Heima er bezt - 01.11.1971, Page 7

Heima er bezt - 01.11.1971, Page 7
Björn og Rannveig ásamt börnum og tengdabörnum. Guðlaug Ólafsdóttir, Guðmundur, Ásta, Lovisa H. Björnsson, Gunnar, Bjarni Guðbjörnsson, Gunnþórunn, Þórhallur, Margrét Friðriksdóttir og Kristveig. — Á myndina vantar Björn Benediktsson, mann Astu, og Halldór Sigurðsson, mann Kristveigar. — Myndin er tekin í 70 ára afmeeli Rann- veigar 6. nóvember 1971. — Ljósm. Ljósmyndastofa Vigfúsar Sigurgeirssonar s.f., Reykjavik. í sveitinni, þar sem birkið angar á vori og „starengi blakta við blakkan sand.“ Að hann gerðist sem ungur maður víðförull um héruð og landsfjórðunga og nam þá margt um land og þjóð. Að hann stýrði sem fram- kvæmdastjóri Kaupfélagi Norður-Þingeyinga á Kópa- skeri í 30 ár, m. a. á kreppuárunum um og eftir 1930, og að giftusamlega tókst að treysta fjárhag þess og efla framfarir á félagssvæðinu. Að hann var þrisvar sinnum kjörinn fulltrúi Norður-Þingeyinga á Alþingi, og hefði án efa átt lengri setu, ef hann hefði gefið þess kost. Að hann átti um langt skeið sæti í stjórn Sambands ísl. sam- vinnufélaga, og gegndi ýmsum öðrum trúnaðarstörfum í héraði og utan þess. En níræðum öldungi verður líka á ævikvöldi að sjálfsögðu tíðhugsað um heimilislíf sitt og frændgarð. B. K. er tvíkvæntur. Fyrri kona hans, sem hann missti eftir stutta sambúð, var Gunnþórunn Þorbergsdóttir frá Sandhólum á Tjörnesi, en sonur þeirra er Þórhallur, sem lengi var kaupfélagsstjóri á Kópaskeri, eftir að faðir hans lét af störfum hátt á sjö- tugsaldri, nú aðalféhirðir hjá S. í. S., kvæntur Margréti Friðriksdóttir frá Efrihólum í Núpasveit. Börn B. K. og síðari konu hans, Rannveigar Gunn- arsdóttur frá Skógum í Öxarfirði, sem honum var ung gefin, og byo-gði með honum á Kópaskeri skála um þjóðbraut þvera, en nú er um margt auga hans og forsjá, eru: Gunnþórunn, gift Bjarna Guðbjörnssyni, útibús- stjóra og alþingismanni á Isafirði, Gunnar, efnaverk- fræðingur í Reykjavík, kvæntur Eovísu Hafberg Björns- son, Guðmundur prófessor í verkfræðideild Háskólans, kvæntur Guðlaugu Ólafsdóttir, Kristveig, gift Halldóri Sigurðssyni bónda á Valþjófsstöðum í Núpasveit og Ásta, gift Birni Benediktssyni bónda í Sandfellshaga í Öxarfirði. Margir sem honum standa nærri, vandamenn og vinir, eiga sitt undir sól og regni. B. K. lætur það ekki bregðast að gefa gætur að veðurfréttum dag hvern, og veðrið „hjá okkur“ er enn í hans munni veðrið á Norðausturlandi, þó að hann sé búinn að eiga heima í höfuðborginni í 14 ár. BRÉFASKIPTI Helga Pálsdóttir, Laufási, Stöðvarfirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 12—14 ára. Gunnhildur Ragnarsdóttir, Kvíabryggju, Grundarfirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 18—20 ára. Haraldur Þór Jónsson, Hverfisgötu 83, Reykjavík, óskar eftir bréfaskiptum við dömu á aldrinum 25—30 ára. — Hef áhuga á tónlist, sér í lagi klassískri. Heima er bezt 387

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.