Heima er bezt - 01.07.1963, Síða 12

Heima er bezt - 01.07.1963, Síða 12
hin og þessi störf og eigi miklu síðar viðhlítandi hús- næði selt á leigu með sanngjörnu verði. Með þrotlausu starfi og gætilegri meðferð handaflans tókst Jóhanni að verjast skuldum að mestu leyti. Fór svo fram um hríð. Þessu næst réði Jóhann sig í þjónustu verzlunarstjóra eins á Akureyri og þá fyrir umsamið ákveðið mánaðar- kaup. Verzlunarstjóri þessi rak allmikinn landbúnað, hafði nokkrar kýr, sauðfé og hross. Störf Jóhanns urðu fyrst og fremst í því fólgin að annast voryrkju, hey- skap um sumur og hirðingu gripa um vetur. Eins og allir vita, sem landbúnað hafa stundað, verður hver og einn landbúnaðarverkamaður, oft á tíðum að sinna störfum, jafnt á helgum dögum sem virkum, ef til hlít- ar vill duga. Þessi störf áttu að sumu vel við Jóhann, þeim hafði hann vanizt í Svarfaðardalnum frá blautu barnsbeini. Hjá þessum manni vann Jóhann nokkuð á annan tug ára. Þessu næst hafði Jóhann atvinnu við vatnsveitu Akureyrarbæjar og allt til þess, að starfs- þrek hans og heilsa tók að bila. Hann var lengi ævi heilsugóður, mátti segja, að honum legðist það til líkn- ar. Um konu hans, Onnu Pálsdóttur, var aðra sögu að segja. Plún náði aldrei fullri heilsu eftir átökin við barnsfarsóttina, þó að lengi stæði hún að starfi, við hús- verk og heimilisstörf, enda ekki konunni skapi næst að liggja á liði sínu. Heilsu hennar hnignaði þrátt fyrir viðleitni lækna til úrbóta. Síðasta æviárið var hún rúm- lægur sjúklingur. Hún lézt að heimili sínu, Ægisgötu 12 á Akureyri, 20. maí 1945, um 68 ára gömul. Anna Pálsdóttir, þessi hrjáða og vanheila kona, kaus að liggja heima síðasta þungbæra áfangann. Var undir stöðugu eftirhti viðkomandi læknis, er þrátt og oft vitjaði henn- ar. Jóhann Jónsson maður hennar — þrautgóður og skyldurækinn — annaðist konu sína, svo sem bezt mátti verða, felldi niður atvinnu sína og vék að kalla mátti aldrei frá rekkju sjúklingsins nótt eða dag. Sannaði Jó- hann þá, svo og oftar um ævi sína, raungildi hins forn- kveðna spakmælis: „þolinmæðin er hin sanna karl- mennska11. Jóhann Jónsson naut lengi ævinnar góðrar heilsu, og er þess fyrr getið. En þá er aldur féll honum í fang, kenndi hann lasleika, er gat orðið lífshættulegur, ef ekki yrði til úrbóta snúið. Leitaði hann þá læknisráða til Guðmundar Karls yfirlæknis á Akureyri, er gerði á Jóhanni uppskurð mikinn og aðra handlæknisaðgerð síðar með nokkurra vikna millibili. Lá Jóhann þá lengi á sjúkrahúsi og allþungt um skeið, en ráðsnilli læknis- ins, glöggskyggni og gifta sigraði að lokum, enda Jó- hann frá öndverðu að mörgu hraustur. Alheill mun hann aldrei hafa orðið af meini þessu, og aftur og aft- ur sættti hann ráðum og meðferð Guðmundar Karls yfirlæknis, er löngum tókst að snúa til betra horfs heilsu skjólstæðings síns. Og þannig liðu allmörg ár. Jóhann var nú hættur að vinna utan heimilis síns, hélt ýmsu til þrifnaðar og hag- ræðis á heimili sínu og bama sinna, og sjaldan var hann iðjulaus. Brá sér á sumrin út í Svarfaðardalinn á gamlar stöðvar. Heimsótti vini sína og frændur og gæddi þá gjöfum. Var alls staðar hinn mesti aufúsugestur og hjartanlega velkominn. Jóhann hafði hentugt og hlýtt húsnæði, fæði, þjón- ustu og aðbúð alla, hjá börnum sínum og tengdasyni í Ægisgötu 12. Var samlyndi fjölskyldunnar hið bezta, þótti og öllum gott þar að koma, hressingu að þiggja og haldgóð vináttumál, má ég, er þetta rita, vel um það vita, svo oft hefur mig þar að húsum borið og á stund- um margs þurfandi. í októbermánuði 1961 veiktist Jóhann Jónsson alvar- lega. Lá hann heima um vikutíma, en þegar ekki brá til bata, þrátt fyrir læknishjálp, var hann fluttur í Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri. Þvarr honum máttur og ræna, og lézt hann þar eftir skamma dvöl 27. okt. 1961 og þá þremur dögum miður en hálfníræður að aldri. Jóhann Jónsson var ekki borinn til auðs eða yfirráða, hafði hvorki héraðsveldi til umráða eða konungsríki að stjórna. En hann var trúr því bezta í sjálfum sér. Trúr samtíð sinni. Trúr lífinu og dásemdum þess, inn í þann helgidóm vildi hann ekki óhreinn fótum stíga. Afdrátt- arlaus og óhvikul skyldurækni og linnulaus trúmennska gerði hann að merkismanni. Börn þeirra Jóhanns Jónssonar og Önnu Pálsdóttur voru þrjú og komust öll upp: 1. Ingólfur Jóhannsson, f. 1903. Fór ekki með for- eldrum sínum, þá er þau fluttu til Akureyrar. Ólst upp nokkur næstu árin að Hamri í Svarfaðardal, hjá Freyju Þorsteinsdóttur og Antoni Arnasyni, manni hennar, og bömum þeirra. Naut drengurinn allra góðra kosta hjá þessu sæmdarfólki. Seytján ára gamall hvarf Ingólfur til foreldra sinna á Akureyri. Gekk þá í trésmíðanám og lauk við með góðum vitnisburði. Arið 1924 veikt- ist hann af mænusótt og Iézt eftir stutta legu. Ingólfur Jóhannsson var mikill efnismaður til líkama og sálar, skapfastur og grandvar í tiltektum og öllu ráði. 2. Anna Stefanía Jóhannsdóttir, í. í marzmán. 1905. Ólst upp með foreldrum sínum, gift Skarphéðni Jóns- syni af Ufsaströnd, karlmenni og góðum dreng. 3. Páll Jóhannsson, f. 1913, ráðsettur reglumaður. Byggði íbúðarhúsið 12 við Ægisgötu á Akureyri. Bjó þannig sjálfum sér hús og heimili til frambúðar, svo og foreldmm sínum, systur sinni og mági og börnum þeirra. BRÉFASKIPTI Kristin GuÖrún Jósefsdóttir, Hvoli, Þverárhr., V.-Hún., óskar eftir b'réfaskiptum við stúlkur á aldrinum 14—15 ára. Mynd fylgi. Sigurlaug Elsa Jóhannesdóttir, Ægissíðu, Þverárhr., V.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 14—15 ára. Mynd fylgi. Guðlaug Sigurðardóttir, Efri-Þverá, V.-Hún., óskar eftir bréfa- skiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Maggý Sigurðardóttir, Efri-Þverá, V.-Hún., óskar eftir bréfa- skiptum við stúlkur á aldrinum 12—13 ára. 236 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.