Heima er bezt - 01.07.1965, Side 9

Heima er bezt - 01.07.1965, Side 9
Sitjandi frá vinstri: Sigurlína Björnsdóttir, Kristín Kristinsdóttir, Björn Jónsson og Jófriður Björnsdóttir. Standandi frá vinstri: Haukur, Gunnar, Valgarð, Jón og Geir. opinberum störfum fremur en forfeður hans. — Hann hefir verið í stjórn flest allra félaga í sveit sinni og sýslu, að undanteknu kvenfélaginu. Þar hefir hans ekki verið getið svo ég viti til. Nú um nokkur ár hefir hann unnið hjá Kaupfélagi Austur-Skagfirðinga sem matsmaður á búvörur bænda, kjöt og ull, og er nú endurskoðandi kaupfélagsreikninganna í Hofsósi. Hann hefir verið hreppstjóri síðan 1952. Oft mun hafa komið í hlut konu Björns að ráða fram úr ýmsu viðkomandi búinu utan húss, þegar hann hefir verið fjarverandi, enda hefir hún sjálfsagt fylgzt vel með öllu, utan húss sem innan. Ég hefi heyrt Björn sjálfan segja, að þáttur konu sinnar væri sízt minni en sinn í þeirra búskapartíð, gagnvart allri þeirra afkomu. Ekki verða fengnar betri heimildir um störf Kristínar. Sýna þessi orð bóndans, hversu mikils hann metur og virðir konu sína, og er sjálfsagt um gagnkvæma skoðun að ræða frá Kristínu, gagnvart bónda sínum. Mín persónulega skoðun er sú, að ekki síður velti á hag heimilisins, ráð og dáð húsfreyjunnar, bæði með hagnýtingu fæðis og klæðis, og ekki sízt uppeldi barn- anna. Foreldrar frú Kristínar eru Kristinn Erlendsson frá Gröf, dáinn fyrir nokkrum árum, og Sigurlína Gísla- dóttir frá Neðra Ási í Hjaltadal. Þau hjón voru dugleg og fjölhæf til verka. Kristinn var um mörg ár barna- kennari og fékkst þó nokkuð við smíðar. Sigurlína var sérstaklega vel að sér í allri handavinnu, saumaði, hekl- aði og prjónaði. Á öllu því sem eftir hana sást, mátti segja: „Verkið lofar meistarann“. Nú dvelur hún á Elli- heimilinu Grund, en ekki mun hún oft sitja þar auðum höndum, og alltaf er sama glæsilega handbragðið á því, sem hún vinnur. Gísli forstjóri elliheimilisins er bróður- sonur Sigurlínu. Sr. SigurbjörnÁ. Gíslason, sem er prest- ur elliheimilisins, er líklega elzti þjónandi prestur lands- ins. Sr. Sigurbjörn hefir gíft flest börn Bæjarhjónanna, þau eru sjö og eitt fósturbarn. Talin eftir aldursröð. 1. Jófríður, gift Gunnari Þórðarsyni frá Lóni, lög- reglumanni á Sauðárkróki. 2. Jón, bóndi á Hellulandi, f. k. Perla Björnsdóttir frá Vestmannaeyjum, s. k. Þórunn Ólafsdóttir frá Hellu- landi. 3. Valgarð, héraðslæknir í Hofsós, kvæntur Hólm- fríði Runólfsdóttur frá Dýrfinnustöðum. 4. Gunnar, trésmíðameistari, Reykjavík, kvæntur Brvnhildi Jónsdóttur frá Mvila. 5. Sigurlína, gift Adam Jóhannssyni, bifreiðastjóra í Reykjavík. Heima er bezt 245

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.