Heima er bezt - 01.07.1965, Side 5
Bær á Höfðaströnd. Þórðarhöfði i baksýn.
Höfuðbólið Bær í Hofshreppi er yzt innan
Þórðarhöfða samkvæmt gamalli þingboðsleið
og annarra umburðarbrefa, sem áttu að ganga
bæ frá bæ um hreppinn í þá daga. Þórðar-
höfðinn, sem talinn er einn af útvörðum Skagafjarðar,
er þröskuldur milli Bæjar og Málmeyjar.
Málmey tilheyrir Hofshreppi og er nyrsti bærinn í
þeim hreppi, þó hún liggi vestur á Lónkotsmöl (Fells-
hreppi).
Líklega er það rifið svokallaða, sem liggur frá eynni
að höfðanum, sem hefir ráðið úrslitum um það, að
Málmey tilheyrði Hofshreppi. Svo ekki meira um
þetta.
Síðan árið 1899 hefir sami ættleggurinn búið á þess-
ari jörð eða í 76 ár.
Konráð Jónsson hreppstjóri frá Miðhúsum í Óslands-
hlíð keypti þá Bæ, fyrri hálflenduna, fyrir 600,00 kr.,
en síðari helminginn fyrir 1400,00, samtals kr. 2000,00.
Er þetta svipuð upphæð og ein góð ær gefur af sér í
brúttó afurðum nú í ár.
Konráð var helzti forustumaður sveitar sinnar og
sýslu í opinberum störfum. Hann var kvæntur Ingi-
björgu Gunnlaugsdóttur frá Þrastarhóli í Eyjafjarðar-
sýslu. Konráð var mikill dugnaðarmaður bæði til sjós
og lands. Hann sagði meiningu sína umbúðalaust og
hélt sannfæringu sinni ákveðið fram, hver sem í hlut
átti. Haft er eftir honum: „Það er mannlegt að reiðast,
en djöfullegt að erfa.“ Hann var um mörg ár formað-
ur á árabátum sínum, og hefir vafalaust sagt hásetum
sínum það greinilega fyrir verkum að þeir hafi vitað
hvað þeir áttu að vinna. Konráð var hreppstjóri Hofs-
hrepps árin 1871—1905 eða í 34 ár. — Sonur þeirra
hjóna, Konráðs og Ingibjargar, Jón, var einbirni, hann
var kvæntur Jófríði Björnsdóttur frá Gröf á Höfða-
strönd. Þau byrjuðu búskap í Bæ árið 1900 og bjuggu
þar til 1930, en síðustu 4 árin í sambýli við Björn son
sinn og tengdadóttur, frú Kristínu.
Árið 1902 byggði Jón íbúðarhús úr timbri, sein á
þeim árum var talið eitt bezta íbúðarhús í sveit hér í
sýslu. Árið 1914 byggði hann steinsteypt fjárhús. Munu
það vera fyrstu fjárhúsin, úr því efni, hér í sýslu. Þessi
hús eru ennþá í notkun — og vel stæðileg. Samhliða bú-
skapanum rak hann sjávarútgerð frá Bæjarklettum.
Mótorbátar tveir voru gerðir út, „Trausti“ og „Valur-
inn“ og voru 4 eigendur að þessari útgerð. Á þeim ár-
um bjuggu nokkuð margar fjölskyldur á svokölluðum
Bæjarklettum, sem eru niður við sjó, og svo í kotun-
um, sem eru norðaustur af Bæ, standa við Höfðavatnið,
sem Bær á hluta í.
Lífsafkomu sína byggði þetta fólk að mestu leyti á
sjávarafla, ýmist gerðu út sjálfir og voru svo á bátum
þeim, sem Jón gerði út. Nú eru öll býli á báðum þess-
um stöðum horfin. Bæjarklettarnir voru þá ein mesta út-
gerðarstöð hér við Skagafjörð. Á þessum árum vann
Jón miklu meira að útgerðinni heldur en landbúnaðar-
störfum. Hann var landformaður og sá algerlega um
verkun aflans, sem þá var eingöngu saltaður að sumr-
inu, en nokkuð hert á öðrum árstímum.
í mörg ár var Kristinn Erlendsson, tengdafaðir
Björns, ráðsmaður yfir heyskapartímann. Kristinn var
Heima er bezt 241