Heima er bezt - 01.08.1962, Side 31

Heima er bezt - 01.08.1962, Side 31
á meðan ég er að bíða eftir, að kýrnar ljúki við að drekka; mér yrði ekkert úr verki á meðan, hvort eð er.“ „Það er alveg sama, Gunna litla, það er alveg óþarfi fyrir þig að vera með svona uppátæki, að minnsta kosti verðurðu að nefna það við húsbændurna.“ Undir þetta tóku kýrnar. Þær nauðuðu til Guðrún- ar, og kvígan meira að segja baulaði af öllum mætti. Varð það til þess að Guðrún náði sér á stundinni og áttaði sig á því, hvert hennar erindi hafði verið undir pallinn. „Já, já,“ sagði hún, og flýtti sér upp í básinn til kvígunnar, „ætli hún sé nú farinn að kenna sín“. Og það var. Varð það til þess, að allt snerist um kvíguna það kvöldið og fram á nótt. Ekki einu sinni minnzt á neinn lærdóm. Sem betur fór. Því það er svo, að þegar tvær fréttir berast samtímis, þá minnka áhrif beggja. Nóg er og bezt, að ein frétt berist í senn, ekki er af svo miklu að taka. Enda var það ekki fyrr en næsta kvöld, er þær fóstrur voru að skammta fram í búri og burðurinn tilheyrði orðið fortíðinni, að Guð- rún trúði húsmóður sinni fyrir því, sem hún hafði heyrt og séð undir pallinum kvöldið áður. Kristín ætl- aði ekki að trúa sínum eigin eyrum. „Hvað segirðu?“ sagði hún, og snögghætti að sneiða blóðmörinn. „Ekki nema það, að þegar ég opnað fjóshurðina sá ég, hvar þau sátu bæði í auða básnum og voru að grúska, að ég held í honum Ponta. Og þegar ég spurði Gunnu, hvað þau væru að gera, sagðist hún vera að kenna Sveinka að stafa.“ Kristín tók nú aftur til að sneiða blóðmörinn. Það lá við að hún ræki upp hlátur. En þegar hún sá hinn stranga vandlætingarsvip fóstru sinnar stillti hún sig. Guðrún hélt áfram: „Ég sagði henni Gunnu, að það væri eklti viðeigandi, að hún væri að svona, án þess að minnast á það við húsbændur sína.“ Nú kom Gunna inn í búrið úr fjósinu. Var hún í fyrra lagi á ferðinni þaðan, enda hafði ekki orðið úr kennslu í kvöld, með því að kálfurinn var nú kominn í auða básinn, svo hann gat varla talizt tilkippilegur fyrir kennslustofu lengur. Kristín leit til hennar og sagði: „Ertu farin að kenna honum Sveinka kverið, Gunna mín?“ Gunna roðnaði og svaraði: „Ég var bara að kenna honum að stafa að gamni mínu. Það er ekki nema sjálfsagt, að ég hætti því, ef þú vilt.“ „Ég get ekki verið að skipta mér af því, Gunna mín. Ætli þú gefist ekki fljótt upp á því sjálf, þætti mér líklegt.“ En því fór fjarri, að Gunna gæfist upp á því. Hún notaði hverja frístund, er lítið bar á, til þessa að kenna Sveinka lesturinn. Hún gekk með slitur úr Ponta á brjóstinu allan daginn. Kennsla fór semsé fram kvölds eða morguns eða um miðjan dag eftir atvikum. Ýmist í skemmunni eða upp í heygarði eða úti í lambhúsi, jafnvel í smiðjunni. Einhvern tíma rakst húsbóndinn á þau þar. Hann rak upp stór augu: „Ansvítann eruð þið að pukrast hérna,“ sagði Bryn- jólfur og velti vöngum. Gunna sagði sem fyrr, að hún væri að kenna Sveinka að lesa. „Þá skaltu bara gera það, Gunna litla, uppi á palli, í norðurendanum; það er miklu betra en hér.“ Upp frá þessu fór kennslan fram í norðurendanum, enda var nú svo komið, þótt ótrúlegt sé, að Sveinki var farinn að stauta og helzt leit út fyrir, að hann gæti bráðlega hjálpað sér sjálfur að öllu leyti við lesturinn, enda var þá komið fram yfir þrettánda. IX. Um áramótin gerði kuldakast, svo að allur fénaður komst á gjöf. Fylgdu þá karlmennirnir dæmi kvenþjóð- arinnar og skiptu með sér verkurn. Hugsaði húsbónd- inn um gjafarhestana og lét í kýrmeisana. Steini hirti lömbin og ærnar, en Gvendur sauðina og útigangs- hrossin, — þegar hann var á Bökkunum. En þegar hann var á Efri-Völlum, skiptu þeir Brynjólfur og Steini með sér verkum hans. Hirti þá húsbóndinn hrossin en Steini sauðina. Sveinki aftur á móti var eins konar allra gagn. Hann sótti kýrmeisana og gaf í fjósið með Gunnu, sem fyrr segir. Hann vatnaði lömbunum með Steina. Hann tók moðið frá kúnum og lömbunum, ef eitthvað var, og setti það á afvikinn stað í heygarðin- um, þar sem til þess var tekið og það hrist saman við annað úrgangshey og rudda og gefið útigangshrossun- um. Hann hjálpaði til að vatna ám og hrossum. En þess á milli var hann að kljúfa í eldinn. Einhvern veginn hafði það kvisazt út um sveitina, að þeir hefðu farið í brunann um haustið, Gvendur og Sveinki. Hefði strákur legið úti heila nótt í brunanum og þótzt hafa fundið Gljúfurneslcirkju og hengt treyj- una sína á krossinn, svo að kirkjan fyndist fremur seinna. Lögðu fæstir trúnað á sögu þessa. Skal þess getið hér, að ekki varð úr því að sinni, að neinir færu að athuga brunann nánar á þeim slóðum, þar sem strák- ur þóttist hafa fundið kirkjuna. Bæði var það, að byl- gusuna gerði á eftir og ekki viðlit að leggja í hraunið nema í auðu, enda var yfirleitt ekki svo mikið til af leðri, að menn gætu verið að leika sér að því að tæta það í sundur á eggjagrjóti og hætta við það lífi sínu. Leið því langur tími, þangað til menn áttu leið þarna urn og athuguðu, hvort þeir sæu þar nokkuð nýstár- legt. En það var ekki. Þar rakst aldrei neinn á neitt markvert, hvorki kirkju, turn né kross. Fannst ekki einu sinni treyjan hans Sveinka, og það var verst, því það var bezta flík. Én sagan um kirkjufundinn gleymd- ist ekki og gerðist dularfyllri með árunum. Sú saga lifir enn. Framhald. Heima er bezt 287

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.