Heima er bezt - 01.07.1965, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.07.1965, Blaðsíða 34
irgefningu eiginkonu sinnar, heldur líka Guðs síns, — og hann var sem nýr maður á vegi lífsins. Brynja var tíður gestur hjá Sigurrósu, þegar Hörður var að heiman, og Sigurrós reyndist henni í öllu sem bezta móðir. Brynja eignaðist stórt og fallegt stúlku- barn, og Sigurrós tók það þegar við fæðingu á heimili 'sitt og gekk því í móður stað. En strax þegar Brynja var orðin heilbrigð eftir barnsburðinn, fór hún út til Frakklands og settist þar að hjá móðursystur sinni. — Xokkru síðar giftist hún frakkneskum manni og stofn- aði sitt eigið heimili í nágrenni frænku sinnar. Sigurrós og Brynja höfðu stöðugt bréfasamband sín á rnilli, og Sigurrós lét mynda Nönnu litlu Brynju-dótt- u.r ár hvert á afmælisdegi hennar, og sendi móður henn- ar, svo að hún gæti fylgst með uppvexti hennar og þroska eftir því sem tök væru á. Vorið sem Nanna var fermd, kom Brynja heim til íslands með manni sínum til þess að vera viðstödd ferm- ingu hennar. Sigurrós fór með Nönnu á Flugvöllinn til þess að heilsa þeim hjónunum. Foreldrar Brynju voru einnig þar til að fagna hjónunum og stóðu fremst og næst flugbrautinni, er farþegar stigu út úr flugvélinni. En viðstöddum til mildllar undrunar gekk Brynja rak- leitt framhjá foreldrum sínum og beina leið til Sigur- rósar og heilsaði henni fyrstri af öllum með innileik, en síðan Nönnu litlu og foreldrum sínum. Brynja og maður hennar dvöldu mánuð hérlendis, og er þau héldu aftur heimleiðis til Frakklands, fór Nanna litla með þeim til dvalar hjá þeim yfir sumarið. Um haustið kom hún svo heim aftur og hefir síðan dvalið á heimiii Sigurrósar og föður síns að undanskildum síð- astliðnum vetri, en þá stundaði hún nám í húsmæðra- skóla utan Reykjavíkur. Nanna er hin mesta fyrirmyndarstúlka, og Sigurrós til mikillar gleði frá því fyrsta. Og í dag er hún átján ára. Enn líður bjart bros um Andlit Sigurrósar. En hún er ekki lengur ein með endurminningum sínum. Gengið er um útidyr og inn ganginn. Sigurrós rís á fætur og geng- ur fram úr stofunni. Framhald. GJAFIR TIL HÚSS DAVÍÐS FRÁ FAGRASKÓGI. Einar Erlendsson, Vík í Mýrdal .......... kr. 300.00 Sveinn Brynjólfsson, Þingeyri, Dýrafirði . . — 100.00 Kvenfélagið Harpa, Helgustaðahreppi við Reyðarfjörð ............................. — 2700.00 Hjónin Kristín Gamalíelsdóttir og Helgi Gunnlaugsson, Hafursstöðum, Axarfirði . . — 3000.00 Beztu þakkir. F. h. Söfnunarnefndar. Sigurður O. Björnsson. Urslit í aukagetraun fyrir áskrifendur H.E.B., um Zetu-gluggatjalda-plaslí>rautir. Nafn sigurvegarans, sem dregið var út, úr fjöldamörgum réttum ráðningum, er: SIGFUS ÁRNASON, Stöpum, Kirkjuhvammshreppi, Vestur-Húnavatnssýslu. Heima er bezt óskar Sigfúsi til hamingju með vinn- inginn og biður hann ve! að njóta. (Rétt ráðning: Þórunn hyrna.) 270 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.