Heima er bezt - 01.01.1964, Síða 45

Heima er bezt - 01.01.1964, Síða 45
 ■ . Síðasti þáttur getraimarinnar um tjaldið, svefnpokann og bakpokann fyrir unga lesendur „HEB“ á aldrinum 13-16 ára. Við vonum að þið séuð þegar búin að leysa fyrstu 2 þrautimar, svo að þið getið strax tekið til óspilltra málanna við að leysa 3. og síðustu þrautina í getrauninni, sem þið sjáið hér neðst á síðunni. Og verðlaunin eru eins og áður getur um: 1. VERÐLAUN: Þriggja manna tjald. 2. VERÐLAUN: Svefnpoki og 3. VERÐ- LAUN: Bakpoki. Öll þessi glæsilegu verðlaun eru framleidd úr beztu fáanlegum efnum hjá Belgjagerðinni í Reykjavík, sem fyr- ir löngu hefur hlotið almenna viðurkenningu fyrir vandaðan frá- gang á útileguútbúnaði sínum, sem er sérstaklega framleiddur með það fyrir augum að standast hið svala íslenzka loftslag. :: 1, 3. ÞRAUT. ÞEKKIÐ ÞIÐ FUGLANA? Og hér sjáið þið síðustu tvær skuggamyndirnar af alkunnum ís- lenzkum fuglum, sem þið ættuð að þekkja. - Þcssi fuglar eru: Nr. 5........................... Nr. 6 ............................. Þegar þið eruð viss um að þekkja alla 6 fuglana, þá skrifið þið nöfnin á þeim í réttri röð á blað, sem þið sendið síðan til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri. Munið að merkja blaðið greini- lega með nafni ykkar og heimilisfangi. Svörin þurfa að hafa bor- izt afgreiðslu blaðsins fyrir 15. apríl n. k. Berizt fleiri en ein rétt ráðning verður dregið um verðlaunin úr réttum svörum. l»að get- ur borgað sig vel fyrir ykkur að vera með. Heima er bezt 41

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.