Heima er bezt - 01.07.1963, Blaðsíða 34
Frá Norðurhjara
(Framhald af bls. 238.) ------------------------------
og fornmannlegur, fálátur og stirðmæltur. Sá er þetta
ritar, sá hann aðeins á ferð og fannst hann vera sem
bergþursi úr hömrum genginn. En flestir verða aðrir
við frekari kynni. Kona Benedikts hét Sigríður Péturs-
dóttir. Hún átti eina dóttur, áður en hún giftist, er
Petrína hét og verður síðar getið. Benedikt bjó á
Vargsnesi í 14 ár, fluttist þaðan í Naustavík 1901, og
þaðan í Kotamýrar, og verður hans enn getið.
Gunnar Jósepsson bjó fyrst með Benedikt á Vargs-
nesi, en síðar einn. Vargsnes fór í eyði 1903. Sigur-
björn Sigurjónsson frá Naustavík fluttist þangað árið
1920 með konu sinni, Petrínu Jóhannesdóttur,stjéipdótt-
ur Benedikts Oddssonar. Þau endurreistu þar öll hús
og bjuggu þar í 12 ár. Árið 1932 fer jörðin að fullu í
eyði, hús voru rifin, og ábúendur fluttust að Eyri á
Flateyjardal. Sigurbjöm á nú heima á Húsavík.
(Framhald.)
Draumar
(Framhald af bls. 239.) -------------------------
Þegar eftir fótaferð kemur Olafur inn til mín að
heilsa upp á mig. Að því loknu segir hann:
„Þú barðir nokkuð fast að dyrum í gærkvöld, frændi!
Áður en ég fór að hátta, gekk ég út að vanda til að loka
húsinu, en í því ég hefi lokað, eru barin þrjú stór högg
í hurðina. Ég lýk upp aftur og fer út, en sé engan úti,
fer svo inn aftur og loka hurðinni. En ekki er ég kom-
inn lengra en upp í miðjan stigann, þegar aftur eru bar-
in sömu höggin þrjú. Fer ég svo aftur út, en sem fyrr
er enginn úti.
Fer ég nú og gái í kringum allt húsið, en sé engan, og
síðan svipast ég um allt húsið niðri til að leita af mér
allan gmn, hvort þar geti nokkur verið, sem höggun-
um valdi. En svo var ekki og gat heldur ekki verið, þar
sem allir vom háttaðir uppi á lofti. Mér þótti þetta all-
undarlegt, og var ekki laust við, að á mig slægi óhug.
Þó nefndi ég þetta ekki við neinn.
Líður nú dálítil stund, en ég var þó ekki sofnaður.
Em þá enn barin þrjú högg. Verður mér hálfhverft við
þetta og kem mér einhvern veginn ekki að því að fara
enn til dyra og bið Guðnýju dóttur mína að gera það.
En því var ég óvanur að fara ekki til dyra sjálfur, þeg-
ar einhver er kominn. En nú brá svo við, að þú varst
kominn!
Alltaf vom höggin nákvæmlega eins í öll skiptin.“
------Þetta er þá sagan af höggunum þremur. Eng-
um sem Ólaf þekkti, mjmdi detta í hug að rengja sögu
hans. Var þetta hugur minn, sem barði, eða var það
fylgja mín, sem vildi gera vart við komu mína?
Hver vann
Gascoigne
mjaltavélina?
Nú hefur verið dregið út nafn þess þátttakanda í síð-
ustu verðlaunagetraun „Heima er bezt“, sem hlýtur hin
glæsilegu verðlaun, sem eru einnar fötu Gascoigne
mjaltavél með öllu tilheyrandi, að undanskildum loft-
röram. Verðlaunin eru samanlagt að verðmæti kr.
11.500.00. Þátttaka í getrauninni var mjög mikil og mik-
ill meiri hluti af ráðningunum sem bárust var rétmr. Sá,
sem var svo stálheppinn að hljóta verðlaunin að þessu
sinni, var
BALDUR EINARSSON,
Ekkjufelli, Fellum, N.-Alúlasýslu.
Það borgaði sig vel fyrir Baldur að taka þátt í get-
rauninni, og óskum við honum til hamingju með hin
glæsilegu verðlaun. Vonum við að bæði hann og allir
þeir sem tóku þátt í getrauninni hafi haft af því nokkra
dægradvöl. Myndirnar, sem við birtum af hinum þjóð-
kunnu mönnum vom óvenjulegar vegna þess að þær
vora gerðar eftir „negativum“ filmum. Myndimar voru
í þessari röð:
1) Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, 2) Matthías
Jochumsson, 3) Stephan G. Stephansson, 4) Guðrún
Árnadóttir frá Lundi og 5) Ármann Kr. Einarsson.
Fyrstu verðlaun: Gascoigne mjaltavél að verðmceti 11.500 kr.
258 Heima er bezt