Heima er bezt - 01.08.1965, Blaðsíða 36
NÍUNDI HLUTI
Undir fjögur augu? Það var s'etning sem Hanna hafði
ekki heyrt fyrr. Þau hin virtust öll skilja við hvað afi
ætti, svo hún kunni ekki við að játa opinberlega fáfræði
sína og spyrja. Hún yrði að komast að því með kænsku
seinna, eða þá spyrja afa og biðja hann að segja ekki
frá, hve heimsk hún væri. Undir fjögur augu? Ætli það
séu augu Guðs, sem þau eiga við? En hún hefir aldrei
heyrt getið um, að hann hafi nema tvö augu, enda skap-
aði hann manninn í sinni mynd að því er allir sögðu,
og engan mann hafði hún séð nema með tvö augu, —
já fyrir utan hann Pál eineygða, — en hann hafði nú
víst misst augað í slysi. — Jæja, það dugði ekki að brjóta
heilann meir um þetta að sinni, nóg var að starfa.
Það var eitthvert pukur í Ninnu og afa og strákun-
um. Hanna og Sonja fengu ekkert að vita hvað til
stæði. Jafnvel amma var tekin með í leynifélagið, en
hún svaraði engum óþarfaspurningum, bara brosti í
kampinn og sagði þeim að fara frá sér, hún hefði í
mörgu að snúast.
Og nú var tekið til að baka, niður í Koti og heima í
bæ, alveg kynstur af allskonar brauði, og afi og strák-
arnir máluðu kofann svo vel bæði að utan og innan, að
það náði ekki nokkurri átt að kalla hann kofa lengur. —
Jafnvel gólfið máluðu þeir, borðið og bekkina.
í eldhúsið, — eða það sem Ninna kallaði eldhús, skil-
rúm voru engin sýnileg, þau varð hver og einn að hugsa
sér, — voru komnar margar hillur, gömul eldavél sem
Ninnu hafði tekizt að breyta úr kolryðguðum garmi í
forláta grip, með bronsi og ofnsvertu, svolítið fast borð
undir glugganum, og með ótal nöglum og krókum á
veggjunum, þar sem hengja mátti allt mögulegt.
Það sem mesta furðu vakti þó hjá þeim vinkonum var
heljarmikill pallur, sem Áki og Óli höfðu sótt á trill-
unni hans afa inn að Eyri. Þá var hann ekki í heilu lagi,
heldur í smápörtum, sem strákamir síðan röðuðu sam-
an af vísindalegri nákvæmni, að þvl er þeim fannst, allt
féll svo vel að hvergi var rifa.
— Hvað á að gera við þennan pall? spurðu stelpurnar
aftur og aftur, en fengu engin svör. Aftur á móti fengu
þær að vita til hvers fallega, hvítrósótta efnið, sem strák-
arnir höfðu keypt, átti að vera. Ninna vakti langt fram
á nótt við að sauma kjóla á þær úr þessu efni. Amma
þuklaði efnið, tók hom af því og núði milli handa sér.
— Jæja, það er kannsld ekki sem verst, það er ekki að
finna mikla steiningu í því, en hvað heldur þú, Ninna
mín, að þetta haldist lengi hreint hjá þeim blessuðum?
Ninna brosti og sagðist ætla að taka að sér að þvo
fyrir þær kjólana.
Strákarnir höfðu líka keypt hvíta hálfsokka og svarta
lakkskó, en um það vissu stelpurnar ekki. Hönnu Maríu
fannst lítill fugl syngja inni í brjóstinu á sér frá morgni
til kvölds: Gaman, gaman, gaman! Ó hve það er gaman
að vera til!
Á laugardagskvöldi náði annríkið hámarki. Sonja var
rekin í rúmið með Sverri, og svo fór allt heimilisfólkið
út í Lyngey ásamt afa og ömmu. Sonja flýtti sér að
þurrka af sér tárin, þegar hún sá Hönnu Maríu rölta
upp túnið með Neró á eftir, bæði ósköp lúpuleg. Hún
vildi ekki láta Hönnu sjá, að hún hefði verið að skæla.
— Ég á að sofa hjá þér í nótt, sagði Hanna og reyndi
að brosa, þótt hún væri grunsamlega rauðeygð.
— En hvað það er gaman, sagði Sonja og reyndi að
láta röddina hljóma eðlilega, það tókst nú miður vel.
Þær litu hvor á aðra, snöggt, en litu strax undan aft-
ur.
— Því máttum við ekki fara með þeim? sagði Sonja
loks.
Hanna yppti öxlum: — Veit ekki, svaraði hún stutt,
en nú skulum við fara strax að sofa og vöknum svo í
fyrramálið á undan öllum öðrum og róum fram í Lyng-
ey, þá hljótum við að sjá, hvað þau hafa verið að gera.
— Já, gerum það. Fljótar í bólið og sofnum eins og
skot, sagði Sonja fagnandi.
Hanna María gat ekki sofnað, hún var í ókunnu rúmi
í húsi sem hún hafði aldrei fyrr sofið í. Það var sama
hve oft hún las Faðirvorið, velti sér og sneri, hún varð
bara betur og betur vakandi. Aftur á móti steinsváfu
bæði Sverrir og Sonja.
Loks þoldi Hanna ekki lengur við. Hún reis hljóð-
lega á fætur, vafði fötunum sínum í böggul, læddist út
úr baðstofunni og hljóp berfætt í náttkjólnum niður í
Kot.
308 Heima er bezt