hérna eru þær líka!“ sagði hún og benti. Niðri í fjörunni, sem frá landi sneri, sátu fjórir karlmenn og jafnmargar stúlk- ur. Trillubátur var dreginn til hálfs upp í fjöruna og festur við stein með löngum kaðli. „Eigum við að gera vart við okkur?“ spurði Ásta. „Nei,“ svaraði Karlsen. „Við skulum fá okkur sólbað hérna megin og fara svo í land. Þau hentu sandi hvort á annað og ærsluðust eins og krakkar. Loks tók Karlsen hana og bar hana í áttina til lands. Nú var komin fjara og aðeins smá áll milli lands og hólnia ekki væður. Nöfnurnar sváfu vært í skjóli við bílinn, þegar þau komu. Karlsen benti Ástu að hafa hljótt. Þau klæddu sig og héldu til höfðans, sem byrgði fyrir útsýnið til austurs. Ásta var í ermalausum kjól, létt á fæti og í bezta skapi. Þegar fyrir höfðann kom, blasti sveitin við með ótal bæjum á víð og dreif. Langt í austri teygðu sig há kolsvört fjöll með smálækjum, sem sýndust eins og silfurþræðir, er ýmist hurfu eða birtust á ný milli klettanna. Ilmur af birki barst til þeirra ofan úr brekkunni. Þangað héldu þau hönd í hönd. Karlsen sagði Ástu frá, hver var í leigubílnum, og sagði, að nú gæti Sólveig ekkert vald haft yfir sér framan. Ásta var nú ekki eins viss um það. Hún var einmitt hrædd um, að nú harðn- aði baráttan fyrst fyrir alvöru. Við lítinn læk settust þau niður. Ásta fór úr skón- um og gutlaði í vatninu með berum fótunum. Karlsen tók utan um hana með annarri hendinni, en með hinni reytti hann upp strá, sem hann lét falla í lækinn og berast burt með straumnum. Ástu leið ekki vel að hafa hann svo nærri sér. Hún fjarlægði hönd hans, og hann spurði hvers vegna hún gerði það. Ásta átti erfitt með að útskýra fyrir honum, að þá fyrst er hún sæi, að hann væri laus við Sólveigu, mætti hann snerta hana. „Vertu nú ekki svona hörð,“ bað hann. „Þú gætir þó' gefið mér einn dag algerlega úr lífi þínu.“ Hann kveikti sér í pípunni og horfði út yfir sjóinn. „Gleymdu ekki Sólveigu,“ sagði Ásta. „Ég er búinn að segja þér, að ég tel mig lausan allra mála við hana. Eftir það sem ég sá í dag, getur hún varla ætlazt til, að ég trúi því, að ég einn geti átt krakk- ann, sé hann þá annars nokkur.“ „Það ætti að koma í ljós á sínum tíma,“ svaraði hún. Karlsen tók um naktar axlir hennar. „Þú ert eins og hafmey, Ásta. Þig vantar bara sporð og hörpu til að leika á, þá gætirðu verið Lóreley.“ Ásta forðaðist heit augu hans, sem horfðu fast á hana. „Gefðu mér þennan dag.“ „Hvaða gagn er að einum degi?“ „Jú, hann gæti orðið mér leiðarljós, svo sérstæður að ég hugsaði til hans alla ævi, dýrgripur sem ég niyndi geyma í innsta leynihólfi hjarta míns, og ekki opna það nema á viðkvæmum stundum. Það gæti verið gott að eiga slíka, Ásta, þegar klakinn fer að hlaðast urn hjartað, og sálin er orðin kolsvört.“ „Þú ert að verða skáldlegur,“ sagði hún og stóð upp. Hann stóð einnig upp. Heit faðmlög hans og langur koss brutu niður síðustu leifar mótspyrnu hennar. Þau gengu hægt upp brekkuna í skjól kjarrsins, sem bauð þau velkomin. Þrestirnir sungu, sólin skein, og hlý sunnangolan hjalaði við blómin og stráin í lágum hvísl- andi tón. Ilmurinn varð að áfengi í blóði unga fólks- ins, sem leitaði á náðir náttúrunnar þennan sumardag. Heima er bezt 279

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.