Heima er bezt - 01.01.1964, Page 27

Heima er bezt - 01.01.1964, Page 27
stofunni, gluggar kafloðnir af hélu og þiljur héluslegn- ar, svo að í stirnir, þegar ég kveiki ljósið. Eg hef svo snör handtök sem ég má við að afklæðast og komast undir yfirsængina, en nú hverfur ekki kaldan, hversu vandlega sem ég hreiðra mig niður í rúmið og breiði yfir höfuð. Eftir nokkra stund kemur Sigga fram til mín, hefur víst misst áhugann fyrir spilunum, eftir að ég gekk las- inn frá leik. Henni bregður við, er hún sér skjálftaflog mín, fyllir í skyndi flöskur af heitu vatni, og raðar við bakið á mér. Rénar þá kaldan, en verkirnir harðna, svo ég ber naumast af mér. Um venjulegan háttatíma gengur Sigga til hvílu hjá mér, en svefnfátt verður henni. Rís hún brátt úr rekkj- unni, klæðist og fer að gera mér bakstra við bakið. Vindur hún þykkan vaðmálsdúk upp úr sjóðheitu vatni og leggur við bak mitt. Lítið eitt dregur það úr sár- ustu kvölunum, en skammvinn fró verður það. Kval- imar, sem ég líð nú, eru slíkar, að ég finn engin orð til að lýsa þeim. Löngum finnst mér sem gaddur væri rekinn upp eftir hryggnum á mér og sé honum þar snúið og bakið allt tætt og rifið upp að herðablöðum. Brátt hætta votu bakstrarnir að veita nokkra fró. Bið ég þá Siggu að hætta við þá og fara í rúmið og reyna að sofa. En hvoragu okkar kom dúr á auga þessa nótt. Þannig heilsar árið 1915 okltur. Nýársdagurinn rennur, og gráföl dagsskíman seytlar inn um héluloðinn gluggann. Hélan á þiljunum hefur aukizt um nóttina við gufuna frá votu bökstrunum. Kuldinn í stofunni er enn þá bitrari en kvöldið áður. Það verður því að ráði fyrir tilmæli Siggu, að þeir Tómas og Jón mágsi, sem er gestkomandi á Brettings- stöðum, bera mig til baðstofu, þar sem hlýrra er, og er mér þar búinn sjúkrabeður. Þjáningar mínar eru jafn óbærilegar og um kvöldið og nóttina, en nú hefur kald- an alveg vikið fyrir brennandi sótthita. Mér finnst sem iíkami minn brenni. Sigga víkur ekki frá hvílu minni. Hún þerrar svit- ann af andliti mínu og er stöðugt reiðubúin að rétta mér hjálpandi hönd, ef ég óska einhvers. Mér finnst dagurinn aldrei ætla að líða, sótthitinn brennir, og kval- irnar slíta og rífa líkama minn. Stundum sortnar mér fyrir augum, og mér finnst framandi verur á ferli í baðstofunni. Slíkar sýnir hverfa þó alltaf, ef ég beini augum mínum til Siggu, sem stöðugt situr við rekkju- stokk minn. Nokkru eftir nón fækkar í bænum. Bræðurnir, Tóm- as og Jón ásamt Guðnýju, Guðrúnu og Siggu litlu Stef- áns, fara á skemmtisamkomu, sem haldin er á Hólum í Laxárdal. Þegar klukkan er um það bil hálf sex dregur úr sár- ustu þrautunum, svo ég festi blund. Sigga telur, að sá svefn hafi staðið fimmtán til tuttugu mínútur. Þegar ég vakna aftur til fullrar meðvitundar, er svo högum skipt, að mér er þorrinn allur máttur, ég get aðeins velt höfðinu lítið eitt til á koddanum. Engin orð fá lýst þeirri skelfingu og angist, sem gríp- ur mig, þegar mér verður ljóst, að ég má mig hvergi hreyfa. Mér finnst hjartað í brjósti mér stöðvast, og ég hygg, að banastund mín sé runnin. En það ástand varir aðeins augnablik, hjartað tekur að hamast, slær nú þungum og tíðum slögum, og titringur fer um líkama minn. Stund mín er ekki enn þá komin. Nú sé ég, að Siggu er brugðið, þegar hún skynjar ástand mitt. Skelfingin speglast í svip hennar, og tár hrynja henni af augum, en aðeins augnabliksstund. Þá harkar hún af sér, og ég sé henni aldrei bregða framar í öllu veikindastríði mínu. A þessari stundu var sem hún brynjaðist og hertist gegn öllum þeim erfiðleikum, sem hún varð að þola á næstu vikum og mánuðum. Hún lét aldrei bugast, og stilling hennar, ástúð og fórnfýsi tíma þá, sem nú fóru í hönd, virtust engin takmörk sett. Ég mun þó oft hafa verið erfiður sjúklingur næstu vikurn- ar og þoldi aldrei, að neinn kæmi nærri mér annar en hún, enda vék hún naumast frá rúmi mínu fyrstu vik- urnar, sem ég lá sjúkur. Kvalirnar í bakinu minnka þegar ég er orðinn lam- aður, en því sárari era þær í fótunum og einkum í öll- um liðamótum. Öðra hverju rennur á mig óvært mók, en Sigga er alltaf að reyna að hreyfa mig eitthvað og hagræða í rúminu. Máttleysið, sem nú bætist við þraut- irnar, er svo þrúgandi. Fólkið kom heim af skemmtuninni í Hólum klukkan sjö um morguninn. Sló þá miklum óhug á alla, er þeir fréttu af líðan minni. Eitthvað mun Sigga hafa minnzt á að ná í lækni, en þó varð það ekki að ráði, enda ekki venja á þessum árum að leita læknis fyrr en í fulla hnef- ana. Sjálfur var ég svo sljór og lamaður, að ég lagði ekkert til þeirra mála. Fyrstu sólarhringana, sem ég lá, gat ég ekki losnað við þvagið, og olli það mér hinum sárustu þrautum. Ég undrast nú það tómlæti okkar allra að ná ekki í lækni svo kvalinn sem ég var. Hann hefði þó alltaf getað los- að mig við þrautirnar af þvagteppunni. Að kveldi þriðja dagsins, sem ég lá, var ég svo þjáður af þvagteppunni, að ég bjóst við að blaðran mundi springa. Það kvöld fannst mér óhugsandi, að ég mundi lifa næsta morgun, og það kvöld klifaði ég löngum á því, að ég vildi deyja. Ég var þá vonlaus um bata, og saman við líkamlegar þrautir ófst hugarkvölin um það að eiga máske að verða ósjálfbjarga aumingi alla ævi. Þetta kvöld var ákveðið að ná til læknis, ef þvagið fengi ekki framrás. Um nóttina tók þvagið að streyma, án þess að ég gerði mér það Ijóst. Fór það allt í rúmið og rann í tjöm fram á baðstofugólfið. Fjórir dagar liðu. Þá kom Sigurmundur læknir á Breiðumýri til mín á leið til Mývatnssveitar. Hann greindi strax sjúkdóm minn. Ég var haldinn af mænu- sótt eða lömunarveiki. Þann sjúkdóm höfðum við naumast heyrt nefndan og engum dottið hann í hug. Læknirinn sagði, að eins og sakir stæðu væri ekkert hægt fyrir mig að gera, en þegar veikindin færu að rjúka af og ég hresstist, mundi hann reyna að veita mér einhverja hjálp. Heima er bezt 23

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.