Heima er bezt - 01.11.1971, Síða 5

Heima er bezt - 01.11.1971, Síða 5
bóndi og kaupfélagsstjóri, en vinnugleðin og þrekið óbilandi. Nú getur hann hvorki lesið né skrifað, það eru ein tvö eða þrjú ár síðan horium fór að dimma fyrir augurn og það ágerðist nokkuð fljótt. Áður en þetta gerðist, var hann búinn að venja sig á að ganga um næstu götur mælda leið 3—4 km dag hvern, þegar ekki var snjór eða hálka til hindrunar, og þegar ekki gaf til útigöngu, gekk hann þessa sömu vegalengd inni, einnig útmælda, með veggjum fram, og gerir það enn, því að skyldan býður að varðveita sem lengst heilbrigði líkama og sálar. Og enn heldur hann áfram sinni dag- legu göngu, þegar heilsa og veður leyfir, ekki lengra norður en að Hofsvallagötu, ekki lengra suður en að Furumel og ekki lengra austur en að Hringbraut, því að þetta eru aðalbrautir. Hann hefir lofað að fara ekki lengra, og hún, sem heima bíður, verður að geta treyst því, að hann haldi loforð sitt, það hefir hann alla ævi gert. Áður var hann göngugarpur, fór hratt yfir og hugurinn bar hann hálfa leið. Nú veit hann, að hann má ekki detta og gengur hægar en fyrr. Og hann dettur sjaldan. En ef hann svo heyrir rödd gamals vinar á veg- ferð sinni, þá ljómar ásýnd öldungsins, og þá verður allt eins og áður fyrir hugskotssjónum hans, blessuð sól- in og hin góða, græna jörð. Oft berast líka gamalkunnar raddir inn í stofuna til hans, þar sem hann situr, að lokinni göngu dagsins. — Hann er frændmargur og hefir komizt í kynni við fjölda fólks á lífsleiðinni. Hann hefir verið vinsæll maður, og þeir, sem þekktu hann í starfi, gleyma hon- um ekki, þótt vik sé milli vina. En í heimi níræðs manns fækkar röddum frænda og æskuvina úr heimahögum, sem sumir hverjir urðu á ný nágrannar í höfuðborg- inni. Nú á þessu sumri hvarf rödd sr. Sveins Víkings náfrænda hans, sveitunga og svila, sem raunar var ekki nema áttræður, og bróðir sr. Sveins, Þórarinn, jafnaldri Björns, er líka allur fyrir skömmu. Og horfnar eru raddir miklu yngri manna af Víkingavatnsætt, svo sem Þórarins skólameistara og Benedikts bróður Þórarins, sem báðir voru honum mjög kærir, svo og systkina Kópasker. íbúðarliús B. Kristj., „Útskálar", fremst til vinstri. Ljósm. Guðm. Björnsson 1967. Björns tveggja, sem voru yngri en hann. Og þannig mætti lengi telja. En nú á seinni tíð eru líka komnar til sögu margar nýjar raddir, annarrar og þriðju kyn- slóðar, sem eiga hann að ættföður. Hann veit, að ævi- kvöldið líður, en að líkur eru til, að ætt hans verði langlíf í landinu og kannske víðar. Hér verður hvorki rituð ævisaga né eftirmæli Björns Kristjánssonar. Hann er fæddur á Víkingavatni í Keldu- hverfi 1880. Móðir hans, Jónína Aðalbjörg Þórarins- dóttir, var þar fædd og uppalin, og fólk af hennar ætt hefir setið Víkingavatn um aldir. Faðir hans, Kristján Kristjánsson, var einn af afkomendum Þórðar á Kjarna við Eyjafjörð og skal þetta ekki nánar rakið hér. Fyrstu bernskuár hans voru hafís- og harðindaár af því tagi, sem þjóðskáldin miklu, Matthías og Einar Benediktsson, lýstu á sínu meitlaða stuðlamáli: „Ertu kominn landsins forni fjandir“ og á hafísvori: „Heiðarnar eru línhvít lík lögð við hamranna dökku fjalir. Blómin sín jarða daprir dalir, það dregur násúg um skaga og vík. En túngrösin kynbætt af þúsund þrautum við þúfuna grúfa í neðstu lautum. Haginn er litlaus, lóslitin flík. Lífsmörkin krjúpa í felur í jurtanna skautum.“ Harðindaárin um 1880, eða umtal fólks um þau, hafa án efa marltað djúp spor í vitund hins unga sveins og verðandi aldamótamanns. Hann gerðist svo minnugur á árferði, að ég þekki engin önnur dæmi slíks. Til skamms tíma gat hann raltið tíðarfarið eins og það hafði verið frá ári til árs, áratug eftir áratug. En þó að minnið Heima er bezt 585

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.