Heima er bezt - 01.09.1962, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.09.1962, Blaðsíða 14
Viðidalsfjall að vestan. Til vinstri sér á brún Hvarfsgjár, en norðan við hana lagði Niels leið sina upp á fjallið, og það varð helganga hans. menn að Níels hafði verið nærri kominn fram af, en síðan er eins og hann hafi á einhvern hátt skynjað hættuna og snúið til baka. En nokkrum föðmum fram- ar beið dauðinn í launsátri og þar hrapar hann niður hengiflugið. Þegar leitarmennirnir komu fram á brúnina, sáu þeir hóp manna undir klettunum niðri í dalnum. Þar voru Víðdælingar komnir fjölmennir til að leita, auk mann- anna tveggja, sem lögðu vfir fjallið frá Þingeyrarseli og getið er um hér að framan. Hafði annar þeirra, Björn Bergmann, oú kennari á Blönduósi og aðalheimildarmaður að frásögn þessari, tekið að svipast um eftir ummerkjum, þar sem spor tíkarinnar þraut í dalbotninum. Varð honum gengið upp á lítinn melhól og sá krafs í snjónum rétt fyrir neðan hólinn. Gekk hann þangað og fann þá lík Ní- elsar á kafi í snjónum. En tíkin hafði rótað ofan af brjósti hans og það mun óefað hafa orðið til þess að líkið fannst þarna á stundinni. Ella er óvíst að það hefði fundizt fyrr en snjóa leysti með vorinu. A höfði líksins var áverki, en að öðru leyti var það lítið eða ekki skaddað. Menn voru sendir eftir hesti og sleða til næsta bæjar, Melrakkadals, en á meðan voru börur búnar til úr stöfum og teppum, sem leitarmenn- irnir höfðu meðferðis, líkið látið á þær og síðan skipt- ust mennirnir á að bera það niður dalinn, þar til þeir mættu hestinum og sleðanum. Var líkið flutt heim að Melrakkadal. Nokkrum dögum seinna fór ekkjan í Þingeyrarseli, Halldóra Ivarsdóttir, alfarin þaðan á brott með börnin sín fimm, og þar með er sögu Þingeyrarsels, sem byggðs býlis, lokið. (1961). „Hin gömlu kynni . . . “ Framhald af bls. 302. _____________________ falda röð, þannig, að tveir þeir sem hæstir voru á vöxt gengu fremstir, samhliða, og síðan áfram eftir hæð og þeir lægstu aftast, svo á fylkingunni var greinilegur vatnshalli. Þeir voru hávaxnastir Sveinn Sigurðsson frá Þórarinsstöðum við Seyðisfjörð og Helgi Hermann Eiríksson frá Örlygshöfn við Patreksfjörð, og urðu forustusauðir eða sporgöngumenn. Næstir komum við Jón Sveinsson. Við vorum ámóta háir, en drjúgum var Jón breiðari um bakið. Þannig urðum við samstöðu- og framgöngubræður í leikfimi, ekki aðeins í bekknum, heldur einnig í úrvalsflokknum, er hann var stofnaður. Það var ekki álitamál, að þangað var Jón sjálfkjörinn, en ekki veit ég hverju faraldri ég kom þar inn, því valið var úr öllum skólasveinum. Jón varð skjótt einn með beztu íþróttamönnum skól- ans, liðlegur, en þó sérstaklega harður og snarráður. Vettlingatök voru á engu, er hann snerti við. Hann var og einn af beztu glímumönnum skólans og kraftamað- ur einn hinn mesti. Jón Sveinsson var námsmaður góður og sóttist vel, jafnvígur nokkuð á flestar námsgreinar, en þó einkum sögumaður og stærðfræðingur, eða svo var hann með- an við fylgdumst að. Með okkur Jóni tókst brátt vinátta góð, þrátt fvrir það, að við vorum um marga hluti ólíkir menn. Sú vinátta hefur haldizt síðan. Eg átti lengur bréfaskipti við hann en nokkurn annan skólabróður minn, og þó fundum okkar hafi ekki oft borið saman síðan við skild- um í skólanum okkar gamla og góða fyrir nærfellt fjörutíu og átta árum síðan, hefur tíminn ekki náð að fölskva yfir þann hlýja þela, er milli okkar þróaðist tvo samvistar vetur. Hann hélt áfram námsbrautina, kleif brattann til embættisframa og starfs í almennings þágu, en ég hélt mig niðri á flatlendinu, stríddi við amstur og erfiðleika einyrkjabúskapar, fjarri flestum menntatindum, og hafði sem mest að vinna að halda í horfi og sjá farborða fjölskyldu og sjálfum mér. Mér var hlýtt til margra skólabræðra minna, mein- laust til annarra og kenndi ekki kala til neins. Þegar ég rifja upp minningar frá skólavistardögunum og ég sé fyrir hugarsjónum gamla námsfélaga, verður löng- um svo, að þar fer fyrstur Jón minn Sveinsson, tryggða- tröllið með yfirbragð hins vaska og trausta manns, heilshugar maður og drengskaparmaður, fullhugi og metnaðargjarn í leik og starfi, ófús að láta hlut sinn, kappsfullur afkastamaður til hvers sem var. Og ég enda mál mitt eins og ég byrjaði með orðum stórskáldsins og „rétti mund um hafið hálft og heilsa gömlum vin.“ 30. marz 1957. 306 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.