Heima er bezt - 01.07.1965, Síða 6

Heima er bezt - 01.07.1965, Síða 6
uppeldisbróðir Jóns. Meðan Jóni fannst fulllítið töðu- fall í Bæ, tók hann Drangey á leigu til slægna, hún er sem kunnugt er í eigu Skagafjarðarsýslu. Voru syst- kinin oft við heyskap frammi í ey (Konráð, Björn og Geirlaug) og hafa vafalaust unnið að heyskapnum af kappi, enda vanizt snemma á að vinna, þar sem for- eldrar þeirra voru þannig, að þeim féll aldrei verk úr hendi. Eitt sinn er þau systkinin voru frammi við heyskap, urðu þau veðurteppt, og var búið að gera að minnsta kosti þrjár tilraunir til að ná þeim á mótorbát, en ekki hægt vegna kviku að komast út í bátinn. En þau voru ókvíðin og æðrulaus þó þannig tækist til. Jón var um mörg ár einn mesti forvígismaður allra félags- og framfaramála sveitar sinnar og sýslu. Jón var mælskur og áheyrilegur hvort heldur var á almenn- um fundum eða við önnur tækifæri. Hann var hrepp- stjóri Hofshrepps í 47 ár frá 1905—1952, tók við því starfi af föður sínum. Hann var í mörg ár í hreppsnefnd Hofshrepps, oddviti hreppsnefndar árið 1904—1907 og aftur 1919—1922. Sýslunefndarmaður frá 1930—1938. Formaður, um mörg ár, Búnaðarsambands Skagafjarð- arsýslu og Kaupfélags Fellshrepps síðar Kaupfélag Austur-Skagfirðinga, Hofsós. Jón mun hafa unnið að flestum félagsmálum í Hofs- hreppi, þó þau séu ekki frekar nafngreind hér. Börn þeirra Jóns og Jófríðar voru, Konráð, sem lengi var starfsmaður hjá SÍS utanlands og hér, einn af þeim sem kom með „Frekjunni“ til heimalandsins eftir stríð- ið. Konráð er dáinn fyrir nokkrum árum. Svo er Björn bóndi í Bæ, sem hefir verið þar allan sinn aldur, og eytt sínu æfistarfi í það að fegra og bæta jörðina bæði hvað húsakost og ræktun snertir. Yngst af systkinunum er Geirlaug, gift Þórði Pálma- syni kaupfélagsstjóra í Borgarnesi. Björn í Bæ, eins og hann er daglega kallaður, er fæddur 20. desember 1902, kvæntur frændkonu sinni Kristínu Kristinsdóttur, f. 8. janúar 1902. Þau hófu búskap í Bæ 1926, fyrstu 4 árin í sambýli við foreldra Björns. Þá voru þau ungu hjónin 24 ára gömul. Þau hafa tekið daginn snemma og hafa afkastað miklu dags- verki. Getur því sannast á þeim orðtækið: „Drjúg eru morgunverkin.“ í þeirra tíð hefur Bær tekið stórkost- legum breytingum. 242 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.