Heima er bezt - 01.07.1963, Qupperneq 6
Kornhlaða. Byggð 1961.
ar einn bíllinn er orðinn fullur, fer hann sína leið til
skemmunnar, og samtímis kemur tómur bíll albúinn í
hans stað. Venjulega hafa Halls-feðgar 24 vörubíla á
akrinum.
StÖðugt fylgist með uppskerulestinni vörubíll með
starfsmönnum, vélahlutum og verkfærum, ef ske kynni
að eitthvað bilaði, svo að hægt sé þá að gera vuð það
tafarlaust. Allur þessi starfsrekstur þarf a. m. k. á 62
manna starfshði að halda.
Segja sá, að hér sé um nýtízku rekstur og útbúnað
að ræða. Fyrir fáum árum gátu skólakrakkar, húsmæð-
ur og piparmeyjar unnið sér inn dálaglegan skilding
með því að ganga tvær eða tvö saman á eftir „plógn-
um“ með stórefhs körfu og tína upp kartöflurnar. Olli
þessi vinna að vísu bakverk og kvefi og ýmsum smá-
kvillum, en hafði einnig sína kosti. Margmennið var
skemmtilegt, fréttir „bárust vængjum á“, unga fólkið
Dœtur Jóhanns, talið frá vinstri: Lilja, Pálína, RósalincL,
Karolína, Ingibjörg og Maria.
kynntist betur, varð öðruhverju ástfangið, og leiddi það
síðan til giftinga og kostnaðar fyrir eldra fólkið, sem
þurfti að kaupa brúðargjafir og veizlubrauð og fleira.
Nú er ekki tími til að hugsa um né sinna smámunum
einum. Kartöflurnar eru komnar undir þak „í hvelli“,
eins og þið Austur-íslendingar segið! En samt er enn
margt að athuga. Eitt sinn var hægt að selja kartöflur
með moldarklessum, og jafnvel talið, að moldin verði
þær skemmdum. Síðar ályktuðu þó kartöflumenn, að
aðalatriði væri að handleika vöruna þannig, að hún liti
sem bezt út á sölutorgi (markaði) eins og hvert annað
garðmeti og seldist í laglegum 5, 10, 25, 50 og 100
punda pokum. En sú meðferð gerir þá ráð fyrir að
kartöflurnar séu áður þvegnar og stundum vaxbomar.
Var því nauðsynlegt að reisa fjölyrkju-stöðvar til að
þvo og flokka kartöflumar eftir stærð og gæðum o. fl.
I fyrsta flokld (nr. 1) má ekki vera yfir 5% gahaðar
kartöflur og alls engar sólbrenndar. Annar flokkur er
verðlægri, og þar mega gallar vera allt að 10%. Þriðja
flokks kartöflurnar eru látnar renna út í vörubíl, og
fluttar þangað, sem þær era notaðar í sterkjugerð („stíf-
elsi“) og ýmislegt annað. Halls-feðgar byggðu tvær
Þrjár hvolfþaks-skemmur og fjölyrkjustöð Halls-feðga i Edin-
borg. Húsrými skemmanna alls: allt að 50.000 bushels!
Synir Jóhanns, talið frá vinstri: Jósef, Björn, Vilhjálmur,
Eðvarð og Jón.
230 Heirna er bezt