Heima er bezt - 01.04.1967, Side 7

Heima er bezt - 01.04.1967, Side 7
munir hrukku aðeins fyrir brýnustu þörfum, sem þó voru taldar allt aðrar og fábrotnari en í dag. Þegar litið er til baka unt 60 ár, þá hlýtur öllurn að vera ljóst, sem þann tíma hefur götu gengið, hve stórfelldar framfarir hafa orðið á ýmsum sviðum, bæði á sjó og landi. Hin stórvirku atvinnutæki hafa gjörbreytt lífsháttum og lífs- högum manna. Nú elst upp í landinu þróttmikið og fallegt æsku- fólk, sem fátt skortir, og skilyrði hefur til manndóms og menningarþroska, aðeins það beri gæfu til, að slitna ekki úr tengslum við fortíð sína og þær eðliseigindir fyrri kynslóða, sem bezt dugðu þegar harðast svarf að. Trúin á handleiðslu æðri máttar, og breytni í samræmi við hana, fleytti mörgum gegnum brimskafla erfiðleik- anna. Trúlaus þjóð gengur tæpa götu, þótt greið sýnist í svip. Andleg vitræn þróun mun ekki síður líkleg til auðnu en hin efniskennda. Andleg úrkynjun er vísasta leiðin til að glata samskiptum við menningarsamfélag. Þá getur blind trú á mannlegan foringja orðið þess valdandi, að siðgæðishugmyndirnar ruglist og fyrr en varir verði fólkið áttavillt og andvana. Ég mundi telja það stærsta ósigur, sem hent gæti ís- lenzka þjóð, ef hún hætti að lyfta huganum til hæða og glataði trúnni á mátt bænarinnar. Hvað mundir þú telja að styrkt gæti trúarlíf íslend- inga, sem margir telja að nú sé í molum? Ég álít, að í uppeldis- og kennslumálum séum við að ýmsu leyti á rangri leið. Inn í skólana þarf að koma sterkari andblær trúarlegs uppeldis og áhrifa en nú er. Hver skóli ætti að hefja starf sitt með bænastund. Marg- ur mun hafa orðið þess var einhvern tíma í lífi sínu, hve erfitt er að vera þess ekki megnugur að komast í snert- ingu við æðri mátt á örlagastund. Mér verður hugsað til þess tíma, þegar ég var dreng- ur í barnaskóla, sem að vísu var ekki nema hálfur annar vetur. Kennarinn var Gísli Jóhannesson, bróðir Ólafs Jóhannessonar kaupmanns á Patreksfirði. Ég held flest sé nú gleymt sem hann kenndi mér nema eitt. Það er bænin sem hann flutti hvern morgun í byrjun kennslu- stundar. Ungir og aldnir leita hamingju, en án trúar er engin hamingja. Sú hamingja, sem mönnum finnst þeir njóta án hennar, er blekking, ímyndun frá hinum efniskennda heimi. Ungar mæður ættu að kenna börnum sínum fyrst allra fræða að biðja. Börn eru í æsku næm fyrir fegurð og göfgi, og það getur orðið þeim flestu öðru betra veganesti út í lífsbaráttuna, ef á reynir. Það sem þú hefur nú sagt Páll, er ljóst dæmi þess, að ekki telja allir trúna fánýtt hjóm eða hugaróra, en vilja byggja framtíðartilveru íslendinga á heilbrigði og guðs- trú. Viltu svo ekki bæta einhverju við að lokum? Ef til vill er það að sumu leyti endurtekning eða und- irstrikun á því sem ég hef verið að segja. Það er skaðræði vegvilltu mannkyni, ef guðstrú og Hús Páls Hallbjörnssonar að Leifsgötu 32. andleg göfgi visnar á sama tíma og vísindi og kjarnorka ryðja sér rúm í heiminum. Víst eru vísindi mikilvæg, en þó því aðeins, að þeim sé beitt í þágu uppbyggingar mannbætandi eiginda, en ekki eyðingar og sálarmorðs. Heima er bezt. Gott heimili er hyrningarsteinn lífs- hamingju einstaklinga og þjóðfélagsheilda. Mín mesta lífsgæfa er góð kona, sem staðið hefur við hlið mér í baráttu áranna. Gakk þú fram með glaðan hug og guð í þínu hjarta. Það mun efla dáð og dug og dýrðarlífið bjarta. Svo mæltist Páli Hallbjörnssyni. Mæli aðrir betur og þá er vel. BRÉFASKIPTI Elin ValgarðscLóttir, Eystra-Miðfelli, Hvalfjarðarströnd, Borgarfjarðarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 14—16 ára. Ingibjörg Júliusdóttir, Móbegi, Rauðasandi, Vestur-Barða- strandasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 12—14. Kristin Björnsdóttir, Ingunnarstööum, Brynjudal, Kjósar- sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldr- inum 18—25 ára. Guðný Guðrún Björnsdóttir, Ingunnarstöðum, Brynjudal, Kjósarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 25—28 ára. Svanhildur Sigfúsdóttir, Steintúni, Skagafirði, óskar eftir. bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 16—17 ára. Guðmunda Sigfúsdóttir, Steintúni, Skagafirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 11—13 ára. Heima er bezt 119

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.