Heima er bezt - 01.07.1963, Blaðsíða 4
LAUGA GEIR:
ann
Gunnar
Kartöflu-kóngur Garðar-byggðar í Norður-Dakóta
egar minnst er á nafnið Hall í íslenzku byggð-
inni í Norður-Dakóta, detta manni óðar ósjálf-
rátt í hug hrúgur og haugar af kartöflum og
hrannir af kartöflupokum, svo að myndað gæti
öflugan varnargarð, ef styrjöld bæri að höndum.
Feðgarnir Jóhann G. Hall og synir hans fimm eru
stundum nefndir kartöflu-kóngar. Réttara væri þó að
kalla synina prinsa, en kóngurinn í þessu kartöfluveldi
væri þá Ijúfa gamalmennið, Jóhann Gunnar Hall.
Jóhann fæddist nálægt Gimli í Nýja íslandi í Kan-
ada 12. marz 1879. Þangað komu foreldrar hans, Jónas
Hallgrímsson Hall og kona hans, Sigríður Kristjáns-
dóttir, frá Mvllulæk (Millbrook) í Ontaríó-fylki. Til
Vesturheims komu þau úr Suður-Þingeyjarsýslu árið
1874.
Eins árs gamall fluttist Jóhann með foreldrum sínum
og þrem árum eldri bróður, Steingrími — sem nú er vist-
maður á elliheimilinu Betel á Gimli — til Garðar í Norð-
ur-Dakóta, þar sem faðir þeirra nam heimilisréttar-
land. Auk þessara tveggja drengja eignuðust þau hjón-
in fjóra aðra drengi: Frímann, Walhalla í Norður-
Dakóta, Ásvald í Wynyard, Sask., Jakob og Franklín,
báðir í Garðar-byggð.
Árið 1904 kvæntist Jóhann Hósíönnu Jósefsdóttur
Walter, hinni ágætustu konu. Varð þeim hjónum 11
barna auðið. Eru synirnir þessir: Jósef, Björn, Vilhjálm-
ur, Eðvarð og Jón. Dæturnar eru: María, Ingibjörg,
Karólína, Rósalind, Pálína og Lilja. Heimili þessarar
stóru fjölskyldu var jafnan annálað fyrir gestrisni og
myndarskap.
Hjónin Jóhann Gunnar Hall og Hósianna Jósefsdóttir Walter ásamt börnum sínum.
228 Heima er bezt