Heima er bezt - 01.10.1962, Page 34
Vantar yáur ekki samlagn tngarvél
eáa [) á feráaritvél?
Þá er um að gera að taka þátt í hinni nýju og stóru verðlaunasam-
keppni „Heima er bezt“ en þar á sigurvegarinn þess kost að velja
sér aðra hvora þessara véla, sem framleiddar eru af einni af beztu
og kunnustu skrifstofuvélaverksmiðju í heiminum.
Við höfum þá ánægju að geta boðið sigurvegaran-
um að velja hvora sem hann heldur kýs af tveimur
vélum, báðum mjög vönduðum, enda eru þær fram-
leiddar hjá hinni heimsþekktu OLIVETTI verk-
smiðju í Ítalíu.
Þessar umræddu vélar eru:
Olivetti summa PRIMA 20 samlagningarvél, að
verðmæti kr. 6.785.00 eða Olivetti LETTERA 22
ferðaritvél að verðmæti kr. 5.000.00, vélar sem sam-
eina í einu fagurt útlit og tæknilega snilli, og sem
verða munu til mikils gagns fyrir hvern þann, sem
þarf daglega að fást við útreikninga, bókhald, bréfa-
skriftir eða eitthvað af þeim ótalmörgu störfum
öðrum, sem þessar vélar auðvelda svo mjög.
Eins og þúsundir manna og kvenna um allan
heim, munuð þér einnig verða stórhrifin af að vinna
með Olivetti-vél.
Getraunin verður í þremur tölublöðum og fyrstu
þrautirnar sem þér eigið að glíma við sjáið þér hér
neðst á síðunni. Ráðningamar á að senda til blaðs-
ins allar í einu þegar getrauninni lýkur.
Og hér eru þá fyrstu þrjár þrautirnar:
1. FLUGFERÐ. — Flugvél fiaug frá Reykjavík til
Akureyrar á 1 klukkustund og 20 mínútum, en
var ekki nema 80 mínútur á leiðinni til baka frá
Akureyri til Reykjavíkur. Hver er skýringin á
því?
2. PENINGAGJAFIR. — Tveir feður gáfu tveim-
ur sonum sínum peningagjafir. Annar gaf sín-
um syni 150 krónur en hinn syni sínum 100
krónur.
Þegar synimir tveir fóru að telja saman pen-
ingana sáu þeir, að samanlagt höfðu þeir aðeins
auðgast um 150 krónur. Hvemig stóð á því?
3. SKÍÐAGANGA. — Maður nokkur reiknaði það
út, að ef hann gengi á skíðum 10 kílómetra
vegalengd á einum klukkutíma, þá myndi hann
komast heim til sín klukkan 1 e. h. Ef hann
flýtti sér enn meira og gengi 15 km á klukku-
tíma, myndi hann komast heim kl. 11 f. h. Hvað
þarf hann að ganga marga kílómetra á klukku-
stund til að vera kominn á leiðarenda klukkan
12 á hádegi?
'362 Heima er bezt