Heima er bezt - 01.11.1971, Qupperneq 4
GÍSLI GUÐMUNDSSON:
Björn Kristj
ansson,
fyrrverancli kaupfélagsstjóri
Hann er á öðru árinu yfir nírætt og veit, að
hann má ekki ganga einn yfir aðalbraut, því
að sjónin er orðin döpur og erfitt að átta sig
á umferðinni, en ekki hægt að treysta því, að
akandi vegfarendur taki eftir því, sem gefur til kynna,
að hann sé ekki eins skyggn og hann var fyrrum. Hann
er búinn að eiga heima á Grenimelnum í Reykjavík
nokkuð á annan áratug. Lengi framan af þeim tíma
var hann sílesandi og sískrifandi, rak erindi í borginni
fyrir fólk heima í átthögunum fyrir norðan, og stund-
um voru honum send þaðan verkefni, sem hann átti að
leysa af hendi í heimavinnu við skrifborð sitt. Þá færð-
ist hann í aukana og unni sér ekki hvíldar fyrr en verk-
efninu var lokið, alveg eins og fyrrum meðan hann var
Rannveig Gunnarsdóttir og Björn Kristjánsson. Myndin tekin
1925.
Gunnþórunn Þorbergsdóttir,
fyrri kona Björns Kristjánssonar.
384 Heima er bezt