Heima er bezt - 01.01.1964, Page 18

Heima er bezt - 01.01.1964, Page 18
Helgimyndir við vegamót. Eitt af því sem mér þótti furðulegt, þegar ég fór fyrst um þessar sveitir eru geysimiklir grjótveggir með- fram vegum og umhverfis landareignir og stórbýli. Eru þeir hlaðnir úr steini, þykkir og oft um tvær mann- hæðir eða jafnvel hærri, en traustlega steinlímdir. Því furðulegri þykja manni þessi mannvirki, sem víða er lítið um grjót, og hefur því orðið að flytja efnið um langa vegu. En gróðurinn utan í veggjum þessum sýndi, að þeir voru gamlir. Mér var sögð sagan um uppruna þessara garða, en langflestir þeirra eru frá því á miðri síðastliðinni öld, en þá var hungursneyð í landinu um þriggja ára skeið, sem vel mátti líkja við Móðuharð- indin hér á landi, nema ef verra skyldi verið hafa. Þá voru veggir þessir hlaðnir sem eins konar atvinnubóta- vinna, og fengu verkamennirnir grautarskál eða eitt penny á dag, til þess að draga fram lífið á. Var það til- lag stórbændanna og landsdrottnanna. En orsök hung- ursneyðarinnar var uppskerubrestur á kartöflum vegna pestar, sem í þær kom, en meginfæða fólksins í sveit- um voru kartöflur, því að allan annan jarðargróða varð að láta í landskuldirnar, sem heimtar voru inn hlífðar- laust, þótt fólkið hryndi niður af hungri. Mjög margt manna flýði þá til Ameríku, en alls fækkaði landsfólk- inu um hálfa aðra milljón á þessum neyðarárum bæði af brottflutningum og mannfelli. Mér leiddust grjót- garðar þessir, því að þeir stálu mjög útsýni þegar ekið var um vegina, en eftir að ég heyrði sögu þeirra leið mér beinlínis illa, hverju sinni, sem fram með þeim var farið. Síðari hluta sunnudags kom Murphy og sótti okkur og ók okkur til bæjar, er Fermoy heitir. Þegar við kom- um inn í bæinn mættum við skrúðgöngu mikilli, off fór hornaflokkur fyrir henni. Voru homaleikararnir í mjög fáránlegum, litríkum þjóðbúningum, sem nokk- uð líkjast búningum Eláskota. Blésu þeir af miklum móði á alls konar lúðra og pípur og börðu tmmbur með feikna hávaða. Ekld var þó verið að fagna okkur með þessum viðtökum, heldur var þetta minningar- hátíð urn eina af hetjunum, sem féllu í frelsisstríði íra á þessum slóðum. En mikið var barist við Fermoy, enda voru þar áður fyrr miklar herstöðvar Breta. Var bærinn þá miklu fjölmennari en nú og mátti sjá, að hann hefði átt sinn fífil fegri, því að margt auðra húsa var í útjöðrum hans, sem raunar er ekki svo fátítt í smábæjunum, því að fólki fer heldur fækkandi í land- inu. Hér skildu leiðir. Gunnar fór með Murphy til Dyfl- inar en mér var skilað í hendur starfsmanna á tilrauna- stöðinni Moor Park, sem er skammt fyrir utan borg- ina. (Framhald.) Gamall sveitabœr. 14 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.