Heima er bezt - 01.07.1964, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.07.1964, Blaðsíða 18
HULDA Á. STEFÁNSDÓTTIR s úsmœhur Fundur Sambands norðlenzkra kvenna var hald- inn í Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli við Akureyri, dagana 8.—10. júní sl. Sambandið er nú 50 ára. Var fyrsti stofnfundur þess haldinn á Akureyri dagana 17.—23. júní 1914. Var afmælisins minnst með ýmsum hætti. Var fyrsti fundardagurinn sannkölluð há- tíð, er hófst með messugjörð í Akureyrarkirkju. Séra Pétur Sigurgeirsson prédikaði, kirkjuorganistinn, Jakob Tryggvason, lék á orgelið, en konurnar sungu. Eftir messu fengu kirkjugestir að skoða sig um í hinni fögru kirkju og dáðust mjög að þeim undurfögru listaverk- um, sem hún er prýdd. Frá kirkju var gengið í Lystigarðinn og hann skoðað- ur, en þar er mikil gróska og fjöldi fagurra blóma eftir óvenjugott vor. Þá sátu fundargestir hádegisverðarboð hjá Kaupfé- lagi Eyfirðinga. Veizlustjóri var Brynjólfur Sveinsson yfirkennari, og bauð hann gesti velkomna með snjallri ræðu. Var hóf þetta mjög ánægjulegt og voru margar ræður fluttar. M. a. fluttu ræður: frú Halldóra Bjarna- dóttir, er lengst af hefur verið formaður sambandsins, frú Aðalbjörg Sigurðardóttir, er var ein af stofnendum sambandsins, og Hulda Á. Stefánsdóttir, núverandi for- maður. Að hófinu loknu var fundarkonum sýnt vistlegt og vel búið fundarherbergi kaupfélagsstjórnarinnar í kaup- félagshúsinu. Fundargestir stefndu nú út að Bjargi, sem er hús styrktarfélags fatlaðra á Akureyri. Þar var komið fyrir heimilisiðnaðarsýningu, er Margrét Hallsdóttir frá Siglufirði og Kristín Jakobsdóttir í Flólum settu upp og höfðu umsjón með, á meðan fundurinn stóð yfir. Þarna voru sýndir munir frá norðlenzku húsmæðraskól- unum fjórum: Blönduósi, Löngumýri, Laugalandi og Laugum. Var þarna sýnd margs konar handavinna og vefnaður frá sl. vetri. Frá Æskulýðsheimili Siglufjarðar var sýnishom af verkum nemenda, svo sem bast- og tágavinna, lampar, perluvinna og margt fleira. Frá Norður-Þingeyjarsýslu og Strandasýslu voru sýndir gamlir munir, ofnir, prjónaðir, saumaðir og hekl- aðir og frá Leirhöfn á Sléttu loðskinnshúfur, prjónaðir vettlingar, ýmsir skrautmunir úr selskinni og útskomir munir úr tré og beini. Sýninguna sótti fjöldi gesta. Þá lá leiðin í Fataverksmiðjuna Heklu. Fengu fundar- konur að sjá verksmiðjuna undir leiðsögn verksmiðju- stjórans, Ásgríms Stefánssonar, og þótti mikið til koma að sjá fjölbreytta framleiðslu verksmiðjunnar og afköst véla. Kaffi var veitt í vistlegum matsal starfsfólksins. Um kvöldið var farið upp í Skíðahótelið og tóku þar á móti gestum konur úr Kvennasambandi Akureyrar, sem sá um framkvæmd fundarins. Form. þess, Soffía Thorarensen, bauð fundargesti velkomna, Ingibjörg Halldórsdóttir lék nokkur lög á píanó, en konurnar sungu. Þarna uppfrá stóð fundurinn í tvo daga. Sátu hann um 35 konur, stjórn, fulltrúar og gestir, en auk þeirra komu og fóru fjöldi kvenna, báða dagana, er vildi hlýða á eitthvað af því sem fram fór. Auk venjulegra aðalfundarstarfa voru mörg málefni Sambandsins rædd og erindi flutt báða dagana. — Þessi erindi voru flutt: Húsmæðrafræðsla, flutt af frú Dómhildi Jónsdótt- ur. Garðrækt, flutt af Jóni Rögnvaldssyni, garðyrkju- manni. Skógrækt, flutt af Steindóri Steindórssyni, yfirkenn- ara. Heimilisiðnaður, flutt af frú Halldóru Bjarnadóttur. Uppeldismál, flutt af frú Aðalbjörgu Sigurðardóttur. Orlof húsmæðra, flutt af Aðalbjörgu Sigurðardóttur. Umræður voru eftir öll erindin og margar ályktanir og tillögur samþykktar. Mjög var til umræðu framtíð Sambandsins og virtust fundarkonur einhuga vilja vinna að eflingu þess og styrkja það í starfi. Myndarlegt afmælisrit var samið af Halldóru Bjarna- dóttur og formönnum sambandsdeildanna og gefið út í tilefni af afmælinu. Sambandinu bárust margar góðar gjafir og fjöldi kveðjuskeyta, m. a. frá Akureyrarbæ, er færði sam- bandinu peningagjöf. Allar sambandsdeildirnar höfðu áður sent sambandinu peningagjafir í afmælisgjöf. Fjórir af stofnendum sambanadsins sátu þennan fund, þær Halldóra Bjarnadóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir, 258 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.