Heima er bezt - 01.07.1964, Side 25

Heima er bezt - 01.07.1964, Side 25
var tekið í taumana. iMörkin var girt og friðuð að mestu, og Skógrækt rílósins tók að sér eftirlit með skóg- argróðrinum. Síðan hefur skógarleifunum farið mjög fram og árlega eru nú gróðursettar í Mörkinni þús- undir trjáplantna. Ég sagði fyrr í þessum þætti, að tveir væru þeir merk- ir staðir á landi hér, sem tæplega væri hægt að lýsa, en þá þyrfti helzt að skoða. Ér sjón sögu ríkari. En þó hafa nákunnugir menn reynt að lýsa þessum undra- verðu, töfrandi stöðum. Gestur Guðfinnsson segir svo í litlum bæklingi um Þórsmörk, sem hann hefur gefið út: „Þórsmörk er heimur mikilla andstæðna. Landslagið er hvort tveggja í senn, hlýlegt og hrikalegt.-Hún hefur að nábúum þrjá jökla yfirbragðsmikla, hvassar eggjar og brött fell bera hvarvetna við loft, djúpar gjár teygja sig langt inn í fjöllin, straumþung vatnsföll velta þar yfir sanda.“ En Jón R. Hjálmarsson skólastjóri í Skógaskóla lýsir Þórsmörk þannig í inngangi að útvarpsþætti um Þórs- mörk: „Þegar ferðamaður er á leið um austurhluta Rangár- vallasýslu og kemur á Markarfljótsaura, opnast í austur- átt dalur mildll milli Fljótshlíðar og Þórólfsfells að norðan og Eyjafjalla að sunnan. Fyrir botni dals þessa er Þórsmörk og í blámóðu fjarskans má greina þar hæðir og dali, hálsa og fell. Að baki Þórsmerkur liggur hærra uppi hinn eilífi ís Mýrdalsjökuls og skriðjöklar hans teygja sig niður undir láglendið. I norðri rísa jök- ulkrýnd Tindafjöll og í suðri gnæfir Eyjafjallajökull „hátt yfir sveit“. Umhverfi Þórsmerkur er því tilkomumikið, þar sem hún hvílir græn og gróin, þrungin lífi og yndisþokka í köldum fjallafaðminum. Hvergi er meiri fegurð og hvergi meiri andstæður samankomnar í landslagi en á þessum slóðum, þar sem annars vegar eru hájöklar, hrikaleg gljúfur og fjöll, straumþung fallvötn og eyði- sandar, en á hinu leitinu sviphýr fell og skjólsælir dalir, þróttmikið víðikjarr og einiberjarunnar, grænar blóm- skrýddar brekkur og flatir, og stórvaxinn, ilmandi birki- skógur.“ Þettasegja þessir ágætu menn um fegurð og umhverfi Þórsmerkur, og hefi ég engu þar við að bæta, en sný þá máli mínu að fomri sögu Merkurinnar og þjóðsögum, sem við hana eru kenndar. Um Þórsmörk segir svo í Landnámu: „Ásbjörn Reyrketilsson og Steinfiður bróðir hans námu land fyrir ofan Krossá, fyrir austan Fljót (þ. e. Adarkarfljót). Steinfiður bjó á Steinfinnsstöðum, og er ekki manna frá honum komið. Ásbjörn helgaði landnám sitt Þór og kallaði Þórsmörk.“ Þetta segir Landnáma um upphaf byggðar á Þórs- mörk, en um framhald byggðarinnar eru sagnir óljósar. — Svo er að sjá af Sturíungu og Þorlákssögu, sem þá hafi byggð verið fallin niður, en ætíð hefur verið þar mikil umferð byggðarmanna í sambandi við fjárleitir, skógarhögg og kolagerð. — Líka munu sakamenn oft Stakkholtsgjá. hafa leitað þangað, ef þeir vildu leynast til að reyna að bjarga lífi sínu. I Þorlákssögu er sagt frá deilu Þor- láks biskups og Jóns Loftssonar, hins glæsilega höfð- ingja Oddaverja. Auk annarra mála, varð þeim það mjög að sundurþykkju, að Jón Loftsson, sem var giftur mað- ur, hafði haldið Ragnheiði systur biskups sem ástmey sína eða fylgikonu. Fyrir þetta athæfi vildi biskup setja Jón Loftsson í bann. Þá svaraði Jón biskupi þannig: „Veit ég að bann þitt er rétt og söldn nóg. Mun ég þola þín ummæli með því móti að fara í Þórsmörlc eða ein- hvern þann stað, er eigi sekist alþýða af samneyti við mig, og vera hjá konu þeirri, sem þér vandlætið um, þann tíma, sem mér Iíkar.“ — Ekki mun þó hinn skap- ríki höfðingi Jón Loftsson hafa látið hrekjast af óðali sínu, þótt hann tæki svo til orða við biskup í þetta sinn, en orð Jóns sýna það, að þá muni naumast hafa verið þar föst byggð. — í Njálu er talað um þrjá bæi í Þórsmörk, og segir þar svo: „Kári reið nú vestur fyrir Seljalandsmúla og upp með Markarfljóti og svo upp í Þórsmörk. Þar eru þrír bæir, er í Mörk heita allir. Á miðbænum bjó sá maður, er Björn hét og var kallaður hinn „hvíti.“ Er Björn í Mörk frægur úr Njálssögu, sem mesti raupari, sem sögur fara af. Var hann mesti hugleysingi, en fót- frár og mjög vel skyggn. Ekki vita menn nú hvar bær Björns í Mörk hefur verið í Þórsmörk, því að aldrei er neitt sagt frá þeim bæ á öðrum stað í Njálu, en aftur á móti er í Njálu talað um Ketil úr Mörk, gildan bónda einn af Sigfús- Heima er bezt 265

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.