Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1971, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.11.1971, Qupperneq 12
en honum finnst betra að gefa þeim úti ef hægt er, þau eru ekki inni nema rétt á meðan þau eta, og varla það. Þau gera lítið af því að fara ínn þó hríð geysi, þau standa heldur í skjóli. Svo að endingu nokkur orð til ykkar, hestaunnendur og hestamenn. Farið vel með hestinn ykkar, þessa dá- samlegu skepnu. Látið ekki sjást annað eins svínarí á næstu landsmótum og síðastliðið vor. Það er hörmuleg sjón að sjá hungraðan, lafmóðan, kófsveittan hest titr- andi eins og lauf í vindi á hagleysu og jafnvel bundinn við staur, híma þar svo klukkustundum skiptir, meðan eigandinn er að skemmta sér með glöðum félögum. Tíminn er lengi að líða fyrir hestinn þinn, þó þér finnist hann fljótur að líða. Loksins kemur eigandi hestsins, er þá svo valtur á fótunum, að hann kemst varla hjálpar- laust á bak. Nú þarf hann að sýna félögunum kosti gæð- ingsins. Nú er klárinn svo stirður, að hann getur varla tekið fyrstu skrefin. Brátt lifnar yfir honum, hann treystir húsbónda sínum og gerir hvað hann getur. Grundin dunar undir hinu hrynjandi tölti, þreyttra fóta. Hugsið um það, hestamenn. Gæðingarnir ykkar verða aldrei jafngóðir eftir svona meðferð. Bak á gráa gæðinginn mig grípur þrá að fara. Fríði, knái Fálki minn, fjörið má ei spara. Pottbrauð . . . Framhald af bls. 389 ---------------------------- okkar og gleði verður vart lýst þegar við sáum inni- haldið. Þar var, innan í koddaveri, „pottkaka“, bökuð í hlóðum undir potti, en sú brauðgerð var mjög tíðkuð á þeirri tíð. Við tókum sprettinn, eins og við stóðum, á nærklæðum og berfættir, fram í bæ og hrópuðum: „Mamma, mamma, það er komið brauð, komdu nú með smér“. Það beið heldur ekki lengi, að sneitt væri upp á „pott- brauðið“, og að lystinni á neyzlu þess þarf ekki að spyrja. Meira hnossgæti gat okkur ekki hlotnast, eins og þá stóðu sakir, þótt þetta væri aðeins „pottbrauð“ úr rúgmjöli gert, sem á venjulegum tíma þessarar tíðar, var jafnan nokkur þáttur í fæði almennings. En nú hafði þetta alveg vantað um lengri tíma, og börnum var að því mest eftirsjá, enda segir máltækið: „Brauð er jafnan barna matur“. Það mátti segja, að þennan maí- dag 1902 var ekki minna sólskin í sálum okkar bræðr- anna, en úti í náttúrunni, þrátt fyrir harðindin, og or- sökin var eitt venjulegt „pottbrauð“. Þess skal getið, sem eftirmála, að Helgi Einarsson, vinur okkar, kallaður Bjólan, var afi þeirra síldarverk- unarmanna á Siglufirði, Ingvars, Friðriks og Gunnlaugs Guðjónssona o. fl. og langafi Gríms Helgasonar mag- isters og bókavarðar í Reykjavík, ásamt mörgum fleiri afkomendum. VERÐLAUNA KROSSGÁTA Ennþá lumar hann „Ranki“ vinur okkar á nokkr- um skemmtilegum krossgátum fyrir lesendnr „Heima er bezt“ að spreyta sig á. Þessi, sem hér birtist, hefir beðið birtingar nokkurn tíma, vegna plássleysis í blaðinu, en við vitum, að fjölmargir lesendur munu hafa ánægju af að glíma við hana, eins og þær fyrri. Þið, sem eruð farin að kannast við krossgáturnar hans „Ranka“, vitið jafnframt, að þær eru þannig úr garði gerðar, að ekki þarf að rífa síðuna úr blaðinu til þess að geta sent lausnina, því, eins og áður, er vísa falin í gátunni, og nægir að skrifa vísuna upp og senda á sér blaði, þegar krossgátan er fullráðin. Að þessu sinni skul- um við bara kalla vísuna „Rím og innrím“. Skýringar: Skrifið á laust blað allar tölur frá 1—74. Eftir því sem gátan er ráðin, þá færið sömu bókstafi úr tölusettu reitunum í gátunni að sömu tölum á lausa blaðinu. Þegar gátan er fullráðin, á vísan að standa á lausa blaðinu. Skrifið síðan nafn og heimilisfang á blaðið með vísunni og sendið til „Heima er bezt“, pósthólf 558, Akureyri. Ráðningar þurfa að hafa borizt fyrir lok janúarmánaðar 1972. Veitt verða þrenn bókaverðlaun, þ. e. bækur eftir eigin vali úr Bókaskrá HEB 1971, að verðmæti allt að kr. 1000.00 (HEB-verð) handa hverjum verð- launahafa. Við óskum lesendum „Heima er bezt“ góðrar skemmtunar í viðureigninni við þessa hollu og góðu dægradvöl. 392 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.