Heima er bezt - 01.07.1965, Síða 35
406. Fáðu mér strax bréfið! skipar garð-
stjórinn. Fljótur nú! Komdu strax með
bréfið! Ég tek bréfið upp úr vasanum, —
en ekki til að fá það andstæðing mínum
í hendur, heldur vini mínum — Mikka!
407. Mikki hleypur á brott í loftköst-
um af kæti yfir hlutverki sínu og trausti
mínu. Garðstjórinn sleppir þegar takinu
um fótinn á mér og tekur á harðasprett
á eftir hundinum.
408. Ég er samt hárviss um, að Mikki
lætur ekki ná í sig. Ég rís upp og hleyp
ofan að fljótinu. Þar er kæna garðstjór-
ans ennþá. Ég ýti henni á flot og spyrni
henni síðan hart frá landi.
409. Þá er Serkir kominn. Við flýtum
okkur að okkar bát og köllum hátt á
Mikka. Líður ekki á löngu, þar til hann
er kominn. Við förum allir út í bátinn
og ýtum brátt frá landi.
410. Okkur er borgið! Garðstjórinn er
nú kominn og hamast bálvondur á fljóts-
bakkanum, stekkur upp í loftið með
hnýtta hnefa og hótar öllu illu. Kæna
hans rekur burt fyrir straumi. Ég ræ yfir
að hinum bakka fljótsins.
411. Þegar heim er komið, heilir á húfi,
ráðgast ég við Serkir, hvað gera eigi við
bréfið. Segir Serkir eftir nokkra um-
hugsun: „Farðu bara með það beina
leið til Linds!“ Ég fellst á það og fer svo
strax til Linds.
412. Ég segi Lind alla söguna. Ég þótt-
ist vita, að hér væri um fjárkúgun að
ræða, segi ég. Og hverju sem yður var
hótað, taldi ég mér skylt að skila yður
aftur bréfinu, fyrst við náðum i það.
413. Það er þá gott að fá að vita, að
það var bara Fúksen, sem hér stóð að
baki, segir Lind. í fjárplógs-bréfi sínu
fullyrti hann að hér stæðu að baki sam-
tök, sem hótuðu að kæra mig sem svindl-
ara og pólitískan njósnara!
414. Ég er semsé erlendur borgari, skal
ég segja þér, og myndi verða vísað úr
landi, ef þess háttar rógburður kæmist á
kreik. En nú er ég öruggur. Þakka þér
hjartanlega fyrir, að þú afhjúpaðir Fúk-
sen!