Heima er bezt - 01.01.1964, Side 22

Heima er bezt - 01.01.1964, Side 22
BLAÐAÐ * Úr skáldsögunni LAUSNIN eftir Arna Jónsson 226 blaðsíður í lausasölu kr. 240.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 170.00 Þegar ég kom upp, hafði Erla kastað af sér skónum rétt við loftskörina, varpað feldinum á stól í borðstof- unni og kveikt á rafofninum. Nú stóð hún við eldhús- bekkinn og beið þess, að hitnaði á katlinum. — Áttu sígarettu? Ég þreifaði í vösum mínum, en fann ekkert. Konan horfði á mig þreyttum spurnaraugum, hristi svo höfuð- ið og gekk orðlaus inn í borðstofuna. Ég fann Carlsberg-flösku í kæliskápnum, opnaði hana og renndi úr henni. Ég ætlaði að svipast um eftir tappa- 1 Ég fann, að einhver kippti í mig. Andartak deplaði ég sljóum augum í ljósið. — K'nrndn. É cr hef ekki lykil. Eg áttaði mig samstundis. Bíllinn stóð við hliðið á Bárugötu 44. Erla reis úr sæti og lauk upp bílhurðinni. En þegar hún steig út, skrapp henni fótur í skreipum snjónum og hún féll á stéttina. Við bílstjórinn snöruðumst báðir út götumegin, en áður en við komumst út á stéttina, var Erla risin á fæt- ur. Hún kvaðst með öllu ómeidd. Ég dustaði fönnina af bifurfeldi hennar. Hröðum og stökkvandi, svolítið óstyrkum skrefum gekk hún inn stéttina og hljóp upp þrepin. Ég borgaði bílstjóranum. Hann bauð góða nótt. Bíllinn rann á braut. Um leið og ég sneri mér við, sá ég eitthvað dökkt í mjöllinni fyrir fótum mínum. Það var svartur skinnglófi. Erla hafði misst hann í fallinu. Ég lokaði hliðinu og þræddi spor konunnar upp þrep- in. Hún stóð við dyrnar og beið mín. — Flýttu þér. Ég er að drepast úr kulda. Hún stappaði fótum linkulega í pallinn, hélt loðkrag- anum skjálfandi höndum fast að hálsi og huldi næstum höfuð sitt í feldinum. Ég hleypti henni inn. Hún hljóp inn ganginn og upp stigann, án þess að skeyta um snjóinn á fótum sér. Ég lokaði hurðinni, hengdi upp frakkann minn og fór tóm- lega að öllu. 18 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.