Heima er bezt - 01.01.1964, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.01.1964, Blaðsíða 8
SÉRA GÍSLI BRYNJÓLFSSON: ggeir Lárusson Kirkjubæjarklaustri Pað er komið vor — síðasta vor nítjándu aldar- innar. Loftið er þrungið af ilmi gróandans og gisnar regnskúrir falla eins og bláleitar slæður niður eftir bröttum, grasi grónum brekkum Síðunnar. Brúðkaupsdagurinn — 7. júní 1900 —. í dag á að fara fram gifting í Prestbakkakirkju. Brúðhjónin eru bæði úr sveitinni. Þau hafa þekkst frá því þau voru böm. Hann er 26 ára yngispiltur frá Fossi, hún 27 ára yngis- mær frá Breiðabólstað. Þau eru gæfuleg þessi ungu hjón. Hann þéttur á velli og þéttur í lund, svipmikill og vel á sig kominn. Allt útlit hans og yfirbragð ber vott um þreklund, áræði og skapfestu. Hún í meðallagi há, fríð, bláeyg, ljóshærð, blíð og mild á svip, hógvær í skapi og prúð í framkomu. Yfir henni allri sá gæfulegi þokki, serrt góða konu prýðir. Hver eru þau þessi hjón? Elín Sigurðardóttir og Lárus Helgason, síðar lands- ltunn sem húsbændur á Kirkjubæjarklaustri í meira en fjóra tugi ára. Fyrsta hjúskaparár sitt voru þau á Fossi í sambýli við móður Lárusar og systkini. En sú jörð var sízt til skiptanna, enda maðurinn ólíkur til að una þröngbýli til lengdar. Á næsta ári fær hann til ábúðar Múlakot á Síðu. Það er lítil jörð í svokölluðu „þorpi“. Þar farnast ungu hjónunum samt vel, enda dugnaði og framsýni beitt við búskapinn og allar framkvæmdri. Heimilið verður Kirkjubœjarklaustur. 4 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.