Heima er bezt - 01.08.1962, Qupperneq 33

Heima er bezt - 01.08.1962, Qupperneq 33
HeiII veggur af fallegum Kúsgögnum lianda sigurvegaranum í getrauninni Já, þér getið útbúið alveg nýjan vegg á heimili yðar með hinum fögru og hentugu A. E. vegghúsgögn- um. Þér munið gefa stofunni yðar nýtt líf, og þér munið allt í einu fá pláss fyrir allar bækurnar og smáhlutina, sem yður hefur vantað pláss fyrir, í hillum og í skápum. Og nú þurfið þér ekki lengur að vera í vandræðum vegna plássleysis, því nú getið þér auðveldlega smám saman bætt við hillum og skápum án stórvægilegra útgjalda. Og ef sá, sem verður svo heppinn að hljóta verð- launin, skyldi nú vera í hópi þeirra fjölmörgu, sem þegar hafa fengið sér eitthvað af A. E. vegghúsgögn- um, þá fær hann sérlega gott tækifæri til að bæta þar við hillum og skápum, því verðlaunin eru A. E. vegghúsgögn eftir eigin vali fyrir allt að kr. 5.000.00. Þrautina í þessu hefti á að leysa á sama hátt og síðast. Það er að segja, að þér eigið að reyna að segja til um, hvaða trjátegundir það eru, sem myndirnar tvær neðst á síðunni sýna. Það eru alls sex tegundir, sem um er að ræða og sem allir ættu að þekkja, það er að segja birki, reynir, víðir, fura, greni og lerki, og nú er galdurinn ekki annar en sá, að segja tii um, hvað af þessum trjátegundum sést hér á myndunum. Ráðningarnar á ekki að senda blaðinu fyrr en get- rauninni lýkur, en frá þessu verður nánar skýrt í næsta blaði. Nr. 3 Nr. 4 Heima er bezt 289

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.