Heima er bezt - 01.04.1967, Side 6

Heima er bezt - 01.04.1967, Side 6
hafði stór bátur lagzt að síðunni hjá okkur, mannaður 12 mönnum. Þetta voru þá sjóliðar frá ensku herskipi, sem komnir voru til að sjá hvað við hér værum að að- hafast. Kokkurinn okkar, lítill og snaggaralegur karl, varð alveg ær, hélt víst að hér væru komnir einhvers konar himneskir hákarlar, þreif öxi og hugðist láta þá kenna á henni, engu síður en þá, sem úr djúpinu komu á hak- anum. Af mannvígum varð þó ekki. Auðvitað var kokkurinn orðinn svo yfirkeyrður af svefnleysi og þreytu, að hann vissi vart sitt rjúkandi ráð. Þegar við komum að landi, barst okkur frétt um mikla kolkrabbaveiði í fjörðunum fyrir vestan, var þá ekki til setu boðið, en báturinn affermdur í flýti og svo haldið vestur á Geirþjófsfjörð, innst inn í botn. Þar fengum við góðan afla. Svona gekk nú lífið í þá daga. Árið 1919 fór ég til náms í Samvinnuskólann og lauk þaðan prófi tveimur árum síðar, 1921, og gerðist að því loknu skrifstofumað- ur hjá Kaupfélagi Súgfirðinga. Árið eftir, þann 22. júlí 1922, gekk ég að eiga Sól- veigu Jóhannsdóttur Hallgrímssonar frá Laxárdal í Hrútafirði og Guðríðar Guðmundsdóttur frá Ljárskóg- um. Við kynntumst á Súgandafirði, en Jóhann var þá starfandi verzlunarmaður þar. Ekki var langt í veru minni hjá kaupfélaginu, því að það hætti rekstri eftir tvö ár. Þá lá leiðin aftur á sjóinn og nú á togara. Þá voru engin vökulög komin, enda staðið hvíldarlítið sól- arhringum saman væri þannig veðrátta og aflabrögð. Þá reyndi maður einnig að freista gæfunnar við síld- veiðar, en það fór nú ekki betur en svo, að eitt afla- leysissumarið varð ég að gefa með mér, þá voru engar hlutatryggingar lögleiddar eins og nú er. Eftir þessi misheppnuðu ævintýri lá leiðin aftur heim í Súgandafjörð og þar gerðist ég starfsmaður við verzl- un Örnólfs Valdimarssonar kaupmanns, hann hafði þá sett upp sjálfstæðan rekstur, sem á tímabili var um- fangsmikill og athafnasamur og setti svip sinn á Súg- firzkt atvinnulíf. Hér varð ég „alt mulig mand“, eins og danskurinn segir — utanbúðar, innanbúðar, vann á skrifstofu, afgreiddi tjöru, silkislæður, sykur og brauð, allt svo að segja á sama tíma. Venjulega var vinnudag- urinn frá kl. 8 að morgni til kl. 10 að kvöldi, og stund- um varð svo að fara út að nóttunni og afgreiða beitu til báta eða taka á móti fiski. Á meðan reksturinn var í smáum stíl, unnum við Örnólfur tveir við fyrirtækið, en með vaxandi umsvifum, fjölgaði starfsfólkinu. Örnólfur var mjög góður vinnuveitandi og galt mér vel á þeirra tíma vísu. Árslaun mín voru síðustu árin kr. 3000, og þótti það dálagleg hýra, því þá voru hæstu árstekjur sjómanna 1500—2000 krónur. Hjá Örnólfi vann ég í 6 ár. Enda þótt ég kynni vel mínu vestfirzka umhverfi og liði þar vel, þá fann ég þó hjá mér löngun til að hefjast handa um sjálfstæðar athafnir, og skapa mér víðara starfssvið, því var það, að árið 1930 fluttum við hjónin með fjölskyldu okkar búferlum til Reykjavíkur. Þá höfðum við eignazt saman 4 börn. Önnur 4 áttum við eftir að við komum hér suður. Eitt barnanna höfum við ■ misst, hin eru öll á lífi. Fyrst byrjaði ég verzlun á Laugavegi 62, en var þar aðeins í tvö ár, sökum þess, að þá þurfti húseigandinn. búðina, sem hann hafði leigt mér, til eigin afnota. Þá fékk ég verzlunaraðstöðu hjá Gunnari í Von, og var þar önnur tvö ár eða þar til ég reisti eigin húsnæði á. Leifsgötu 32, hvar ég hef dvalið síðan. Þessi verzlunarár mín á Laugaveginum urðu til að ■ byrja með talsvert erfið, ekki sérstaklega hvað rekstur- inn snerti, heldur hitt að ég bjó langt vestur í bæ, vestur þar sem þá hét Utgarðar, að vísu hafði ég keypt mér nýtt reiðhjól til að vera fljótari í förum, og hafði það í portinu utan við búðina, þar sem ég verzlaði. Eitt kvöld að loknu dagsverki, þegar ég kom út hress, en þreyttur eftir gjöfulan dag, er fararskjótinn horfinn, og hann sá ég aldrei síðan. Nú mátti ég nota mína tvo fætur. í þá daga var ég fremur kvikur til gangs og fór því hrað- ara en almennt gerðist á götum bæjarins. Var ég af og til að rekast á fólk, sem svo sneri sér við og virti fyrir sér þennan mann sem hafði í frammi þvílíkt hátterni á ferð sinni, og Ieizt áreiðanlega sumum sem ég mundi meira en lítið bilaður í kollinum. Þegar suður að Elliheimili kom var byggðin og um- ferðin því nær búin, og var mér þá óhætt að hlaupa yfir skurði og girðingar án verulegrar hneykslunar. Nokkru eftir að ég hóf starfsemi hér í Revkjavík, stofnuðum við Einar Jósefsson Harðfiskssöluna og starfræktum hana saman í 25 ár. Var hún á tímabili mjög umfangsmikið fyrirtæki, sem hafði viðskipti víða um land, og einnig dálítið erlendis. Hráefni það sem við vorum með var aðallega sótt til Vestfjarða, fyrst og fremst til Súgandafjarðar, hvað steinbítinn snerti. Verzlun hef ég rekið í 35 ár, en nú hefur einn sona rninna tekið við og rekur hana áfram, a. m. k. enn þá undir sama nafni. Við gamla fólkið höfum dregið sam- an seglin, og lifum nú fábrotnu, umbrotalausu lífi. Aust- ur við Álftavatn höfum við reist sumarhús og þar eyð- um við mörgum sólríkum sumardögum við ýmiss konar lagfæringar á umhverfinu. Og þegar verr viðrar, unum við okkur við hlýjan arinn, tökum okkur bók í hönd eða röbbum saman og rifjum upp gamlar minningar. Snertingin við gróður og mold hefur alltaf verið mér hugstæð, og þótt ég bærist á sjótrjánum frá því ég fyrst var talinn hlutgengur á þeim vettvangi, og langt fram eftir aldri, þá finnst mér að bezt mundi ég hafa unað hag mínum, sem frjáls íslenzkur bóndi bundinn hinni gróandi náttúru. Hvernig er svo viðhorf þitt til lífsins, þegar þú í dag lítur um farinn veg? Mér finnst lífið miklu bjartara og betra en á mínum uppvaxtarárum. Fátækt og umkomuleysi var þá hlut- skipti alltof margra. Flest störf voru unnin með hand- afli og svo hart að gengið, að ýmsum varð ofraun. Fjár- 118 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.