Heima er bezt - 01.07.1964, Page 29

Heima er bezt - 01.07.1964, Page 29
sagt að breyta eitthvað til með kvöldverðinn að þessu sinni í tilefni af heimkomu hreppstjórasonarins. Eg geri líka ráð fyrir því, að Þorgrímur kunni betur við það. Steinvör brosir glaðlega og segir: — Varztu ekki undrandi, þegar Trausti kom hingað svona alveg óvænt? — Eg vissi sannast að segja varla, að hann væri til fyrr en í dag, að Þorgrímur kynnti son sinn fyrir mér. Það hefur enginn minnzt hér á hann við mig, síðan ég kom hingað. — Jæja, svo gamli maðurinn hefur þá aldrei áður sagt þér, að hann ætti son? — Nei, það hefur hann ekki gert. — Og Trausti hefur heldur aldrei borizt í tal okkar á milli fyrr en nú. Ég er alveg hissa á þessari þagmælsku minni, því svo vel hef ég þó munað hann, blessaðan drenginn minn. — Það skiptir engu máli, Steinvör mín, þó að mér hafi að mestu verið ókunnugt um tilveru hans. En veiztu, hvort hann ætlar að vera lengi hér heima? — Nei, ég spurði hann ekkert um það. En ég vona, að hann sé alkominn hingað heim. Hann er áreiðanlega sami ljúfi og góði drengurinn, og þegar hann fór að heiman. Það fann ég strax, þegar hann heilsaði mér í dag. Trausti hefur alltaf verið mér kær sem minn eigin sonur væri. Finnst þér hann ekki vera glæsilegur piltur? Svanhildur andvarpar ósjálfrátt. — Hann er ólíkur Þorgrími, er hennar eina svar. Steinvör lítur hlýtt til Svanhildar og sér, að sársauka- drættir fara um svip hennar. Aumingja Svanhildur! hugsar hún. Trausti hefði átt að vera kominn heim eins og einu missiri fyrr, þá hefðu málin ef til vill staðið á réttlátari grundvelli en þeim er nú háttað. En Steinvör segir aðeins: — Já, þeir eru ólíkir, feðgarnir, og ég held að mér sé óhætt að segja í flestu. Trausti er lifandi eftirmynd móður sinnar. Guðlaug sáluga var bæði glæsileg og góð kona. — Já, ég hef heyrt, að svo hafi verið. Svanhildur kreistir ofurlítið bros fram á varir sínar og segir síðan: — Finnst þér ekki rétt að láta hreppstjórasoninn sofa í gestastofunni, Steinvör mín? Hann er sjálfsagt orðinn vanur því að hafa einkaherbergi til afnota. — Jú, það finnst mér alveg sjálfsagt að þú gerir, góða mín. — Þá hef ég það svona. Svanhildur hefur nú lokið að bera kvöldverðinn á borðið, og innan lítillar stundar eru feðgarnir ásamt vinnufólkinu setztir að ríkulegum kvöldverði. Vorkvöldið er kyrrt og hljótt. Svanhildur hefur lok- ið eldhússtörfunum að þessu sinni og gengur inn í gesta- stofuna til að inna þar af hendi síðasta verk dagsins, að búa hreppstjórasyninum þar hvílu. I stofunni er eng- inn, þegar Svanhildur kemur þangað. Feðgarnir fóru að heiman þegar að loknum kvöldverði, og Svanhildur hef- ur ekki orðið þess vör, að þeir væru komnir aftur. Stofan lítur eins vistlega út og framast er unnt, og þar þarf ekkert að lagfæra frekar. Svanhildur gengur að gestarúminu og fer að búa það upp. Sængurnar eru stór- ar og hlýjar að gömlum sið, og hún býr þær hvítu líni. En á meðan unga bústýran vinnur að þessu, leita nýjar spurningar fram í huga hennar: Skyldi hreppstjórasonurinn vera alkominn hingað heim að Fremra-Núpi? Eða skyldi hann aðeins hafa komið sem gestur? Það hlyti að verða breyting á heim- ilislífinu, ef ungur, sigldur og lærður maður bættist þar í fámennan hóp. En hvernig yrði sú breyting fyrir hana? Varla til mikillar gleði innan þeirra viðja, sem hún nú er fjötruð í. En heimkoma hreppstjórasonarins hefði ef til vill getað orðið henni ævintýri, ef .... Nei, hún vildi óska þess, að hann væri hér aðeins sem gestur. Hún kvíðir því að umgangast hann. Allt í einu heyrir Svanhildur óm af samtali úti á hlað- inu, og eftir örstutta stund er stofuhurðinni lokið upp og Trausti stendur við dyrnar með tvær stórar ferða- töskur, sína í hvorri hendi. Hann lítur inn til Svanhild- ar og spyr síðan brosandi: — Má ég bera töskurnar mínar hingað inn? Svanhildur snýr sér að Trausta og mætir nú í fyrsta skipti brosi hans björtu og hlýju. Hún lítur þegar und- an og svarar lágt: — Já, gerðu svo vel. Þú hefur þessa stofu til umráða, á meðan þú dvelur hér. — Ég þakka þér fyrir það, það þykir mér ágætt. Hann snarar töskunum inn á stofugólfið og gengur síðan út aftur til að sækja þriðju töskuna. En Svanhildur lýkur í flýti við að búa um rúmið og hraðar sér svo fram úr stofunni, áður en Trausti kemur þangað inn aftur. Hún hugsar sér að umgangast hann eins lítið og við verður komið, en þó með fullri háttvísi. Og í kvöld finnur hún enga ástæðu til þess að ræða frekar við hann. Trausti kemur brátt inn aftur í stofuna með síðustu ferðatöskuna og litast þar um, en nú er unga bústýran horfin á brott. Hún hefur ekki verið lengi að fjarlægja sig, hugsar hann örlítið vonsvikinn og setur töskuna frá sér. Þorgrímur hefur lokið við að bera ýmis verkfæri son- ar síns inn í skemmuna til geymslu þar, og þeir feðgar hafa boðið hvor öðrum góða nótt. En strax að morgni næsta dags skal byrja að mæla fyrir grunni nýja húss- ins. Trausti kemur farangri sínum fyrir í stofunni, en leggst svo að því loknu til hvíldar. Hvílan sem bústýr- an unga hefur búið honum, er drifhvít, mjúk og hlý, og djúp unaðarkennd fer um langferðamanninn, er hann hallar sér út af. Svipmyndir heimkomudagsins líða leiftursnöggt fyrir hugskotssjónum Trausta, bjartar og hlýjar, og allar gefa þær góð fyrirheit um komandi daga. Andvari næturinnar streymir svalur og hressandi inn um hálfopinn gluggann á stofunni, og friður svefns- ins lyftir brátt vitund unga verkfræðingsins upp í æðra veldi. Heima er bezt 269

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.