Heima er bezt - 01.11.1971, Side 11

Heima er bezt - 01.11.1971, Side 11
Siðustu dráttarhestarnir að Þverá. um ef hann gat; þá var hann fljótur heim að bæjardyr- um og kumraði hátt og kumrið varð að hneggi, ef ég heyrði ekki strax, stundum kom hvít snoppa inn um eldhúsgluggann, þá var ég fljót fram með mjólkurföt- una. Hann var búinn að fá margan mjólkursopann og brauðbitann um dagana, blessaður gamli klárinn, enda átti hann það skilið. Blesi lærði líka fljótt að drekka mjólk; hann kom í humáttina á eftir heim og smá færði sig nær, þangað til hann kom alveg og vildi smakka, en hann var aldrei eins frekur og Gráni. „Heima á bóndabænum rýkur, brenna kvöldsins glæður. Bleik og Skjóna bóndi strýkur brauðsneiðum hann að þeim víkur, ráðum sínum ræður. Vel er unnið, verki lýkur, vinir og bræður“. D. S. Nú eru þeir horfnir yfir landamærin, gömlu klárarnir, en maður man þá og þakkar öli störfin. Það er ekki þar með sagt, að hesturinn sé horfinn okkur, sem betur fer. Nú er það bara gæðingurinn, sem raunar alltaf hefur verið til samhliða dráttarhestinum. Hann hefur bara flutt á mölina, eins og sagt er um sveitafólkið, sem flyt- ur í kaupstaði landsins. Nú er mikið af reiðhestum þar, en sem betur fer er ennþá töluvert magn af þeim í sveitinni, þó til séu sveitaheimili, sem engann taminn hest hafa. í sveitinni er hann að minnsta kosti fæddur, gæðingurinn. Þar sér hann fyrst sólina skína, og fyrsta sumarið, og jafnvel fyrstu árin, lifir hann frjáslu óþving- uðu lífi hjá móður sinni og stóðinu heima í fjalladýrð- inni. Hver veit nema að hann búi að því alla sína ævi, þó hann sé síðar sviftur frelsi og fluttur á braut. Það er margur hestamaður á íslandi, eða telur sig vera það. En passaðu þig, hestamaður góður, að fara ekki eins illa með reiðhestinn þinn og farið var með þessar dýrðlegu skepnur á landsmótinu í Skógarhólum í vor og eins á Vindheimamelum í Skagafirði á kapp- reiðum sama vor, 1970. Það var ömurleg sjón og óskilj- anlegt að nokkur hestaunnandi skuli geta horft þegj- andi á slíka meðferð. Ég spyr: Hvar er dýraverndunar- félagið, að það skuli ekki taka þetta til meðferðar — sem blæs sig út sjái það stóðhross úti að vetri til í mis- jöfnu veðri. Af reynslu minni og þekkingu á hrossun- um, þá álít ég, að það væri ekki hægt að gera stóðinu neitt verra en loka það inni í húsum, þó stallurinn væri fullur af heyi. Þau vilja vera frjáls, elska hina óþving- uðu náttúru. En auðvitað mega þau ekki vera svöng. Það verður að gefa þeim strax og harðnar á jörð, og það held ég flestir geri nú orðið, sem betur fer. Okkur finnst gott að gefa þeim bara út í hagann ef gott er veður. Þau virðast una því vel, þegar þau venjast manninum, sem gefur þeim, koma þau strax og hann kallar á þau, þyrpast í kringum hann, labba svo burtu þegar þau eru búin að éta nægju sína. Þau treysta manninum. Þarna eru hross, sem eru dýrstygg að sumr- inu. Þau vita, að þeim verður ekkert gert nema að gefa þeim að eta. Þetta lýsir sæmilegum gáfum. Ég er ekki að lasta að hafa hús til að gefa þeim í þegar vont er veður, það er sjálfsagt, en alls ekki að loka þau inni. Bóndi minn gefur þeim stundum í húsi ef hvasst er, Heima er bezt 391

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.