Heima er bezt - 01.10.1962, Side 4
ÞORSTEINN GEIRSSON, REYÐARÁ:
Benedikt Kristjánsson.
Alfheiður Sigurðardóttir.
Kristján Benediktsson, Einkiolti
Kristján Benediktsson er fæddur 11. september
1881 að Lambleiksstöðum á Mýrum í Austur-
Skaftafellssýslu. Foreldrar hans, Benedikt
Kristjánsson og Álfheiður Sigurðardóttir, voru
|)ar til heimilis, en fluttu vorið eftir að Viðborði og
bjuggu þar í 16 ár. En árið 1898 flytja þau að Ein-
holti, sem var kirkjujörð.
Kristján var þriðja barn af 11 systkinum, sem kom-
ust til fullorðinsára. Árið 1903 ákvað Benedikt, faðir
Kristjáns, að flytja vestur um haf, og svo langt var sú
ráðagerð á veg komin að hann var búinn að fá kaup-
anda að áhöfn jarðarinnar.
En þá er það Kristján hinn tvítugi ungi maður, sem
vinnur að því í fjölskyldunni að ekki sé farið. Það
mun hafa verið mikið átak fyrir hinn unga mann að
afstýra þeirri för.
26. maí 1905 giftist Kristján Jóhönnu Steinunni Sig-
urðardóttur á Miðskeri í Nesjum.
Árið áður flutti hann til heitkonu sinnar, en 1906
flytja þau að Einholti og hefja þar búskap. Þremur ár-
um síðar flytja þau hjónin að Holtaseli á Mýrum og
búa þar til ársins 1917. Þá flytja þau hjón aftur að
Einholti og hefja þar búskap að nýju. Árið 1922 keypti
Kristján Einholtið. íbúðarhúsið í Einholti byggði
Kristján 1936. Slíkar byggingar voru á þeim árum mik-
ið átak. Kristján og Jóhanna eignuðust 15 börn — 13
komust til fullorðinsára. Þau eru:
Sigurður, f. 1905, búsettur í Kópavogi.
Benedikt, f. 1906, skipstjóri, d. 11. febrúar 1952. Var
skipstjóri á m/s Eyfirðing, sem fórst við Orkneyjar
1952.
Sigríður, f. 1909, húsfreyja í Einholti.
332 Heima er bezt