Heima er bezt - 01.11.1971, Page 10

Heima er bezt - 01.11.1971, Page 10
ADDA JONASDOTTIR, ÞVERA: mínir „í sveitinni má sjá þá báða að sama og einu verki. Sama vilja og valdi háða. Þeir vita, að bóndinn á að ráða. Það er hans manndómsmerki. Skjóni er barn, er berst til dáða, Bleikur sá sterki! Svo segir okkar góða skáld, Davíð heitinn Stefáns- son frá Fagraskógi, í einu sinna ódauðlegu kvæða. Það var þegar blessaðir hestarnir voru með manni svo að segja við öll störf útivið. Nú hfa dráttarhestarnir aðeins í minningu okkar hinna eldri, vélarnar hafa leyst þá af hólmi. Það er óneitanlega gaman að sjá hvað heyskapurinn gengur fljótt og vel með þessum stóru vélum — þó er einhver söknuður í sál minni, mér finnst eitthvað vanta svo allt sé fullkom- ið, og það er samstarfið við þessar yndælu, hugljúfu skepnur, dráttarhestana, sem voru manns stoð og stytta og sameinuðust manni í vinnunni. „Maður og hestur urðu eitt“. Ég minnist síðustu dráttarhestanna minna, Grána og Blesa. Fvrsti dagurinn, sem Blesi var settur fyrir sláttu- vélina með Grána, er svo Ijós í huga mínum, eins og það hefði verið í gær, þó liðin séu síðan 30 ár. Flann var aðeins 5 vetra foli, vel viljugur, hafði allan gang, en skemmtilegast fannst mér töltið, það var svo dún- mjúkt, að maður haggaðist ekki í hnakknum. Hann var þægur, ófælinn, en svo viðkvæmur; það dáðu hann allir krakkar, enda var hann gæfur. Gráni var orðinn fullorðinn og margt búinn að reyna, notaður allt árið um kring til aðdrátta fyrir heimilið, og það voru oft erfiðir flutningar í sjó að vetrinum, yfir vegleysu. Gráni var klárhestur með tölti, dálítið mislyntur, sérstaklega við krakka; þau máttu aldrei tví- menna, þá henti hann þeim af baki, skildi þau stundum eftir í druiiukeldu og hljóp frá þeim. Hann var vel viljugur framan af ævi og gott að sitja hann og með fljótustu hestum á stökki. Það er sólbjartur sumardagur, grasið á túninu bylgj- ast í golunni og bíður eftir því að verða slegið. Gráni kroppar í hlaðvarpanum, tygjaður til athafna; það er verið að setja aktygin á Blesa litla, nú á að sjá, hvað hann getur. Hann er anzi hvikull, finnst víst hringla ærið mikið í þessu gargani. Þetta er svo ólíkt hnakknum. Hann snýst marga hringi og frýsar hátt. Ég geng til 390 Heima er bezt hans og strýk snoppuna og gæli við hann um stund. Nú er allt tilbúið, hann er teymdur með Grána að vél- inni. Það þarf ekki að hafa mikið fyrir að koma Grána á sinn stað, hann hagræðir sér sjálfur og alltaf vildi hann vera sömu megin, hafa hinn hestinn við vinstri síðuna. Það tókst vonum betur að tengja Blesa við Grána og vélina eftir nokkrar hringferðir. Þegar átti að keyra af stað, stendur hann fyrst kyrr, prjónar síðan og frýsar hátt, næstum öskraði. Svo er allt kyrrt um stund, þar til hottað er á þá með hægð, þá lítur Gráni til Blesa og mér fannst svo mikil óvirðing í augnaráðinu, hann lagði kollhúfur og gerði sig svo ljótan á svipinn, ég held hann hafi langað til að bíta hann, svo labbar hann af stað traustum, öruggum skrefum og manni sýndist hann draga bæði vélina og Blesa. Gráni var traustur kennari og Blesi var fljótur að læra. Þá duttu mér í hug ofangreindar ljóðlínur Davíðs — og sá að Blesi var barnið, sem berst til dáða — Gráni sá sterki. Það þýddi aldrei að sleppa Grána eftir unnið dags- verk nema að lofa honum að finna mig, ef krakkar ætl- uðu að teyma hann út af túninu, þá bara spyrnti hann við öllum fótum og fór hvergi, rykkti af þeim taumn- Adcla Jónasdóttir á gráum gæðingi.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.