Heima er bezt - 01.01.1964, Blaðsíða 11
niður, er landflutningar voru teknir upp í stað báts-
ferðanna áður. A sama hátt tók Siggeir að sér verzlun-
ina er hún hófst á Klaustri og hafði á hendi stjórn og
rekstur á útibúi Kaupfélags Skaftfellinga lengi vel. Og
eftir því sem hann eltist, óx honum traust sveitunga og
sýslunga, og skulu hér nefnd þau helztu trúnaðarstörf,
sem hann hefur haft á hendi og hefur flest enn:
1. Formaður Búnaðarfélags Kirkjubæjarhrepps.
2. Oddviti í Kirkjubæjarhreppi.
3. Deildarstjóri Sláturfélags Suðurlands.
4. Formaður Kaupfélags Skaftfellinga.
5. Stjómarmeðlimur í Sláturfélagi Suðurlands.
Öll þessi störf hefur Siggeir á Klaustri rækt við al-
mennan trúnað og vinsældir. Hefur engum komið ann-
að í hug en endurkjósa hann til þeirra, meðan hann
hefur gefið kost á sér.
En hversu mörg trúnaðarstörf, sem Siggeir á Klaustri
eru falin og hversu vel sem hann rækir þau, munu þeir,
sem kynnast honum þó finna það, að maðurinn er
meira heldur en öll hans verk. Hann er einstakur að
Að ofan til vinstri: Kirkjugólf á Klaustri. Að neðan t. v.: Sýn
til Kirkjubcejarklausturs handan yfir Skaftá. Að ofan í miðju:
Systrastapi. Að neðan í miðju: Aveita Klaustursbrceðra úr
Skaftá yfir Stjórnarsand. Með þeirri framkvæmd hefur þeim
tekizt að gera stór sandflæmi að gróðurlendi. Hér fyrir neð-
an: Eldmessutangi við Skaftá vestan Systrastapa.
Láirus Helgason — hinn þjððkunni Klaustursbóndi.