Heima er bezt - 01.01.1964, Síða 32

Heima er bezt - 01.01.1964, Síða 32
ÞATTUR ÆSKUNNAR NAMSTJ RITSTJORI HVAÐ UNGUR NEMUR er skotiá aá Bald ri Gylfaginning er ein af þeim perlum bókmenntanna, sem hefur jafnt gildi fyrir unga sem aldna. Frásögnin er svo snjöll að hún hrífur alla, en á bak við frásögn- ina er falin margháttuð lífsspeki, sem nokkum þroska þarf til að skilja. í þessum þætti vil ég leyfa mér að taka upp stuttan kafla úr Gylfaginningu, sem þannig hljóðar: „En það er upphaf þeirrar sögu að Baldur hinn góða dreymdi drauma stóra og hættliga um líf sitt. En er hann sagði ásunum draumana, þá bám þeir saman ráð sín, og var það gjört að beiða griða Baldri fyrir alls konar háska, og Frigg tók svardaga til þess, að eira skyldu Baldri eldur og vatn, járn og alls konar málm- ur, steinar, jörðin, viðimir, sóttirnar, dýrin, fuglarnir, eitrið, ormarnir. — En er þetta var gjört og vitað, þá var það skemmtun Baldurs og ásanna, að hann skyldi standa uppi á þingum, en allir aðrir skyldu, sumir skjóta að honum, sumir höggva til, sumir berja grjóti. En hvað sem að var gjört, sakaði hann ekki, og þótti þetta öllum mikill frami. En er þetta sá Loki Laufeyjarson, þá líkaði honum illa, er Baldur sakaði ekki. Hann gekk til Fensalar til Friggjar og brá sér í konulíki. Þá spyr Frigg, ef sú kona vissi, hvað æsir höfðust að á þinginu. Hún sagði, að allir skutu að Baldri, og það, að hann sakaði ekki. J>á mælti Frigg: „Eigi munu vopn eða viðir granda Baldri, eiða hef ég þegið af þeim öllum.“ Þá spyr kon- an: „Hafa allir hlutir eiða unnið að eira Baldri?“ Þá svarar Frigg: „Vex viðarteinungur einn fyrir vestan Valhöll. Sá er mistilteinn kallaður; sá þótti mér ungur að krefja eiðsins.“ Því næst hvarf konan á braut, en Loki tók mistilteininn og sleit upp og gekk til þings. En Hörður stóð utarlega í mannhringnum, því að hann var blindur. Þá mælti Loki við hann: „Hví skýtur þú ekki að Baldri?“ Hann svarar: „Því, að ég sé ekki, hvar Baldur er, og það annað, að ég em vopnlaus.“ Þá mælti Loki: „Gerðu þá í líking annarra manna og veit Baldri sæmd sem aðrir menn. Ég mun vísa þér til, hvar hann stendur. Skjót að honum vendi þessum.“ Hörður tók mistiltein og skaut að Baldri að tilvísan Loka. Flaug skotið í gegnum Baldur, og féll hann dauður til jarðar, og hefur það mest óhapp verið unn- ið með goðum og mönnum.“ Við þetta brá ásum svo að þeim féllust hendur. Þarna var griðastaður og enginn mátti hefna fyrir ódæðið. Svikarinn Loki slapp úr höndum þeirra, en Hörður blindi var í raun og veru saklaus, því að hann vissi ekki, hvað hann gerði. Nú var Baldur kominn til Heljar og þaðan áttu eng- ir afturlcvæmt. Goðin vildu þó gera tilraun. Frigg sagð- ist veita allar ástir sínar og hylli þeim, er treystist til að ríða Helveg og freista að fá Baldur lausan frá Hel. Wmrf // B PelJI ■aji; fflM

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.