Heima er bezt - 01.07.1964, Síða 33

Heima er bezt - 01.07.1964, Síða 33
og heit bæn stígur til himins frá sál hinnar ungu stúlku, bæn um að mega standast eldraunir lífsins. Já, allt get- ur þetta, sem þjáir hana nú, orðið henni til blessunar um síðir, missi hún aldrei trúna á sigurmátt hins góða, þótt henni finnist fórn sín vera þungbær nú. — Svan- hildur finnur nýjan kraft streyma um sig að ofan, og hún ætlar aldrei að láta bugast.------ Séra Jón lyfir upp höndum sínum og blessar yfir söfnuðinn. Messugerðinni er lokið. Þau þrjú frá Fremrá-Núpi ganga saman út úr kirkjunni, en nema staðar fyrir utan hana og litast um. Kirkjufólkið þyrp- ist þegar um Trausta til þess að heilsa honum og bjóða hann velkominn heim. Það hefur frétzt um sveitina, að hann sé kominn heim að Fremra-Núpi, orðinn verkfræðingur og byrjaður að byggja stórhýsi fyrir föður sinn. Sveitungamir líta upp til þessa siglda, hálærða og glæsilega unga manns. Þetta er þá orðið úr hæggerða drengnum, sem eitt sinn lék sér heima á Fremra-Núpi og vakti að sögn ekki háar vonir hjá föður sínum. Trausti finnur hlýhug og aðdáun sveitunga sinna streyma til sín, og það er honum mikið gleðiefni. Hann kannast við allt þetta fólk, þó að hann þekkti sumt af því lítið í æsku, og hann endurgeldur hlýhug þess með alúð sinni og háttvísi, sem einkennir viðmót hans. Séra Jón kemur nú út úr kirkjunni. Hann gengur til Trausta, heilsar honum og býður hann velkominn með föðurlegum innileik. Þeir eru gamalkunnir. Síðan býð- ur presturinn Trausta, ásamt öllu messufólkinu, til kaffi- drykkju. En það er föst venja á Stað að bjóða öllum er þangað sækja kirkju, til kaffidrykkju að lokinni messugerð. Trausti sezt þegar að veiziuborði með sveitungum sínum, og allir keppast þeir um að spjalla við hann. Enda kann hann frá mörgu að segja erlendis frá, sem sveit- ungum hans þyldr fróðlegt og ánægjulegt á að hlýða. Loksins nær séra Jón tali af Trausta einum, en þá eru flestir kirkjugestirnir farnir frá Stað. Trausti er einnig á förum og kominn út á hlað ásamt Steinvöru og Svan- hildi, sem búnar eru að kveðja prestinn, en bíða Trausta álengdar. Trausti tekur í hönd séra Jóni og þakkar hon- um veittar velgerðir og ætlar síðan að kveðja hann, en prestur þrýstir hönd hans og segir: — Ég hefði haft ánægju af því, Trausti minn, að mega ræða við þig lengur í góðu næði, en til þess er víst lítill tími núna. Trausti brosir. — Ég sé að kvenfólkið er ferðbúið og vill fara að komast af stað heim, og ég vil síður missa af samfylgd þess. En vonandi ber fundum okkar bráð- lega saman aftur, séra Jón, svo að við getum ræðst meira við. — Já, vinur minn, ég vona það. Ertu ekki alkominn heim? — Fleim til íslands að minnsta kosti. — Og þú ert strax farinn að byggja stórhýsi á Fremra- Núpi, eftir því sem ég hefi frétt. — Já, ég tók það að mér fyrir pabba að sjá um bygg- ingu á nýju íbúðarhúsi. Hann vantaði mann til þess, þegar ég kom heim. — Þú ferð nú bráðum að taka við þessu öllu saman af gamla manninum. — Ekki geri ég ráð fyrir því, hann hugsar sér varla að hætta búskap að sinni. — Nei, líklega ekki. En þið gætuð báðir búið á Fremrá-Núpi, fegðarnir, jörðin er stór, og svo þegar nýja húsið er fullgert, ættu ekki að verða nein vandræði með húsnæði, þótt bændurnir yrðu tveir. — Nei, þar rúmast áreiðanlega tvær meðal fjölskyld- ur. — Og svo er gamli maðurinn búinn að ráða unga bú- stýru að Fremra-Núpi. Það bregður fyrir örlítilli góð- látlegri glettni í augum prestsins, sem Trausti kannast vel við frá fornu fari, og endurgeldur glettni hans með 5 D D D brosi 02; segir svo: Ö D — Já, Steinvör hafði orðið fyrir því slysi að fótbrotna síðastliðið haust, og þess vegna varð breyting á heimilis- stjórninni. — En Steinvör er vonandi búin að ná sér að fullu eft- ir beinbrotið? — Já, hún segir það vera. — Svo að hún gæti þá aftur tekið við bústjóminni hjá gamla manninum. Ennþá er sama glettnin í augum séra Jóns, og Trausti svarar því aftur með brosí. — Þú meinar kannsld, ef hún breytti um stöðuval? — Já, það er einmitt það, sem ég meina, og við því má nú alltaf búast. — Já, því ekki það. Þeir brosa báðir. Séra Jón veitir því nú athygli, að Steinvör og Svan- hildur em lagðar af stað ofan heimtröðina frá bænum, svo að hann má víst ekki tefja Trausta lengur. — Jæja, vinur minn, ég má ekki tefja þig lengur, seg- ir hann. — Ég sé að kvenfólkið er lagt af stað héðan. Trausti lítur ofan eftir heimtröðinni. — Já, þær eru bara farnar á undan mér, en ég kann betur við að leggja reiðtygin á hestana fyrir þær. — Þú nærð þeim líka nógu snemma til þess, segir séra Jón. Hann þrýstir hönd Trausta að nýju, og svo kveðj- ast þeir með hlýjum innileik. Síðan hraðar Trausti sér á eftir þeim Steinvöru og Svanhildi, sem komnar eru spölkorn áleiðis frá kirkju- staðnum, og nær hann þeim brátt. Séra Jón stendur kyrr á hlaðinu og horfir á eftír ferðafólkinu. í hans augum eru þau Traustí og Svan- hildur ímynd æsku, manndóms og fegurðar, og honum finnst þau bera af öðru æskufólki sveitarinnar. Hann þekkir þau líka bæði frá barnæsku, og hafa þau bæði verið honum einkar kær. Hann minnist þess, hve þeim báðum gekk prýðilega vel að læra undir ferminguna hjá honum. — Það yrði ánægjulegt embættisverk að vígja þau til samfylgdar á lífsleiðinni, hugsar séra Jón og gengur brosandi inn á prestssetrið. Heima er bezt 273

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.