Heima er bezt - 01.09.1962, Blaðsíða 34
Priáji og síáasti hluti getraunar-
innar um A.E. veggnusgögn fyrir
5.000 krónur
1 þessu hefti lýkur getrauninni um hin fallegu og
þægilegu A. E. vegghúsgögn, en verðlaunin eru 5000
krónu virði. Sá, sem verður svo heppinn að hljóta verð-
launin, getur valið sér eitthvað af hinum margvíslegu
tegundum af þessum landskunnu vegghúsgögnum þann-
ig, að hann getur einmitt fullnægt sínum eigin óskum.
Þrautirnar á að leysa á sama hátt í öllum 3 blöðunum,
það er að segja, þér eigið að reyna að segja til um
hvaða trjátegundir það eru, sem myndirnar neðst á síð-
unum sýna. Það er um 6 tegundir að ræða: birki, reyni,
víði, furu, greni og lerki, og þegar þér eruð vissir um
að hafa fundið réttu svörin, það er að segja hvaða
myndanúmer eiga við hverja tegund, þá sendið þér
svörin til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri.
(Munið að skrifa greinilegt nafn og heimilisfang yðar
á seðilinn). Lausnir þurfa að hafa borizt til blaðsins í
síðasta lagi 20. október n.k. Og að endingu getum
við upplýst, að strax í næsta mánuði hefst ný verðlauna-
getraun með mjög verðmætum verðlaunum, sem allir
geta haft bæði gagn og ánægju af að eignast.
Nr. 5
Nr. 6
.326 Heima er bezt