Heima er bezt - 01.07.1965, Síða 10

Heima er bezt - 01.07.1965, Síða 10
Þórðarhöfði. 6. Geir, verzlunarstjóri, Vegamótum, Snæfellsnesi,. kvæntur Hönnu Körlu Proppé. 7. Haukur bóndi í Bæ, kvæntur Áróru Sigursteins- dóttur frá Hveragerði og Reynir Gíslason, fóstursonur og systursonur Kristínar. Hann er trésmiður og búsett- ur í Hveragerði. Það er sameiginlegt með þessum systldnum að þau eru dugnaðarforkar til allrar vinnu og setja ekki fyrir sig hvað gera skal, eftir því sem þörf krefur og fvrir liggur. Barnabörn Bæjarhjónanna eru nú orðin nær 30. Eftir nokkra áratugi verða komnar margar greinar af einum stofni. Nú geta Bæjarhjónin litið með sérstakri ánægju yfir þennan stóra hóp efnilegra afkomenda sinna. Einn þáttur er það í starfi Björns, sem ekki má gleym- ast og ætti að verða ungum mönnum til athugunar og eftirbreytni og komandi kynslóðum ómetanlegur auð- ur í bókmenntalegu tilliti. Það er að hann hefir haldið dagbók í fjöldamörg ár, skrifað niður daglega við- burði og gerir svo ársyfirlit um hver áramót. Svona færslur eru ómetanlegur fróðleikur og ættu slíkar bæk- ur að varðveitast í héraðsskjalasöfnum. Nú er fasteignamat á jörðinni kr. 141.600,00 eða sem næst brúttó ársafurðum af 100 ám, en skylt er að taka fram, að ekki má þá um nein vanhöld vera að ræða. En þrátt fyrir þennan mismun, sem nú er á verði jarðar- innar og var fyrir 76 árum, er matið á Bæ nú ekki nema lítill hluti af núverandi verðgildi, eftir því sem mundi kosta að gera slíka fjárfestingu, sem orðin er nú í dag. Ekki svo að skilja að Bær sé nein undantekning með þetta. Um allt land, í sveit og við sjó, er mikill munur á milli matsverðs og kostnaðarverðs. Foreldrar Björns eru látnir fyrir nokkrum árum og hvíla í heimagrafreit. Einnig eru þar jarðneskar leifar Konráðs bróður Bjöms. Á þessu tímabili hafa verið þrír Konráðar Jónssynir í Bæ, sá síðasti er ungur að árum og hefir notið bernskuáranna hjá ömmu sinni og afa í Bæ. Vonandi á honum eftir að hlotnast eitthvað af kostum nafna sinna, sem gætu orðið honum að liði á lífsleiðinni. Við erum stödd á hlaðinu í Bæ. Skagfirzki fjallahring- urinn blasir við. Mælifellshnjúkur með sínum myndar- brag í suðri. Drangey út og vestur á firðinum, sem fyrr á tímum var nefnd mjólkurkýr Skagfirðinga, enda kom þaðan margur málsverður á vorin, þegar þrengjast var farið í búi á mörgum býlum. Klukkan er 6. Sól í mið- aftanstað. Kvöldið kyrrlátt og fagurt. Fjöllin speglast í sléttum fleti fjarðarins og Höfðavatns. Bæjarhjónin geta litið yfir vel heppnað dagsverk, með lofgjörð og þökk. Hér er fjórði ættliðurinn að taka við stjómtaum. Mér dettur í hug ljóðlína eftir sr. Sigurð Norland í Hindisvík — „Ættliðir fjórir, athafnastórir“. — Gaman væri að geta skyggnzt það inn í framtíðina að mega sjá hvernig hér liti út eftir að næstu fjórir ætt- liðir skiluðu af sér. 246 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.