Heima er bezt - 01.09.1962, Síða 28

Heima er bezt - 01.09.1962, Síða 28
EIRÍKUR SIGURBERGSSON: Eftir EIJ SJÖUNDI HLUTI Upp úr þrettánda gerði stillur og æki. Var nú Gvendur á Bökkunum og því minna að gera við gegn- ingar. Stóð mikið til að nota ækið. Þurfti að sækja stórviði og skíði á fjöru. Átti að fara fyrir dag daginn eftir með tvo sleða. Áttu þeir að fara báðir, Steini og Gvendur. Skyldu þeir ríða Stjarna og Rauð, en hafa Brún og Bleik fyrir sleðunum. Ætlaði Brynjólfur að annast allar gegningar með Sveinka. Var búið 1 haginn fyrir hann eins og hægt var, með því t. d. að lata 1 alla meisa fyrir sig fram, svo að hann þyrfti ekki að hugsa um annað en gefa og vatna. Sat nu Brynjolfur 1 smiðju um hádegið og notaði dagsbirtuna þessa stund, sem hún hélzt. Var hann að laga járnin undir annan sleð- ann, sem hann var nýbúinn að smíða. Svo þurfti hann að potta tvær, þrjár skeifur. Heiðskírt var og logn, en nokkurt frost. Var smiðjuhurðin í hálfa gátt. Sat Brynjólfur og raulaði við smíðarnar. Allt í einu var rjálað við dyrnar og þær opnaðar. Leit Brynjólfur upp og sá þar standa sína ungu og fögru eiginkonu. Var hún uppdúðuð, en þó grá og kuldaleg. Kom hún þegjandi inn fyrir og hallaði hurð- inni aftur. Brynjólfur tók hana í fangið og setti hana á hné sér. Leit hann á hana stórum augum og spurði, hvort nokk- uð væri að. Hún neitaði því, en þó nokkuð seint. Brynjólfur horfði fast á hana og þögðu bæði um stund. Þarna sat þá húsfreyjan á Bökkunum á hnjám síns unga og sterka maka. Hún hafði sett skuplu á höfuðið til þess að skýla sér. Niðurundan skuplunni gægðust tvær svartar, þykkar fléttur, sem náðu niður fyrir mitti. Kristín losaði nú um höfuðklútinn og ýtti honum aftur á hvirfil. Sást nú enni hennar allt og kinnamar. Hafði hún enni föður síns, hátt og hvelft. Augun voru brún, broshýr og tindrandi. Höfðu þau margan piltinn töfrað, enda var hún ánægð með þau. Hún hafði frem- ur lítið nef, beint, en þó nokkuð hærra fremst. Hafði hún á tímabili haft ekki litlar áhyggjur út af nefinu á sér, eins og gerist og gengur, og talið sér trú um, að það væri ljótt og andstyggilegt og á allan hátt illa lagað og allt öðm vísi en það ætti að vera. Hefði hún viljað gefa mikið til, að það væri dottið af og annað komið í staðinn, allt öðru vísi, stærra og beinna, ekki með neinni totu eins og þetta nef, helzt bogið. En nef- ið sat sem fastast, þetta óhræsis nef, sem Kristínu fannst allir glápa á, rétt eins og hún væri ekkert annað en nef- ið. En það fór fyrir Kristínu eins og fleirum, að á- hyggjur hennar út af nefinu rénuðu fyrr en varði, enda hafði Brynjólfur verið óspar á að lofsyngja það og dásama fyrir fegurð og yndisleik. Hafði hann fljótt fundið það út, að Kristín var meira en lítið óánægð með þennan mjög svo áberandi likamshluta og notað fyrsta tækifærið til að hrósa því. Þá hafði Kristín litla orðið hrædd og undrandi og dauðleið með sjálfri sér. Að hann skyldi geta verið að, minnast á þetta! Gat hann ekki talað um eitthvað annað! Að geta látið það út úr sér, að nefið á henni væri fallegt! Honum gat ekki verið alvara! Gat hann ekki horft á eitthvað ann- að en nefið á henni? Ósjálfrátt faldi hún það í lófanum. Þá hafði hann skellihlegið, en hún orðið kafrjóð. En sem sagt, nú voru þessar áhyggjur um garð gengnar, og áttu aldrei afturkvæmt. Þessa stundina var „totan“ ofurlítið rauð og Brynjólfur kyssti á hana. „Hvað er að, elskan mín?“ sagði hann aftur. Hún stundi við og svaraði: „Ekki nema það, að nú er ég viss, alveg viss.“ 320 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.