Heima er bezt - 01.04.1967, Side 13

Heima er bezt - 01.04.1967, Side 13
SIGURÐUR JÓNSSON, STAFAFELLI: Ljósir blettir í Iiðinni ævi Aldamótamenn egar minnzt er látinna manna, og þeirra, sem eiga tugaafmæli, er oft talað um aldamótamenn. Mun þá oftast vera átt við það fólk, sem fædd- ist fyrir síðustu aldamót og gekk út í lífið, ef svo mætti segja, í byrjun tuttugustu aldarinnar. Fólkið, sem var á námsaldri, þegar þjóðskáldin ortu sín aldamótaljóð, las þau og lærði þessa herhvöt til þeirra ungu Islands sona og dætra. Trúin á landið óx. Vesturheimsferðir lögðust niður að mestu. Fáir töluðu um, að landið okkar væri á mörkum hins byggilega heims, en það mátti þá líka segja um nyrzta hluta Ameríku. En hér hefur hjálpað okkur, að landið er ey- land, og þar er eyjaloftslagið síbreytilegt, stundum strítt en oftast blítt. Mér finnst, að síðustu áratugir hafi sannað, að sé rétt að unnið, megi láta smjör drjúpa af hverju strái, svo sem Þórólfur taldi á landnámstíð. I þætti þessum verður brugðið upp myndum, sem mér eru kærar frá dvöl á námsárum syðra á Flensborg- arskóla, og í gróðrarstöð í Reykjavík árið 1901—1903. Að miklu leyti verða þessar myndir án mannlýsinga, því meiri hluti þeirra manna, sem myndirnar greina, er getið í ritunum „Hver er maðurinn“ og „Samtíðar- menn“. Þar má sjá um ætt þeirra og ævistarf. Þessar ljósmyndir, sem grein minni fylgja, eru flestar frá Frú Inga Skúladóttir og Jörgen Hansen, skrifstofumaður, og börn þeirra. Heima er bezt 125

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.